Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 10.–13. júní 20162 Fréttir U tankjörfundaratkvæða- greiðsla vegna forsetakjörs hefur verið færð í Perluna í Öskjuhlíð en hún hófst við embætti sýslumanns- ins á höfuðborgarsvæðinu þann 30. apríl síðastliðinn. Frá og með 9. júní fer atkvæðagreiðslan eingöngu fram í Perlunni. Staðsetningin er áhugaverð fyrir þær sakir að einn forsetaframbjóðandi hefur sterkari tengingu við bygginguna en flestir aðrir. Davíð Oddsson tók ákvörðun- ina um að hefja framkvæmdir við, lagði hornstein að og gaf Perlunni nafn sem borgarstjóri Reykjavíkur. Umdeild framkvæmd Það var á næstsíðasta kjörtímabili Davíðs sem borgarstjóri Reykja- víkur að hann ákvað að láta hefja framkvæmdir við útsýnishús Hita- veitu Reykjavíkur í Öskjuhlíð. Fram- kvæmdin var afar umdeild, ekki síð- ur en sú ákvörðun Davíðs að láta reisa nýtt og íburðarmikið ráðhús við Tjörnina. Hart var deilt á borgar- stjórann og meirihlutann á þeim tíma enda fór Perlan langt fram úr kostn- aðaráætlun. Sem dæmi þá sagði í les- andabréfi sem birtist í DV í apríl 1991 að betur færi á að kalla bygginguna Auðkúluna, fremur en Perluna. „Það nafn lýsir dálítið vel peningaaustrin- um og hinu taumlausa bruðli með fjármuni borgarbúa sem fylgir þessari vafasömu framkvæmd.“ Áhugaverð dagsetning hornsteins Eitt af síðustu verkum Davíðs sem borgarstjóri áður en hann hvarf inn á þing og í stól forsætisráðherra var að leggja hornstein að Perlunni þann 11. maí 1991. Sá hornsteinn, sem og fleiri sem Davíð lagði á árum áður, er um margt áhuga- verður. DV fjall- aði um hornsteina Davíðs þann 18. ágúst 2009 þar sem ákveðið mynstur virt- ist vera á dagsetning- um þeirra sem tengdust ýmist persónu Davíðs Odds- sonar eða fjölskyldu hans. Hornsteininn að Perlunni lagði Davíð nefnilega á afmælisdegi föður síns en hornsteininn að Ráðhúsinu í Reykjavík á afmælisdegi móður sinn- ar í athöfn 28. apríl 1991. Voru fleiri dæmi tiltekin í umfjöllun DV undir fyrirsögninni: Hornsteinar Davíðs. Þegar Davíð lagði hornstein að Perlunni var byggingin kölluð út- sýnishús Hitaveitu Reykjavíkur í Öskjuhlíð. Samkvæmt frétt Morgun- blaðsins frá athöfninni í maí 1991 upplýsti Davíð að hann myndi gera það að tillögu sinni að húsið fengi nafnið Perlan. Enda hafði hús- ið gengið undir því nafni manna á meðal um nokkurt skeið. Nokkrum dögum síðar samþykkti borgarráð nafnið. Það var síðan 21. júní sama ár, þegar Davíð var orðinn forsætis- ráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks, sem Perlan var vígð við hátíðlega athöfn. Það er því ljóst að margir tengja enn Perluna við Davíð Odds- son forsetaframbjóð- anda sem kannski treystir á að hug- renningatengslin tryggi honum nokkur atkvæði óákveðinna utan kjörfundar. Síðast í Laugardalshöll Síðastliðinn miðvikudag birtist tilkynning frá sýslu- manninum á höfuðborgarsvæð- inu um að utankjörfundaratkvæða- greiðsla vegna forsetakosninganna yrði frá og með 9. júní færð í Perluna. Þar verður opið alla daga milli 10.00 og 22.00, en lokað 17. júní. Sömuleið- is verður opið á kjördag, 25. júní næstkomandi, milli 10.00 og 17.00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrir forsetakosningarnar 2012 var utan- kjörfundaratkvæðagreiðslan ekki í Perlunni, heldur Laugardalshöll. n Atkvæði greidd Einn hornsteina Davíðs er í Perlunni þar sem utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer nú fram 8 þriðjudagur 18. ágúst 2009 fréttir KOMDU Í ÁSKRIFT Hringdu í síma 515 5555 eða sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða farðu inn á www.birtingur.is Lán til íbúðakaupa Lán til endurbóta og viðbygginga Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka) Úrræði í greiðsluvanda Að minnsta kosti þrisvar sinnum hafa hornsteinar verið lagðir að söguleg- um byggingum í Reykjavík á dögum sem tengjast Davíð Oddssyni og fjöl- skyldu hans. Þetta á með vissu við um Ráðhús Reykjavíkur og Perluna en einnig er nafn hans tengt opnun Þjóðmenningarhússins eftir endur- bætur árið 2000. Davíð lagði hornstein að Ráðhúsi Reykjavíkur við Reykjavíkurtjörn 28. apríl 1991. Þetta var tveimur dögum áður en fyrsta ríkisstjórn Davíðs, Við- eyjarstjórnin, tók formlega við völd- um, en nokkrum vikum áður en hann lét af embætti borgarstjóra. Svo vill til að hornsteininn lagði Davíð á afmælisdegi móður sinnar, Ingibjargar Kristínar Lúðvíksdótt- ur, en hún fæddist 28. apríl 1922. Bygging Ráðhússins hafði valdið miklum deilum og reyndi um tíma talsvert á borgarstjórn Davíðs Oddssonar, Skóflustunga var tekin að því 14. apríl 1988 og skyldi lokið 14. apríl 1992 eins og greipt er í stein í vegg ráðhússins. Þjóðmenningarhús 20. apríl árið 2000 opnaði Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu í Reykjavík formlega eftir gagnger- ar endurbætur. Þetta atvik er greipt í stein í húsakynnum Þjóðmenningar- hússins eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Svo vill til að þetta er sama dagsetning og dagurinn sem Davíð Oddsson var fyrst kjörinn á þing 20. apríl árið 1991 og aðeins 10 dögum áður en hann varð forsætisráð- herra í fyrstu ríkisstjórn sinni. Í skilamati Framkvæmda- sýslu ríkisins kemur fram að end- urbæturnar á Þjóð- menningarhúsinu hafi staðið allar götur frá árinu 1997 til ársins 2004 og heildarkostnaður hafi numið 415 milljónum króna. Þótt endurbótum hafi ekki lokið fyrr en árið 2004 opnaði Davíð Odds- son, þá forsætisráðherra, húsið fjór- um árum áður eins og áður segir. Á því er engin sérstök skýring en end- urbæturnar voru síðast á fjárlögum árið 2000. Þeg- ar árið 1996 var skipuð sérstök stjórn til þess að hafa umsjón með endurbót- unum á húsinu. Nefndina skipuðu Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðla- bankastjóri, Salóme Þorkelsdóttir, fyrrver- andi forseti Alþingis, og Ólafur Ásgeirsson, forstöðumaður Þjóðskjalasafnsins. Til liðs við sig fékk hússtjórnin Guðmund Magnússon, sem varð forstöðumaður þjóðmenn- ingarhússins frá 1996 til 2002. Fleiri tilvik? Davíð Oddsson og hornsteinarnir komu til umræðu á íbúafundi sem haldinn var 13. ágúst síðastliðinn í Iðnó. Til fundarins var boðað af íbú- um sem leggjast gegn byggingu nýs hótels í Þingholtunum í andstöðu við íbúana. Einar Árnason hagfræðingur rakti andóf íbúa í Tjarnargötu gegn Ráðhúsinu á sínum tíma. Hann seg- ist í framhaldinu hafa skoðað ofan- greindar dagsetningar í nýju ljósi. Davíð tók ýmis önnur mann- virki formlega í notkun, tók fyrstu skóflustungur eða lagði hornsteina að mannvirkjum á löngum ferli sem borgarstjóri og forsætisráðherra. Auk þess sem ofan er talið má nefna hornstein sem hann lagði sem borg- arstjóri að Borgarleikhúsinu 11. jan- úar árið 1986. Sem forsætisráðherra vígði hann Þjóðminjasafnið eftir endurbætur 1. september árið 2004 og Hvalfjarðargöngin 11. júlí árið 1998. Hornsteinar Davíðs Dagsetningar, sem tengjast perónu Davíðs Oddssonar og fjölskyldu hans, er að finna greiptar í stein í nokkrum sögulegum byggingum í höfuðborginni. Hornsteinar voru til dæmis lagðir að Perlunni og Ráðhúsi Reykjavíkur á afmælisdögum foreldra hans. Jóhann haukssOn blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Ráðhúsið Hornstein lagði Davíð Oddsson að ráðhúsinu á afmælisdegi móður sinnar. Perlan Hornstein lagði Davíð Oddsson að Perlunni á afmælisdegi föður síns. Þjóðmenningarhúsið Davíð Oddsson opnaði Þjóðmenningarhúsið eft- ir endurbætur sama dag og hann var kjörinn fyrsti þingmaður Reykvíkinga árið 1991. Landsfundurinn Á síðasta landsfundi Sjálfstæðiflokksins fékk Davíð sérstakt svigrúm til þess að tjá sig um þjóðmálin í frægri ræðu. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is í musteri dAvíðs 18. ágúst 2009 Perlan Eitt af kennileitum Reykjavíkurborgar er samofið borgarstjóratíð Davíðs Oddssonar. Þar mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs nú fara fram. MynD SigtryggUr Ari Fær 17 millj- arða lán Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) hefur undirritað lánssamn- ing við Landsvirkjun að fjárhæð 125 milljónir evra eða jafnvirði 17,4 milljarða króna. Lánið er til fjármögnunar á jarðvarmavirkjun orkufyrirtækisins á Þeistareykj- um. Í tilkynningu Landsvirkjunar um samkomulagið segir að fjár- mögnunin verði nýtt til að styðja við hönnun, byggingu og rekstur 90 MW virkjunarinnar. Þeista- reykir eru um 30 kílómetra suð- austur af Húsavík á Norðaustur- landi, þar sem níu vinnsluholur með 50 MW afkastagetu hafa þegar verið boraðar og prófaðar. Kýldi barnsmóður sína Karlmaður dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi H éraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi á þriðjudag karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa ráð- ist þrisvar sinnum að barnsmóður sinni. Var maðurinn einnig dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar. Dómurinn sýknaði manninn aftur á móti af hót- unum í garð konunnar. Samkvæmt dómnum var mað- urinn ákærður fyrir líkamsárás- ir á árinu 2014 þar sem hann réðst á barnsmóður sína og kýldi hana í bringuna með krepptum hnefa, sparkaði í læri hennar, tók hana hálstaki og lagði hníf upp að hálsi hennar. Einnig fyrir að hafa oftar en einu sinni hótað að drepa konuna. Í dómnum segir að konan hafi verið greind með þunglyndi, kvíðaröskun og áfallastreitu. Hún eigi erfitt með að vera ein og óttist að manninum takist ætlunarverk sitt. Var maðurinn dæmdur til að greiða barns móður sinni tæplega 440 þúsund krónur í miskabætur. Þá var maðurinn dæmdur fyrir þjófnað með því að hafa stolið flösku af Captain Morgan-rommi úr verslun Vínbúðarinnar á Akureyri. Að auki stal maðurinn Cintamani- og Adi- das-peysum í verslanamiðstöðinni Glerártorgi. Að lokum var hann dæmdur fyrir að hafa verið með 3,4 grömm af maríjúana en fíkniefnið fannst þegar hann lá á gjörgæslu- deild Sjúkrahússins á Akureyri. n Þarf að loka neyðarbrautinni Íslenska ríkið þarf að loka NA-/ SV-flug braut, sem stund um er nefnd neyðarbraut, á Reykja vík- ur flug velli inn an 16 vikna. Þetta var niðurstaða Hæsta rétt ar, en með dómn um var að mestu leyti dóm ur héraðsdóms frá í mars á þessu ári staðfest ur. Fimm dóm- ar ar Hæsta rétt ar dæmdu í mál- inu. Reykja vík ur borg hafði höfð- að mál á hend ur inn an rík is- ráðuneyt inu vegna ákvörðun- ar ráðherra um að neita að loka NA-/SV-braut inni. Héraðsdóm ur hafði kom ist að þeirri niður stöðu að Hönnu Birnu Kristjáns dótt ur, fyrr ver andi inn an rík is ráðherra, hafi verið heim ilt að gera sam- komu lag við borg ina árið 2013 og láta af hendi landsvæði sem væri í eigu rík is ins og braut in er á. Þetta þýðir að Vals menn hf., sem hefur fengið fram kvæmda- leyfi og hafið fram kvæmd ir á Hlíðar enda svæðinu, getur haldið áfram með fram kvæmd ir sín ar án þess að eiga á hættu að upp- bygg ing þar skar ist við aðflug að neyðarbraut inni. Sjálflímandi hnífaparaSkorður Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum. Einnig sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfurplett. Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. Sendum í póstkröfu Frakkastíg 10 - Sími 551 3160 - gullkistan@vortex.is - www.thjodbuningasilfur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.