Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 35
Helgarblað 10.–13. júní 2016 Skrýtið Sakamál 27
Í
febrúar 1999 lágu leiðir Ians
Huntley og 22 ára konu, Max-
ine Carr, saman í Grimsby á
Englandi. Þau fluttu til þorpsins
Soham í Cambridgeskíri. Max-
ine Carr fékk starf sem skólaliði í
St. Andrew-grunnskólanum en Ian
Huntley landaði, þegar upp var stað-
ið í nóvember 2001, stöðu húsvarð-
ar við Soham Village College. Þess
er vert að geta að Huntley hafði fyr-
ir þennan tíma sætt rannsókn vegna
kynferðisglæpa og innbrota.
Skutust eftir sætindum
Af Maxine er það að segja að með
henni og tveimur tíu ára stúlk-
um í grunnskólanum, Holly Wells
og Jessicu Chapman, tókust ágætis
kynni. Helgina 3.–4. ágúst 2002 dró
til tíðinda. Maxine skrapp til Grims-
by til að heimsækja móður sína en
Ian Huntley varð eftir – aleinn heima
í húsvarðarbústaðnum þar sem þau
höfðu búið sér heimili. Um klukkan
17.00, 3. ágúst, voru Holly og Jessica
í grillveislu heima hjá Holly. Upp úr
klukkan sex fóru þær úr veislunni til
að kaupa sér sælgæti og var gengið
fram hjá heimili Huntleys og Max-
ine. Talið er að Huntley hafi talið
stúlkurnar á að koma inn, þrátt fyrir
að Maxine væri ekki heima.
Myndaðar í Manchester-peys-
um
Hvað sem þeim vangaveltum líður
þá er ljóst að korter yfir sex síðdeg-
is 3. ágúst myrti Huntley Holly og
Jessicu. Í áðurnefndri grillveislu og
hafði verið tekin af þeim stúlkun-
um íklæddum Manchester United-
peysum. Sú ljósmynd átti síðar eft-
ir að verða táknræn fyrir málið allt.
Huntley losaði sig við líkin í ræsi í
um 30 kílómetra fjarlægð, skammt
frá athafnasvæði Konunglega breska
flughersins í Lakenham í Suffolk.
Huntley bar eld að líkunum í tilraun
til að eyðileggja allt sem hugsanlega
gæti bendlað hann við ódæðið.
Leit og líkfundur
Þegar ljóst var að stúlkurnar væru
horfnar birti lögreglan áðurnefnda
ljósmynd, en næsta hálfa mánuðinn
bar fátt til tíðinda. Nema hvað
Huntley kom fram í nokkrum sjón-
varpsviðtölum og talaði um það
reiðarslag sem dunið hefði á þessu
litla samfélagi. Einnig tók Huntley
þátt í leitinni að stúlkunum og dró
hvergi af sér. Lík Holly og Jessicu
fundust sem sagt hálfum mánuði
eftir að þær hurfu og í kjölfarið voru
Ian Huntley og Maxine Carr hand-
tekin. Reyndar höfðu sjónir lög-
reglunnar beinst að Huntley nokkru
fyrr og við leit á heimili hans fund-
ust vísbendingar sem renndu enn
frekar stoðum undir grunsemdir lög-
reglunnar.
Sekur um glæp
Réttarhöldin yfir skötuhjúunum
hófust 5. nóvember, 2003, og Huntley
stóð frammi fyrir tveimur morðá-
kærum. Maxine, sem hafði ekki vit-
neskju um hvað kærasti hennar
hafði á samviskunni, var ákærð fyrir
að leggja stein í götu réttvísinnar og
aðstoða brotamann. Miðvikudaginn
17. desember, 2003, féll dómur í
málunum; Huntley fékk lífstíðardóm
og Maxine var sýknuð af því að hafa
aðstoðað brotamann, en fékk hins
vegar þriggja og hálfs árs dóm fyrir
að hafa veitt Huntley falsaða fjarvist-
arsönnun. Maxine afplánaði 21
mánuð og segir ekki meira af henni.
Huntley reyndi í þrígang að stytta
sér aldur árið 2006. Í kjölfarið fengu
fangaverðir þau fyrirmæli að um-
gangast hann sem fjölskyldumeðlim
og láta honum þannig finnast að ein-
hverjum væri annt um hann. Segir
sagan. n
íslensk
framleiðsla
Án
viðbætts
sykurs
Gott í boostið, matargerð, baksturinn og fleira
Soham-morðin
Ian Huntley var sakleysið uppmálað þegar Holly og Jessica hurfu„Einnig tók Huntley
þátt í leitinni að
stúlkunum og dró hvergi
af sér.
Ian Huntley
Virtist þrumu-
lostinn þegar
málið kom upp.
Holly og Jessica Íklæddar
Manchester-peysum skömmu
áður en þær voru myrtar.