Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Qupperneq 25
Helgarblað 20.–23. maí 2016 Fólk Viðtal 21
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21
Þess vegna þýðir ekkert að
spá í hvort fólk muni skilja
brandarana eða vera ánægt
með þá. Það er bara til einn mark-
hópur og það er maður sjálfur. Ég geri
mikið grín að miðbænum, og bolnum
líka, eiginlega eins mörgum týpum og
ég get gert grín að. Sumir verða ringl-
aðir yfir þessu.
Ég man sérstaklega eftir því þegar
ég gerði leikritið Leg og Jón Viðar
gagnrýndi það. Honum fannst undar-
legt að ég gerði grín að kapítalískum
iðnaði sem eyðileggur náttúruna og
líka hinum sem verja hana með kjafti
og klóm. Honum fannst þetta ekki
geta farið saman, en ég gæti ekki ver-
ið meira ósammála. Maður á að gera
grín að öllum, bæði þeim sem standa
nærri manni og þeim sem eru fjar-
lægari. Reyndar er ég ekki duglegur að
gera grín að öðrum menningarheim-
um, eins og Mið-Austurlöndum eða
Kína, en það stafar meira af vanþekk-
ingu minni. Það þýðir ekki að vera
„ignorant“ í gríni.“
Umhugsunarlaus kaldhæðni
Grín Hugleiks hefur farið sigurför um
heiminn. Bækurnar hans eru orðn-
ar um 30 talsins og sumar hafa ver-
ið þýddar á 30 tungumál. Mér leikur
forvitni á að vita hvort hann hafi verið
búinn að hanna atburðarásina þegar
hann var nemi í fjöltæknideild Lista-
háskólans fyrir rúmum áratug.
„Nei, það var ekkert plott í gangi.
Ég teiknaði fyrstu 30 myndirnar sum-
arið á milli annars og þriðja árs í skól-
anum. Það var fyrir sýningu á Seyðis-
firði og ég teiknaði þær sama dag og
hún var opnuð. Myndirnar urðu svo
fyrstu 30 myndirnar í fyrstu bókinni
minni.“
Hugleikur segist hafa teiknað
myndirnar hratt og nánast hugsunar-
laust. „Þetta var umhugsunarlaus
kaldhæðni, miklu frekar en kald-
hæðni. En myndirnar vöktu lukku hjá
samnemendum mínum og ég teikn-
aði nógu mikið í viðbót til að geta heft-
að saman bók sem ég seldi sjálfur.
Þetta gerði ég þrenn jól í röð, en eft-
ir það hefur Forlagið séð um útgáfu á
mínum bókum.“
Skyldi þessi kolsvarti húmor eiga
upp á pallborðið hjá öllum heiminum
eða hvað? 30 lönd eru nú ekkert smá-
ræði.
„Oftast gefa löndin út eina bók
og gefast svo upp. Sumir hafa samt
gefið út allt eftir mig sem hægt er að
þýða. Frakkar hafa náð að gefa út tvær
eða þrjár bækur, en Finnar og Bret-
ar ná húmornum best, fyrir utan Ís-
lendinga.“
Eru lesendur þínir meira banka-
menn eða veganar, eða ákveðnir hóp-
ar?
skýt ég
inn í.
„Það er ekki til ákveðinn höfund-
ur sem höfðar meira til vegana, en
ætli Ayn Rand sé ekki sá höfund-
ur sem höfðar til bankamanna. Mín-
ir lesendur eru alls konar fólk, ekki
bara ein týpa. Ég sá einu sinni heim-
ildamynd um South Park þar sem
talað var um að bæði repúblikanar
og demókratar vilji eigna sér þættina.
Það er nefnilega hægt að lesa heilmik-
il frjálshyggjuskilaboð úr þáttunum,
en á sama tíma má túlka margt lengst
til vinstri. Ég held að það sé svipað hjá
mér. Ef ég er pólitískur skýt ég mis-
kunnarlaust í báðar áttir. Þó svo að ég
hugsi meira til vinstri, finnst mér hið
pólitíska kerfi meingallað, og þar af
leiðandi eru báðir pólar fastir í þeim
galla.“ Þannig að líklega er hlegið að
bröndurum Hugleiks jafnt í Valhöll
sem Tortuga. Við dveljum áfram við
pólitíkina.
„Winter is coming“
„Mér líður stundum eins og við séum
stödd í Game of Thrones. Það virð-
ist alltaf eitthvað vera alveg að fara að
gerast, en svo gerist ekkert. Byltingin
er að minnsta kosti ekki í þessari
þáttaröð. Ég er eiginlega dálítið búinn
að missa trúna á mannfólkinu. Sjáðu
til dæmis síðustu mótmælahrinu, í
kjölfar Panama-skjalanna. Þar var
slegið met í fjölda, fleiri mótmæltu en
í kjölfar hrunsins, en svo þreytist fólk
á þessu. Ég er alveg jafnsekur því ég
mætti alls ekki á öll mótmælin.
Ég held að það pólitískasta sem ég
hef teiknað sé gullfiskurinn sem er í
laginu eins og Ísland. Ég teiknaði hann
daginn eftir að Framsóknarflokkurinn
var kosinn aftur til valda og sagði þá
í gríni að þetta væri góður dagur fyr-
ir grínista. En gullfiskurinn er alltaf
í gildi. Samt verð ég að hafa fyrirvara
á því að tala svona, því eins og Fram-
sóknarflokkurinn og Donald Trump
eru frábær uppspretta gríns, þá eru
þetta opin skotmörk. Grínið verður
frekar eins og sjálfsvörn – leið til að lifa
af með þessi öfl í valdastöðu. Þannig
að frekar vil ég vera laus við Trump
og Framsókn en að gera grín að þeim.
Þegar stjórnvöld eru með svona stór-
an „fokkjú“-putta í áttina til manns,
verður maður að segja „fokkjú“ á
móti. Eiginlega er þetta meira „fokkjú“
en einhver skemmtun.“
Það er ljóst að Hugleikur hallast til
vinstri í pólitík, ég spyr hann nánar út í
það hvar hann stendur.
„Ég er fyrst og fremst útópisti. Ég
horfi á Star Trek og hugsa „af hverju
er lífið ekki orðið svona?“ Mér finnst
alls konar tækni spennandi og held
að við ættum að einbeita okkur að
þannig hlutum í staðinn fyrir skamm-
tíma-rassgataskoðanir. Þá mundi allt
skána. Fólk virðist stjórnast af ótta og
óöryggi – til dæmis við óstöðugleika.
Hrædda fólkið kýs þann sem lofar
lausnum sem fyrst. En þær eru í eðli
sínu skammtímalausnir. Lúalegast
þykir mér þó þegar flokkar ala á ótta
og fordómum til að laða að sér fylgi.
Við sjáum Trump gera þetta núna, og
Framsókn á síðustu metrunum fyr-
ir borgarstjórnarkosningar. Að nota
útlendingahatur til að öðlast styrk er
afskaplega lúalegt.“
Járnhásætið
Hvað með forsetaembættið? Hvernig
tilfinningar berðu til þess?
„Forsetaembættið var fyndinn
brandari fyrir stuttu síðan. En núna
er eins og það sé verið að endurtaka
„pönslænið“ aftur og aftur. Ég var
með nokkrar pælingar í sambandi við
brandara um forsetaembættið, en svo
var þetta búið að fara svo marga hringi
að mér fannst álíka spennandi að tala
um það eins og veðrið. Ólafur er búinn
að vera svo lengi þarna að ég er hættur
að nenna að fylgjast með honum. Eins
og Simpsons-þættirnir í sjónvarpinu,
ég hata þá alls ekki, en er löngu hættur
að nenna að horfa því þeir hættu að
vera fyndnir fyrir löngu. Ég vorkenni
Ólafs Ragnars-eftirhermum hræði-
lega. Þær verða að fá annan forseta til
að leika. Það er svo leiðinlegt að búa í
landi þar sem boðið er upp á það sama
aftur og aftur og aftur – þannig ástand
sýnir mikinn ófrumleika. Pólitískt
séð er Davíð Oddsson þó mun verri
padda. Samt mundi ég frekar vilja sjá
hann sem forseta, bara af því ég nenni
ekki Ólafi lengur. Ég á svo auðvelt með
að fá ógeð á hlutum og leiðast.“
Jahá! Verður mér að orði.
Krúnuleikar Hugleiks „Game of
Thrones er hin fullkomna pólitíska allegoría.“
Mynd SigtryggUr Ari
gullfiskur Hugleiks Þjóðin sem
gleymir auðveldlega.
Mynd HUgleiKUr dAgSSon
„Ef maður reynir að
þóknast neyt-
andanum dettur
maður strax
niður í meðal-
mennsku.
„Þegar
stjórnvöld
eru með svona
stóran „fokkjú“-
putta í áttina til
manns, verður
maður að segja
„fokkjú“ á móti.