Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 11
Helgarblað 10.–13. júní 2016 Fólk Viðtal 11 „Ég fraus bara og ætlaði að drífa mig út, en þá dregur hann mig inn. Klárar það sem hann átti eftir að klára. Hrækir framan í mig og dreifir blóðinu mínu og hrákanum sínum yfir andlitið á mér. Hendir mér svo inn á bað og skipar mér að þrífa á mér hárið og andlitið.“ Hún segist því næst hafa þurft að múta manninum til að komast úr úr íbúðinni. „Ég gaf honum tvo valkosti: annaðhvort myndi hann hleypa mér út eða ég myndi öskra þangað til ná- granni eða einhver annar hringdi á lögregluna,“ segir hún. Telur hún að sú hótun hennar hafi alið á hræðslu hjá manninum þar sem hann var við að ljúka reynslulausn, og hafi hann því hleypt henni út að lokum. Hún segir að hann hafi þó ekki séð neitt athugavert við hegðun sína, og þegar hún hafi tjáð honum að hún myndi aldrei koma nálægt honum aftur hafi hann ansað: „Hvað gerði ég eigin- lega?" Hundrað prósent alvara „Ég lofaði sjálfri mér því að ég myndi ekki ala barnið mitt upp við svona aðstæður. Ég fór ekki af að því ég vildi það, heldur af því að ég þurfti þess,“ segir Embla því næst og bætir við að fyrsti mánuðurinn eftir að hún sleit sambandinu við manninn hafi verið „hræðilegur“. „Þetta var eins og að læra að ganga upp á nýtt. Ég var bara ein taugahrúga, alltaf að vona að hann myndi breytast.“ Hún segir manninn áfram hafa reynt að hafa samband við hana, og að hann hafi sífellt komið upp með nýjar og nýjar ástæður. „Hann kom til dæmis heim til mín, eingöngu til þess að segja mér hvað ég væri ógeðsleg. Hann fór ekki fyrr en ég var gjörsamlega niðurbrotin.“ Hún segir manninn enn fremur hafa þrýst á hana eftir að hún tók þá ákvörðun að opna sig um samband þeirra við fólk. Hann hafi þá spurt hana hvort það væri nauðsynlegt. „Ég sagði honum að við viss- um bæði að það væru mun fleiri hlutir sem hann gerði, hlutir sem eru ekki nethæfir, og hann játaði því. Svo lét ég hann vita af því að ef hann reyndi aftur að hafa sam- band þá myndi ég uppljóstra öllu og fleiru til lögreglu,“ segir hún en hún kveðst vera orðin vongóð um að þurfa ekki að eiga í frekari sam- skiptum við manninn. „Ég hef fengið frið og ég veit að ég mun fá frið þar sem að hann veit núna að mér er hundrað prósent alvara með því sem ég er að gera.“ Ekki hægt að leggja fram kæru „Það var ótrúlega erfitt að ganga í gegnum allar þessar tilfinningar því maður er svo fljótur að gleyma því slæma hjá fólki sem maður elskar. Ég gekk um öll gólf skjálfandi úr hræðslu og hélt áfram að lifa eftir hans reglum og ég geri það ennþá smávegis í dag,“ segir Embla. Hún kveðst vera heppin að eiga góða að: hennar nánustu hafi náð að hindra hana í að leita til mannsins á ný. „Ég fékk líka ráðgjafa í skólanum sem er yndislegur. Hún hjálpaði mér að öðlast skilning á þessu öllu saman og hegðun ofbeldismanna og þá small þetta allt saman.“ Embla kveðst hafa tekið þá ákvörðun á dögunum að leggja fram kæru á hendur manninum fyrir heimilisofbeldi. „Ég áttaði mig á því að ég væri að „kóa“ með ofbeldis- manni og það mun ég aldrei gera,“ segir hún. Ekkert varð þó úr þess- um áætlunum Emblu en hún kveðst hafa fengið þau svör hjá lögreglu að ekki væri hægt að leggja fram kæru í málinu þar sem ekkert áverkavott- orð er til staðar. Meðvirknin enn til staðar Hvernig er staðan á þér í dag? „Ég er á góðu róli, ég er þakklát fyrir að vera komin frá þessu. Eins og vinur minn sagði þá er frelsið það mikilvægasta sem við höfum í þessu lífi. Ég er búin að koma frá mér því sem ég þurfti og ég ætla mér ekki að dvelja við þetta. Þetta fékk mig til að hugsa um sjálfa mig og strákinn minn og mín markmið. Það er líka gott að geta hitt vinkonurnar og fengið að vera ég sjálf. En auðvitað er þetta erfitt og með- virknin í hans garð er ennþá mikil.“ Af hverju langar þig að koma fram með þessa frásögn? „Aðalástæðan er reiðin í minn garð, fyrir að hafa ekki farið á spítala og fengið áverkavottorð. Ég var svo reið að geta ekki kært hann, vegna þess að þá hefði ég hugsanlega getað varað aðrar stelpur við svo þær þyrftu ekki að lenda í því sama og ég.“ Aðspurð um hverju hún vilji helst koma á framfæri segist Embla hvetja einstaklinga til að vera meðvitaðir og lesa sér til um helstu persónueinkenni ofbeldismanna og -kvenna, enda geti meðvirknin verið ótrúlega blind- andi afl. „Leitið aðstoðar, til dæmis í Kvennaathvarfinu og fáið ráðgjafa þar. Hlúið að sjálfum ykkur, því enginn á skilið að lifa í svona ótta.“ n Andlegt ofbeldi oft lúmskt Á heimasíðu Kvennaathvarfsins kemur meðal annars fram: Andlegt ofbeldi karla gagnvart konum verður þegar sjálfsmynd konunnar fer að brotna niður og maður nýtir sér það sem stjórntæki. Stjórnunin felst þá í því að maðurinn hefur meiri áhrif á líðan, hegðun og skoðanir konunnar en hún sjálf. Margar konur sem koma í Kvennaathvarfið búa við andlegt ofbeldi til jafns við líkamlegt og kynferðislegt en þó að sár utan á líkamanum grói fljótt gróa ósýnileg ör andlegs ofbeldis seint. Fleiri konur leita stuðnings hjá Kvennaathvarfinu vegna andlegs ofbeldis en líkamlegs og er það til marks um hversu alvarlegt það getur verið. Andlegt ofbeldi getur verið mjög lúmskt og ferlið tekið mörg ár án þess að nokkurn tímann séu lagðar hendur á konuna. Án þess að fólk átti sig á því getur ofbeldið verið orðið mjög gróft en viðmiðin hafa færst til og það sem eru óeðlileg samskipti þykja hversdagsleg. Samskipti geta byrjað með ástúð og hlýju og til dæmis afbrýðisemi þótt vottur um ást og umhyggju. Þegar kona er farin að breyta hegðan sinni og lífi sínu þannig að maðurinn þurfi ekki að hafa ástæðu til afbrýðisemi, til dæmis að forðast að tala við aðra karlmenn, er maðurinn farinn að stjórna konunni og ástandið orðið óeðlilegt. Sömuleiðis ef konunni er sagt hvað hún eigi að segja og hugsa, í hverju hún eigi að vera og svo framvegis. Andlegt ofbeldi karla gegn konum getur birst með mörgum hætti og má þar nefna einangrun, efnahagslega stjórnun, hótanir og ógnanir og tilfinningalega kúgun. Rúmlega 90 prósent þeirra kvenna sem leituðu til Kvennaathvarfsins á seinasta ári nefndu andlegt ofbeldi meðal ástæðna dvalar. Niðrandi athugasemdir Dæmi um setningar sem Embla fékk að sögn að heyra frá manninum.„Þú ert það feitasta sem ég myndi fara í. „Ég er það besta sem þú munt fá. „Þú ert ógeðsleg. „Þú ert hóra, all- ir vöruðu mig við þér. „Það mun enginn elska þig, ekki einu sinni foreldrar þínir gera það. „Þú munt bara enda með níðingi. „Ég get ekki horft framan í þig, þú ert svo ógeðsleg. „Ef þú ferð í annan strák, þá skýt ég þig í hausinn. „Oft á dag fékk ég spurninguna „hver á þig?“ Mæðgin á góðri stundu. Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Þurrkur í augum? Thealoz augndropar Fæst í öllum helstu apótekum. Ég hef verið að glíma við augnþurrk. Ég nota Thealoz gervitár af því mér finnst þau smyrja augun vel, þau eru með langvarandi virkni, unnin úr náttúrulegum efnum og þau eru laus við öll aukaefni sem mér þykir kostur. Heiðdís Björk Helgadóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.