Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 44
Helgarblað 10.–13. júní 201636 Fólk
V
ignir Rafn Hilmarsson er
oft kallaður þokkafyllsti
bassaleikari þjóðarinnar, en
hann leikur í hljómsveitinni
Agent Fresco. Nú er hann á
leið í hnapphelduna því hann mun
ganga í hjónaband með unnustu sinni,
Hörpu Rut Sigurjónsdóttur, þann 16.
júní. Því var Vignir steggjaður af vin-
um sínum um síðustu helgi, en steggj-
unin var dálítið óvenjuleg. „Ég var bú-
inn að biðja þá um að klæða mig ekki í
einhvern búning og láta mig labba nið-
ur Laugaveginn,“ segir Vignir í samtali
við blaðamann DV. „Ég vissi að vinir
mínir væru með eitthvað í bígerð, en
það kom mér mjög á óvart þegar ég var
vakinn á laugardagsmorguninn.“
Eins og barinn
Vinir Vignis, sem eru félagar hans úr
tónlistinni í Agent Fresco, Úlfi Úlfi,
Emmsje Gauti og plötusnúðar sem
unnið hafa með hljómsveitunum,
létu gamlan kunningja úr Tuborgtv
á Þjóðhátíð í Eyjum vekja hann með
látum. „Hann er rosalega fyndinn og
við höfum hlegið mikið að viðtölun-
um hans í gegnum árin.“ Svo var kom-
inn tími til að gera Vigni kláran fyrir
daginn. „Þeir fengu förðunarfræðing
sem hefur unnið við Game of Thrones
til að koma og mála mig eins og ég
hefði verið barinn. Það var virkilega
vel gert og mörgum varð ansi óglatt af
því að sjá á mér útganginn.“
Leiðin lá svo í Reykjavík Escape,
þar sem piltarnir fengu það verkefni
að komast út úr herbergi með þema
úr kvikmyndinni Hangover, kannski
nokkuð viðeigandi. „Okkur tókst að
beita hugvitinu og komumst út hér
um bil einni og hálfri mínútu áður
en tíminn rann út. Það var ótrúlega
skemmtilegt, en líka fáránlega krefj-
andi.“
Kokkteilar
Eftir þetta var bundið fyrir augu Vign-
is og farið með hann á vinnustað-
inn sem fékk að njóta krafta hans í
11 ár. „Þeir keyrðu með mig upp í
Garðheima. Ég var settur á stól, og
bindið tekið af augunum. Þá var önn-
ur internetstjarna mætt, strákur sem
er í miklu uppáhaldi hjá okkur strák-
unum. Hann heitir Jóhann Fönix
og heldur úti rás á Youtube þar sem
hann blandar ógeðslega kokkteila og
drekkur þá sjálfur. Ég var sem sagt
kominn með einkabarþjón og fékk
meðal annars kokkteil sem var tveir
hlutar tekíla, tveir hlutar viskí og einn
dropi af Mountain Dew, og ýmislegt
fleira í þeim dúr. Eftir þetta mætti litli
matartrukkurinn frá Prikinu, og við
grilluðum okkur hamborgara.“
Auglýstur sem trúbador
Á meðan vinahópurinn lá í grænu
grasinu í Breiðholtinu fyrir utan Aktu
Taktu var útvarp í bíl með galopna
glugga stillt á Rás 2.
„Herra Gauti, með öll sín
sambönd, var búinn að koma
mér í útvarpið og þarna var
Sóli Hólm að tala um það sem
yrði á dagskránni hjá honum
þennan daginn. Hann kynnti að
gestur þáttarins yrði Vignir Rafn,
sem ætlaði að nota sumarið í að
troða upp sem trúbador. Að ég ætl-
aði að túra um landið og spila þekkta
Eurovision-slagara og Blink 182-lög.
Svo réttu strákarnir mér Fréttablaðið
og þar var auglýsing um þetta líka. Ég
fór auðvitað og spilaði og söng hjá Sóla
í þættinum og hélt andlitinu allan tím-
ann. Líklega mun ég þurfa að útskýra
næstu árin að þetta hafi verið grín.“
Áheyrendur voru sem sagt nokkurn
veginn sammála um að Vignir ætti að
halda sig við bassaleik.
Dans og spuni
„Eftir þetta fórum við og lærðum dans
við Beyoncé-lag hjá Stellu Rósen-
kranz í World Class. En um kvöldið
var svo komið að því skemmtilegasta
sem ég hef gert. Meðlimir úr Improv
Ísland mættu til okkar og ég fékk að
vera þátttakandi í spunaatriði með
þeim. Ég mæli með því fyrir alla.“
Dagurinn var sannarlega eftir-
minnilegur fyrir Vigni og vini hans.
Fimmtudaginn 16. júní verður svo
brúðkaup í Fríkirkjunni og veisla í El-
liðaárdal. Vinir Vignis ætla að troða
upp með tónlistaratriði bæði í kirkj-
unni og veislunni, en dagana á eftir
eru þeir að spila á tónlistar hátíðinni
Secret Solstice. n
Sérmerktu
persónulegu
gjafavörurnar
ALLT MERKILEGT
GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS - Sala@alltmerkileGt.iS
Pantaðu í netversluninni
Hægt er að fá bæði sent heim
eða sækja í nýju versluninni okkar!
Allt
merkilegt
10 árA
Heill
dagur
af einka-
húmor
n Steggjapartí Vignis í Agent Fresco
Hópurinn Strákarnir snæddu borgara úr Prik-trukknum.
Vignir og félagar Kátur en
ófrýnilegur í hópi góðra vina.
Kátir piltar
Í upphafi
ævintýrisins.
Dansarar Hópurinn í danstíma.
„Þeir fengu
förðunar-
fræðing sem hefur
unnið við Game
of Thrones til að
koma og mála
mig eins og ég
hefði verið barinn.
m
y
n
D
D
A
V
íð
þ
ó
r