Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 35
Helgarblað 10.–13. júní 2016 Skrýtið Sakamál 27 Í febrúar 1999 lágu leiðir Ians Huntley og 22 ára konu, Max- ine Carr, saman í Grimsby á Englandi. Þau fluttu til þorpsins Soham í Cambridgeskíri. Max- ine Carr fékk starf sem skólaliði í St. Andrew-grunnskólanum en Ian Huntley landaði, þegar upp var stað- ið í nóvember 2001, stöðu húsvarð- ar við Soham Village College. Þess er vert að geta að Huntley hafði fyr- ir þennan tíma sætt rannsókn vegna kynferðisglæpa og innbrota. Skutust eftir sætindum Af Maxine er það að segja að með henni og tveimur tíu ára stúlk- um í grunnskólanum, Holly Wells og Jessicu Chapman, tókust ágætis kynni. Helgina 3.–4. ágúst 2002 dró til tíðinda. Maxine skrapp til Grims- by til að heimsækja móður sína en Ian Huntley varð eftir – aleinn heima í húsvarðarbústaðnum þar sem þau höfðu búið sér heimili. Um klukkan 17.00, 3. ágúst, voru Holly og Jessica í grillveislu heima hjá Holly. Upp úr klukkan sex fóru þær úr veislunni til að kaupa sér sælgæti og var gengið fram hjá heimili Huntleys og Max- ine. Talið er að Huntley hafi talið stúlkurnar á að koma inn, þrátt fyrir að Maxine væri ekki heima. Myndaðar í Manchester-peys- um Hvað sem þeim vangaveltum líður þá er ljóst að korter yfir sex síðdeg- is 3. ágúst myrti Huntley Holly og Jessicu. Í áðurnefndri grillveislu og hafði verið tekin af þeim stúlkun- um íklæddum Manchester United- peysum. Sú ljósmynd átti síðar eft- ir að verða táknræn fyrir málið allt. Huntley losaði sig við líkin í ræsi í um 30 kílómetra fjarlægð, skammt frá athafnasvæði Konunglega breska flughersins í Lakenham í Suffolk. Huntley bar eld að líkunum í tilraun til að eyðileggja allt sem hugsanlega gæti bendlað hann við ódæðið. Leit og líkfundur Þegar ljóst var að stúlkurnar væru horfnar birti lögreglan áðurnefnda ljósmynd, en næsta hálfa mánuðinn bar fátt til tíðinda. Nema hvað Huntley kom fram í nokkrum sjón- varpsviðtölum og talaði um það reiðarslag sem dunið hefði á þessu litla samfélagi. Einnig tók Huntley þátt í leitinni að stúlkunum og dró hvergi af sér. Lík Holly og Jessicu fundust sem sagt hálfum mánuði eftir að þær hurfu og í kjölfarið voru Ian Huntley og Maxine Carr hand- tekin. Reyndar höfðu sjónir lög- reglunnar beinst að Huntley nokkru fyrr og við leit á heimili hans fund- ust vísbendingar sem renndu enn frekar stoðum undir grunsemdir lög- reglunnar. Sekur um glæp Réttarhöldin yfir skötuhjúunum hófust 5. nóvember, 2003, og Huntley stóð frammi fyrir tveimur morðá- kærum. Maxine, sem hafði ekki vit- neskju um hvað kærasti hennar hafði á samviskunni, var ákærð fyrir að leggja stein í götu réttvísinnar og aðstoða brotamann. Miðvikudaginn 17. desember, 2003, féll dómur í málunum; Huntley fékk lífstíðardóm og Maxine var sýknuð af því að hafa aðstoðað brotamann, en fékk hins vegar þriggja og hálfs árs dóm fyrir að hafa veitt Huntley falsaða fjarvist- arsönnun. Maxine afplánaði 21 mánuð og segir ekki meira af henni. Huntley reyndi í þrígang að stytta sér aldur árið 2006. Í kjölfarið fengu fangaverðir þau fyrirmæli að um- gangast hann sem fjölskyldumeðlim og láta honum þannig finnast að ein- hverjum væri annt um hann. Segir sagan. n íslensk framleiðsla Án viðbætts sykurs Gott í boostið, matargerð, baksturinn og fleira Soham-morðin Ian Huntley var sakleysið uppmálað þegar Holly og Jessica hurfu„Einnig tók Huntley þátt í leitinni að stúlkunum og dró hvergi af sér. Ian Huntley Virtist þrumu- lostinn þegar málið kom upp. Holly og Jessica Íklæddar Manchester-peysum skömmu áður en þær voru myrtar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.