Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 10
Helgarblað 10.–13. júní 201610 Fólk Viðtal
n Vill vera öðrum víti til varnaðar n Segir mikilvægt að þekkja persónueinkenni ofbeldismanna
Þ
ú ert hóra, allir vöruðu
mig við þér“, „Ef þú ferð í
annan strák, þá skýt ég þig
í hausinn“ og „Ég get ekki
horft framan í þig, þú ert
svo ógeðsleg.“ Þetta eru dæmi um
athugasemdir sem Embla Rún Jó-
hannesdóttir kveðst hafa fengið að
heyra meðan á sambandi hennar
og fyrrverandi kærasta hennar stóð.
Segist hún á þeim tíma hafa orðið að
eign mannsins; hann hafi stýrt henni
á allan hátt og verið drifinn áfram
af sjúklegri afbrýðisemi. Steininn
hafi tekið úr þegar hann beitti hana
líkam legu ofbeldi en sökum þess að
áverkavottorð er ekki til staðar getur
Embla ekki lagt fram kæru í málinu.
Í samtali við DV segist hún vonast til
þess að frásögn hennar muni vekja
fólk til umhugsunar um birtingar-
myndir ofbeldis í samböndum, enda
sé um sé að ræða gífurlega falið þjóð-
félagsmein þar sem gerendurnir eru
oftar en ekki úlfar í sauðargæru.
„Kom vel fyrir í fyrstu“
Embla er 21 árs og móðir þriggja ára
gamals drengs. Eftir að sonur hennar
kom í heiminn vildi hún tryggja þeim
mæðginum örugga framtíð. „Þegar
hann fæddist ákvað ég að gera allt
sem ég gæti til að veita honum gott
líf, og ég vildi líka vinna úr fortíðinni.
Þannig að ég fór í endurhæfingu, ég
byrjaði að fara á Hvíta bandið og fór
svo í skóla sem heitir Hringsjá,“ segir
hún.
Umræddum manni kynntist hún
í gegnum Facebook. Hún segir hann
hafa komið vel fyrir við fyrstu sýn:
hann hafi verið duglegur í vinnu,
og mikill „reddari“, góður við sína
nánustu og ávallt til í að rétta fólki
hjálpar hönd. Þá hafi hann verið góð-
ur við son hennar. Hún hafi þó kom-
ist að því síðar meir að hann var á
reynslulausn og að hann hefði setið
inni vegna ofbeldisbrots.
„Það var allt fullkomið, eins og í
ævintýri. Ég hélt barasta að ég væri
búin að finna manninn sem ég ætl-
aði að eyða lífi mínu með.“
Hún segir að maðurinn hafi orðið
ólmur í að skrá sig og hana í opin-
bert samband á Facebook og þrýst á
hana þar til hún gaf eftir. Segir hún
að um leið hafi hún orðið að „eign“
hans. Þannig hafi hún oft á dag fengið
spurninguna: „Hver á þig?“ Hún segir
að í fyrstu hafi hún eingöngu litið á
hegðun mannsins sem „krútt lega“ af-
brýðisemi, en hlutirnir hafi síðan far-
ið að taka á sig sífellt ýktari mynd.
„Um leið og við skráðum okkur
í samband opinberlega, þá sá ég
hættumerkin. Þegar ég horfi til baka
þá voru þau þarna allan tímann. Ég
var bara svo heilaþvegin.“
„Líf mitt snerist um að halda
honum góðum“
Hún segir hegðun mannsins hafa
breyst verulega eftir að þau gerðu
samband sitt opinbert á samfélags-
miðlinum, og hafi hann þá sýnt á sér
aðra og dekkri hlið. Hegðun hans
hafi fyrst og fremst lýst sér í gífurlegri
afbrýðisemi og stjórnsemi.
„Ef við fórum út að borða og ég
leit upp frá matardisknum þá fór allt
í háaloft þegar við komum út í bíl af
því að samkvæmt honum þá átti ég
bara að horfa niður. Eitt skiptið fór-
um við í Elko og hittum vinkonu
mína og kærastann hennar. Ég og
vinkona mín gengum í burtu og leit-
uðum að ljósi. Það endaði í þvílíku
bulli þegar við komum út í bíl; ég átti
að hafa verið að stinga hann af og
sýna honum óvirðingu.“
Hún segir manninn jafnframt hafa
fylgst grannt með Facebook-notk-
un hennar, hann hafi hangið þar inni
á öllum stundum, og vitað meira en
hún sjálf hvað var að gerast inni á
hennar persónulegu síðu. Segir hún
manninn meðal annars hafa látið
aðra karlmenn heyra það ef þeir
sendu henni þar skilaboð og hafi hún
í kjölfarið eytt öllum karlkyns vin-
um sínum af vinalistanum á síðunni.
„Sem mér fannst ekkert mál, enda
ætlaði ég að eyða lífi mínu með hon-
um.“
Þá segir hún manninn hafa sett
henni reglur sem hún átti að fram-
fylgja. Hún hafi til að mynda aðeins
mátt vera á Facebook í símanum.
Eins hafi hann sett henni þá reglu að
taka skjáskot af öllum þeim skilaboð-
um sem hún fékk og senda honum
síðan, þar á meðal skilaboð frá barns-
föður hennar. Þá hafi hún ekki mátt
senda barnsföður sínum broskalla-
merki, því það væri merki um að hún
væri að reyna við hann. Þá segir hún
manninn hafa bannað henni að birta
sjálfsmyndir á Facebook, og að það
eina sem hafi verið á Facebook-síðu
hennar hafi verið kærastinn og svo
myndir af drengnum hennar.
„Ég vil taka það fram að ég braut
aldrei á trausti hans, ekki einu sinni,
og ég bað hann aldrei um að fá skoða
neitt hjá honum. Ég bara treysti því
að hann væri heiðarlegur.“
Hún segir að ekki hafi komið ann-
að til greina en að hlýða þessum
boðum og bönnum. „Líf mitt snerist
um það að halda honum góðum. Ég
þorði ekki öðru,“ heldur hún áfram.
Hún segir að hegðun mannsins á al-
mannafæri hafi verið allt önnur en
innan veggja heimilisins. Í kringum
annað fólk hafi hann sýnt henni ein-
tóma ást og blíðu.
„Ég get ekki horft framan í þig,
þú ert svo ógeðsleg“
Hún segir andlegt ofbeldi af hálfu
mannsins bráðlega hafa tekið á sig
fleiri myndir. „Hann kastaði hlutum,
hann hrinti mér í jörðina og hristi
mig. Þetta var bara orðið eðlilegur
hlutur í mínum augum. Ég þurfti líka
samþykki frá honum til að fá að gera
hluti. Ég mátti til dæmis ekki vera
nema í fimmtán mínútur í útskriftar-
veislu hjá vinkonu minni. Þetta var
komið út í það að ég mátti ekki vinna
lengur því hann taldi sig þéna nægi-
lega mikið til þess að geta séð um
mig,“ segir hún og bætir við að í lok
sambandsins hafi hún beðið mann-
inn um leyfi til að elta draum sinn
og keppa í módel-fitness. Hann hafi
einhverra hluta vegna sagt já en séð
um öll samskipti við þjálfara henn-
ar. Hún hafi þó fljótlega hætt við að
keppa. Hún vildi ekki að manninum
liði óþægilega.
Hún segir manninn einnig hafa
beitt hana kynferðislegu ofbeldi. „Hann
þvingaði mig oft til kynlífs og hann naut
þess. Hann reif bara nærbuxurnar mín-
ar ef hann þurfti. Ég hef þurft að sparka
honum af mér. Og þá var ég bara van-
þakklát og leiðinleg í hans augum,“
bætir hún við. Þá segir hún manninn
hafa ávarpað hana með niðrandi og
andstyggilegum hætti. Nokkur dæmi
um þær má lesa hér á opnunni.
Hún segir manninn margoft hafa
lofað að breyta hegðun sinni en
aldrei hafi neitt orðið úr þeim fögru
fyrirheitum. „Ég reyndi oft að benda
honum á að þetta væri alls ekki í lagi
og við ættum kannski að fara og ræða
við fagaðila saman. Hann lofaði alltaf
öllu fögru. Hann meira að segja pant-
aði sér tíma hjá sálfræðingi.“
„Hvað gerði ég eiginlega?“
Embla segir manninn hafa beitt hana
líkamlegu ofbeldi í eitt skipti, en það
hafi markað endalok sambands-
ins. Þá hafi þau verið nýbúin að taka
saman á ný eftir tveggja daga aðskiln-
að, og hafi maðurinn farið og grann-
skoðað síma hennar þar sem hann
taldi hana hafa verið honum ótrú
dagana tvo á undan. Þegar honum
hafi ekki tekist að finna neitt í sím-
anum hafi hann reiðst enn frekar.
Telur hún að eitthvað sem hún gerði
eða sagði þennan umrædda dag hafi
farið í skapið á manninum sem hafi
brugðist við með því að slá hana.
Þannig lýsir hún því:
Embla ásamt
syni sínum .
„Ég lofaði sjálfri
mér því að ég
myndi ekki ala barnið
mitt upp við svona að-
stæður.
„Þá skýt ég
Þig í hausinn“
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is