Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Qupperneq 28
Helgarblað 20.–23. maí 201624 Sport s: 426 5000 - booking@bbkefairport.is - bbkeflavik.com Ertu á leið í flug? 13.900 kr. fyrir 2 með morgunmat Við geymum bílinn frítt, keyrum þig á flugvöllinn og sækjum þig við heimkomu Láttu fara vel um þig nóttina fyrir eða eftir flug og gistu hjá okkurNý rúm frá RB rúm 1. maí til 15. júní Óþekkta nafnið á lista þeirra dýrustu n Fáir muna eftir Gigi Lentini n Keyptur á metfé til AC Milan n Bílslys breytti öllu K aupverðið á honum var fordæmt af ítölskum fjöl- miðlum, stuðningsmönn- um annarra félaga og Vatíkaninu, sem sagði það hreinlega aðför að heiðri og sæmd ærlegrar vinnu. Þrátt fyrir fárið og baráttuna um undirskrift hans í byrjun tíunda áratugar- ins, þá hringir nafnið Gianluigi Lentini ekki bjöllum hjá mörg- um knattspyrnuáhugamönnum. Í það minnsta ekki þegar litið er til þess að í þrjú ár bar ítalski kant- maðurinn þá byrði að vera dýr- asti knattspyrnu maður í heimi. Ólíkt mörgum sem hlotið hafa þann titil síðan þá fór Lentini ekki í sögubækurnar sem einn besti knattspyrnumaður sögunnar. Örlagaríkt kvöld í ágúst 1993 sá til þess. DV rifjar upp sögu þessa lítt þekkta nafns á lista yfir þá dýrustu. Peningalestin á Ítalíu „Hann var ótrúlega hæfileikaríkur. Fljótur, sterkur og áræðinn. Virki- lega góður,“ sagði Fabio Capello eitt sinn um Lentini sem hann keypti til AC Milan frá Torino á sem nem- ur 13 milljónir punda árið 1992. Hann varð með því dýrari en Ro- berto Baggio, Jean-Pierre Papin og Gianluca Vialli. Í byrjun tíunda áratugarins voru peningarnir í heimsfótboltanum á Ítalíu. Þangað fóru stærstu nöfnin og bestu leikmennirnir sem stór- liðin greiddu stórfé fyrir og fengu ríkulega launað. Um nokkra hríð hafa peningarnir leitað til Englands en til samanburðar á fjárhagsstöðu ensku úrvalsdeildarinnar og ítölsku deildarinnar á þessum tíma þá varð Roy Keane, dýrasti leikmaður í sögu Bretlands, árið 1993, þegar Manchester United keypti hann frá Nottingham Forest á 3,75 milljónir punda. Upphæðirnar áttu auðvitað bara eftir að hækka en ítölsku stór- liðin voru í allt öðrum fjárhagsleg- um styrkleikaflokki en þau ensku á þessum tíma. Uppalinn hjá Torino Gianluigi Lentini fæddist í mars 1969 í Túrín. Hann varð fljótt áhugamaður um knattspyrnu og lék með yngri flokkum Tor- ino sem barn og unglingur. Von- ir voru bundnar við hann en hann lét ekki mikið fyrir sér fara í fyrstu. Árið 1986 var hann orðinn við- loðinn aðalliðið en fékk fá tækifæri enda ungur að árum. Tímabilið 1988/89, þegar hann var átján ára, var hann sendur að láni til Ancona sem þá var nýkomið upp í Serie B. Hann lék 37 leiki það tímabil og tók stórstígum framförum, styrkt- ist og þroskaðist. Lentini var kant- maður sem kunni best við sig úti á vinstri vængnum og sýndi mikla hæfileika. Þegar hann sneri aftur til Torino tímabilið 1989/90 hafði fé- lagið fallið um deild og misst alla sína bestu leikmenn. Lentini steig upp, lék vel, skoraði sex mörk og hjálpaði Torino að vinna Serie B og sæti í efstu deild á nýjan leik. Rísandi stjarna Næstu tvö tímabil, undir stjórn Em- iliano Mondonico, varð Torino að miklu spútnikliði sem vann bæði gamla Mið-Evrópubikarinn svo- kallaða (Mitropa Cup) árið 1991, komst í úrslit UEFA-bikarsins 1992 og náði þriðja sæti í Serie A tímabil- ið 1991/92. Og Lentini var ein af stjörnum liðsins ásamt Enzo Scifo og Roberto Policano. Þremenn- ingarnir á miðjunni skoruðu sam- tals 20 mörk í deildinni það tímabil. Frammistaða Lentini fór ekki fram hjá stórliðunum og strax eftir síð- asta leik tímabilsins voru tvö þeirra stærstu farin að sverma fyrir hon- um. Félagsskiptaglugginn í Serie A var eins og villta vestrið á þess- um árum. Árið 1990 varð Roberto Baggio dýrasti leikmaður sögunn- ar þegar Juventus keypti hann á 8 milljónir punda frá Fiorentina. Sumarið 1992 var samt galið. Metið hafði þegar fallið í tvígang. Fyrst þegar Papin var keyptur til AC Milan á 10 milljónir punda og svo aftur þegar Juventus keypti Vialli á 12 skömmu síðar. Og þessi tvö félög voru stað- ráðin í að landa Lentini líka. Til- boð og gagntil- boð gengu fé- laga á milli í rúman mánuð og Torino var í bílstjórasætinu. Upphæðirnar sem boðið var í Lentini hækkuðu sífellt og ljóst varð að félagið gæti ekki haldið honum. Dýrastur í sögunni Fabio Capello hafði tekið við af Arrigo Sacchi sem knattspyrnu- stjóri Milan árið 1991 og vildi ólm- ur búa til sitt eigið lið og losna úr skugga forverans. Capello náði að sannfæra Silvio Berlusconi eiganda Milan að greiða sem nem- ur 13 milljón- um punda fyr- ir Lentini, skáka þar með Juvent- us og gera Lentini óvænt að dýrasta leikmanni knattspyrnu- sögunnar. Viðbrögð- in voru gríðar- leg og langt í frá jákvæð að öllu leyti. Fjölmiðl- ar sögðu ítölsku peningalestina stjórnlausa, Vatíkanið fordæmi kaupverðið sem fyrr segir og stuðnings- menn Torino voru bálreiðir yfir því að sjá á eftir uppalinni hetju og lykilmanni. Eig- andi félagsins, Gian Mauro Borsan, þorði ekki út af heimili sínu svo Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Einn sá dýrasti Árið 1992 komst Gianluigi Lentini á lista yfir dýrustu knattspyrnumenn sögunnar þegar AC Milan greiddi Torino 13 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Ógnarsterkt lið AC Milan var stjörnum prýtt tímabilið 1992/93. Lentini er fyrir miðju í fremstu röð. Dýrastur allra. Rísandi stjarna í Torino Lentini ólst upp í Torino þar sem frammistaða hans vakti athygli stórliða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.