Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Blaðsíða 29
Helgarblað 20.–23. maí 2016 Skrýtið Sakamál 25
Kynningarafsláttur
í verslun Lyfsalans
Óþekkta nafnið á lista þeirra dýrustu
Dýrustu leikmenn sögunnar
Ár Leikmaður Kaupverð í milljónum punda
1990 Roberto Baggio £8m
1992 Jean-Pierre Papin £10m
1992 Gianluca Vialli £12m
1992 Gianluigi Lentini £13m
1995 Alan Shearer £15m
1997 Ronaldo £19,5m
1998 Denilson £21,5m
1999 Christian Vieri £32,1m
2000 Hernán Crespo £35,5m
2000 Luis Figo £37m
2001 Zinedine Zidane £46,6m
2009 Kaká £56m
2009 Cristiano Ronaldo £80m
2013 Gareth Bale £86m
Samantekið af Bleacher Report UK.
dögum skipti eftir á, þar sem æfir
mótmælendur fylltu götur og
höfðu umkringt heimili hans. For-
ráðamenn félagsins gátu þó and-
að léttar að hafa ekki selt Lentini
til nágrannanna og erkifjend anna
í Juventus. Þá fyrst hefði allt orðið
vitlaust.
Löngu síðar átti eftir að koma
í ljós, í það minnsta ásakanir, um
grunsamlegar og ólöglegar greiðsl-
ur frá Berlusconi til Borsano, í
gegnum erlenda bankareikninga.
Sem sagan segir að hafi liðkað fyrir
viðskiptunum.
Lentini lét þetta umstang ekki
á sig fá. Hann skoraði 7 mörk og
lagði enn fleiri fyrir liðsfélaga sína
tímabilið 1992/93. AC Milan rúllaði
yfir Serie A og tapaði aðeins tveim-
ur leikjum á leiðinni að meist-
aratitlinum. Tímabilinu lauk þó
með vonbrigðum því Milan tapaði
fyrir Marseille í úrslitaleik hinn-
ar þá nýstofnuðu Meistaradeild
Evrópu.
Bílslys breytti öllu
Í ágúst 1993 kom vendipunktur-
inn í bæði ferli og lífi Gigi Lentini.
Hann var á heimleið eftir æfinga-
mót í Genoa þegar hann lenti í
alvarlegu bílslysi. Hann missti
stjórn á Porche 911 sportbíl sínum
á 200 kílómetra hraða, endaði utan
vegar, fór fjölmargar veltur og stóð
bifreiðin að lokum í ljósum log-
um. Vörubílstjóri kom Lentini til
bjargar, sem var fluttur á sjúkrahús
með alvarlega höfuðáverka. Hann
höfuðkúpubrotnaði, slasaðist á
auga og var haldið sofandi í um tvo
daga. Minna fór fyrir fréttum af því
að kraftaverk væri að Lentini væri
á lífi, heldur var athygli fjölmiðla á
hugsanlegu fjárhagslegu tjóni AC
Milan.
Varð aldrei samur
Annað kraftaverk var þó að strax í
ársbyrjun 1994 var Lentini byrjaður
að æfa aftur. En það var ljóst að
hann var ekki sami leikmaðurinn
og hafði hrellt varnir andstæðing-
anna af vinstri kantinum árin á
undan.
Hann var plagaður af minnis-
leysi, svima og sjóntruflunum utan
vallar og eftirköst slyssins komu
niður á frammistöðu hans á vellin-
um. Þegar á leið tímabilið 1993/94
var forráðamönnum AC Milan og
liðsfélögum Lentini orðið ljóst að
hann yrði aldrei samur.
„Þú gast séð að hæfileikarnir,
hvernig hann var fyrir slysið, jafn-
vægið og annað, var gjörbreytt,“
minntist Marcel Desailly, liðsfélagi
hans eitt sinn í viðtali.
Í úrslitaleik Meistaradeildarinn-
ar 1994 komst hann aðeins á bekk-
inn, þrátt fyrir meiðsli og þunn-
skipaðan hóp sökum takmarkana á
notkun erlendra leikmanna. Milan
lagði Barcelona 4-0 og Lentini fékk
verðlaunapening, en hans tími var
liðinn.
Fjaraði út
Næstu tvö tímabil hjá Milan var
hann í algjöru aukahlutverki. Kom
aðeins við sögu í 26 leikjum. Hann
var lánaður til Atalanta tímabil-
ið 1996/97 og síðan seldur aftur til
uppeldisfélagsins Torino árið 1997
á aðeins 2 milljónir punda. Þar
kom hann við sögu í 93 leikjum til
ársins 2001 og flakkaði síðan milli
sex neðri- og utandeildarfélaga árin
á eftir. Þótt ótrúlegt megi virðast þá
lagði hann ekki skóna formlega á
hilluna fyrr en 2012.
Verðlaunaður ferill
Það var árið 1995 skilaði kvöð-
inni sem fylgdi því að vera dýrasti
knattspyrnumaður sögunnar þegar
Newcastle greiddi Blackburn 15
milljónir punda fyrir Alan Shearer.
Þrátt fyrir að ferill Lentini verði ávallt
skilgreindur út frá kaupverðinu og
bílslysinu sem breyttu lífi hans og
margir telja það sorgarsögu að hann
hafi aldrei orðið sú alheimsstjarna
sem væntingunum fylgdi – þá verð-
ur ekki hjá því litið, þegar horft er til
baka, að hann á fleiri verðlaunagripi
en margir. Einn Meistaradeildartitil,
þrjá ítalska meistaratitla, þrjá ítalska
bikartitla og einn evrópskan Ofur-
bikar á ferilskránni sem og 13 lands-
leiki með Ítalíu á ferilskránni. n
Forsprakki Sex Money Murder bíður réttarhalda
K
viðdómur (e. grand jury)
hefur ákveðið að ákæra
forsprakka Sex Money
Murder-gengisins, SMM,
sem starfar á austurströnd
Bandaríkjanna. Maðurinn heitir
Kenneth Eric Jackson en er einnig
þekktur undir götunafninu KG the
God. Honum er gefið að sök að hafa
úr fangelsi fyrirskipað að láta myrða
níu mánaða gamlan dreng.
Voðaverkið var framið þann 10.
maí 2014. Þá sat Jackson á bak við
lás og slá í Georgíu en stýrði mönn-
um sínum með síma sem honum
hafði tekist að smygla inn í fangels-
ið. Í gegnum hann er hann sagður
hafa fyrirskipað mönnum sínum að
taka litla drenginn af lífi. Aðgerðin
var hugsuð sem hefnd gegn frænda
litla drengsins, sem er sagður hafa
tengst láti meðlims Sex Money
Murder. Hvorki barnið né foreldrar
þess höfðu sér neitt til saka unnið.
Fjölmörg ofbeldisbrot
Jacksons bíður nú ákæra fyrir marg-
víslega glæpi. Hann er grunaður
um tilhæfulaust morð (e. malice
murder) en í Georgíu nær það yfir
morð sem framin eru án nokkurr-
ar ástæðu. Hann er auk þess grun-
aður um margar líkamsárásir og
ýmis önnur ofbeldisbrot. Með hon-
um eru ákærðir Marco Watson og
Christopher Florence, en þeim er
gefið að sök að hafa framkvæmt
ódæðið. Þeir eru báðir meðlim-
ir klíkunnar. Fjórði maðurinn,
Devin Thomas, kemur einnig fyrir
í ákærunni, eins og Eunice English
en þau eru ekki talin hluti af SMM.
Fimmenningarnir bíða allir rétt-
arhaldanna en ákæruliðirnir eru að
lágmarki fimmtán talsins, að því er
fram kemur í frétt 11alive.com.
Flúðu inn á bað
Saksóknari segir að Thomas,
Watson og Florence hafi brotist
inn á heimili barnsins, eftir skipan-
ir Jacksons í maí í hittifyrra. Móð-
ir barnsins, Tanyika Smith, amma
þess og fjölskylduvinur voru á
heimilinu, ásamt barninu, þegar
árásin var gerð. Heimilisfólkið
flúði inn á baðherbergi þegar það
varð vart við innbrotið og leitaði
þar skjóls og hringdi þaðan í lög-
regluna. Byssumennirnir brut ust
inn á baðherbergið og skutu þar
litla drenginn, en allir heimilis-
menn urðu fyrir skoti enda var kúl-
unum látið rigna. Drengurinn einn
lést af sárum sínum. n
baldur@dv.is
Lét myrða níu
mánaða dreng
Látinn
Drengurinn
var aðeins 9
mánaða gam-
all þegar hann
var skotinn.
Ofbeldismaður
Kenneth Eric
Jackson bíður
dóms.