Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2016, Síða 33
Helgarblað 20.–23. maí 2016 Menning 29
L
istasafn Reykjavíkur – Ás-
mundarsafn, Byggðasafn
Skagfirðinga og sýningin
Sjónarhorn í Safnahúsinu við
Hverfisgötu eru tilnefnd til íslensku
safnaverðlaunanna 2016. Þetta var
tilkynnt í tilefni af alþjóðlega safna-
deginum, 18. maí. Íslensku safna-
verðlaunin eru viðurkenning sem
veitt eru annað hvert ár íslensku
safni fyrir framúrskarandi starfsemi.
Almenningur, stofnanir og félaga-
samtök gátu sent inn ábendingar
um safn eða einstök verkefni á
starfssviði safna sem þykja til eft-
irbreytni og íslensku safnastarfi til
framdráttar, en valnefnd valdi þrjár
tilnefningar sem eiga möguleika á
að hljóta viðurkenninguna og eina
milljón króna. Verðlaunin verða
veitt við hátíðlega athöfn þann 13.
júlí á Bessastöðum. n
verk er ekkert að útskýra sjálft sig,
það er ekkert verið að leiða mann
nákvæmlega í gegn, það brun-
ar bara áfram og þú getur annað-
hvort haldið fast eða dottið útbyrð-
is.“
Leikritið brunar áfram og end-
ar í nokkurs konar geð- og/eða sið-
rofi, og bendir einn gagnrýnandi á að
þarna fari að birtast vísanir í aðra
karaktera úr öðrum leikverkum sem
fara að skjóta upp kollinum: Mary
Poppins, Kenneth Máni og Skarphéð-
inn úr Njálu.
„Það var í raun ekki planað, ekk-
ert sérstaklega útpælt eða meðvitað
af okkar hálfu. Bergur [Þór Ingólfs-
son leikstjóri] gaf okkur lausan taum-
inn á köflum. Á ákveðnum stað fer
svo að flosna svolítið upp úr verkinu,
persónurnar verða veruleikafirrt-
ari eftir því sem á líður og undir lok-
in er verkið eiginlega komið í algjört
rof. Þá fara mörkin að hverfa, milli
leikenda og áhorfenda, leikara og
persóna, og persónanna innbyrðis –
það er kannski skýrast hjá mér, þar
sem ég er skyndilega orðinn annar
maður, svo báðir í einu og allt í einu
einhver annar. Hver er hvað verður
algjörlega óljóst. En ég held að Skarp-
héðins-tengingin hjá mér komi rosa-
lega mikið í gegnum skeggið. Þegar
ég er reiður með skegg er ég greini-
lega bara Skarphéðinn í huga fólks –
og það er bara hið fínasta mál,“ segir
Hjörtur.
Gamlir þreyttir bjúgsokkar
Hvað er það við leiklistina sem heill-
ar þig?
„Það er bara svo sjúklega gaman –
eða gaman er kannski ekki rétta orðið.
Það sameinar svo margt sem mér
finnst skemmtilegt í lífinu. Þetta er
rosalega mikil stúdía á fólki og samfé-
lagi, maður verður partur af einhverri
umræðu, leikhúsið og listir eru mikil-
vægur partur af samfélaginu, partur af
því hvernig við tölum saman, hvernig
við skoðum okkur sjálf og okkar sam-
félag, fáumst við stóru spurningarn-
ar,“ segir Hjörtur og bendir á hvernig
bæði Njála og Auglýsing ársins hafi
brugðist við málefnum líðandi stund-
ar, sama dag og Panamaskjölin voru
opinberuð stöðvaði leikhópur Njálu
sýningu til að syngja þjóðsönginn og
á sama tíma breytist möguleg merk-
ing Auglýsingar ársins.
„Mér fannst áhugavert að þetta
leikrit sem innihaldslega var tilbú-
ið fyrir löngu uppfærðist mikið við
tíðindin. Þegar Panamaskjölin birt-
ust og Ólafur Ragnar mætti galvaskur
á svæðið til að bjarga þjóðinni. Allt
í einu varð verkið þrjátíu sinnum
meira relevant – og það var samt mjög
relevant áður. Þarna birtast allir þess-
ir helvítis bjúgsokkar í þjóðfélaginu,
þessir útúrtættu, gömlu þreyttu póli-
tíkusar sem geta bara ekki látið okk-
ur í friði, verða alltaf að koma og fá að
segja sitt, álíta ómögulegt að halda
landinu gangandi án þess að þeir
séu með puttana í öllu. Það er svo
gaman þegar leikhúsið er að fást við
hluti sem eru í gangi nákvæmlega þá
stundina. Maður fer að hugsa um at-
burðina frá fleiri sjónarhornum en
maður hefði annars gert. Það er eitt
að sjá þetta bara í sjónvarpinu, mæta
á mótmæli og skoða á þetta utan
frá. Það er annað að vera í verki sem
skoðar þetta innan frá, inni á auglýs-
ingastofunni, inni í ræðunum, inni í
bullinu,“ segir Hjörtur.
Nú þegar Auglýsing ársins líður
undir lok taka við leikhúsferð utan
með Mávinn, æfingar á Bláa hnettin-
um sem verður frumsýnt næsta haust,
eins og nýtt verk sem nefnist Flick. Þá
verður Njála sýnd áfram og Hjörtur
getur því ekki rakað af sér vígalegt
Skarphéðinsskeggið um stund.
„Njála kemur aftur næsta vetur
en þegar það er búið í byrjun des-
ember ætla ég að raka mig. Ég ætla
samt að stytta yfirvaraskeggið í sum-
ar, því það er svo mikið vesen. Ég þarf
eiginlega að borða í einrúmi því það
er svo sóðalegt, sérstaklega ef ég vil
borða hamborgara eða pylsu sem ég
get ekkki skorið niður í litla bita,“ segir
Hjörtur og hlær. n
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er
komin mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3-5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
Hreinsun á
jakkafötum
3.160 kr.
Hringbraut 119 - s: 562 7740 - Erum á Facebook
Opið
Virka daga
08:30-18:00
laugardaga
11:00-13:00
„Þetta verk er ekk-
ert að útskýra
sjálft sig, það brunar bara
áfram og þú getur ann-
aðhvort haldið fast eða
dottið útbyrðis.
Grande
Bláskjár
Vígalegur Hjörtur fær
ekki að raka skeggið af
sér fyrr en sýningum á
Njálu lýkur næsta vetur.
Tilnefningar til safnaverðlauna
Ásmundarsafn, Sjónarhorn og Byggðasafn Skagfirðinga tilnefnd
Byggðasafn Skagfirðinga
Ásmundarsafn
Sjónarhorn í Safnahúsinu