Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 10.–13. júní 201630 Menning
Ofurhetjur stíga
niður til jarðar
Þ
að er margt líkt með Batman
vs. Superman og nýjustu Mar-
vel-myndinni. Báðar hefjast á
því að ofurhetjurnar verða að
takast á við afleiðingar af hinni miklu
eyðileggingu sem þær hafa valdið í
fyrri myndum. Hápunkturinn er
svo einvígi á milli holdtekn-
ingar ameríska draumsins
sem berst við milljarðamær-
ing sem syrgir látna foreldra
með því að hanna búninga
með alls konar vígtólum.
Og í báðum myndum er
einni hetju ofaukið,
þar Wonder-Wom-
an, hér Spider-Man.
En einhvern veginn
tekst Marvel alltaf
betur upp í bíó en DC.
Þó að titillinn beri nafn Capta-
in America er hér í raun þriðja Aven-
gers-myndin á ferð. Og þar sem sú
síðasta jaðraði við að vera ofhlaðin
er öllu nú stillt örlítið í hóf. Persón-
urnar fá tíma til að anda á milli slags-
mála og stigmögnun stríðsins verð-
ur því trúverðugri. Bardagaatriðin
eru líka raunsæis legri af ofurhetju-
mynd að vera. Engar borgir eru jafn-
aðar við jörðu, í mesta lagi einn flug-
völlur. Sterkustu hetjurnar, Hulk og
Þór, eru fjarverandi, sem gerir það
aftur að verkum að hasarinn verður
jarðbundnari. Meira að segja löggan
skiptir hér einhverju máli. Og gott ef
ekki er líka að finna einhverjar vanga-
veltur um gildi hefndarinnar, sem
oftast er talin öllum dyggðum æðri í
Hollywood-myndum
Það er helst að myndin misstígi
sig um miðbikið þegar nýr Spider-
Man er kynntur til sögunnar og virð-
ist eiga heima í annarri sögu, og vægi
Tony Stark sem örlagavalds allra
annarra er orðið heldur mikið. En
hún finnur brátt fæturna aftur í
æsispennandi lokaslag
sem tekst, ólíkt flest-
um slíkum í
ofurhetju-
myndum,
að koma
á óvart. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Captain America:
Civil War
IMDb 8,3 RottenTomatoes 90% Metacritic 75
Leikstjóri: Anthony og Joe Russo
Handrit: Christopher Markus og Stephen
McFeely
Aðalhlutverk: Chris Evans, Robert Downey
Jr. og Scarlett Johansen
e
iginlega allir okkar textar eru
um morð og limlestingar,“
segir pönkhljómsveitin
Dauðyflin sem var að gefa
út plötuna Drepa drepa hjá
þýsku pönkútgáfunni Erste Theke
Tonträger.
Dauðyflin er skipuð bassaleik-
aranum Dísu, gítarleikaranum
Júlíönu, söngvaranum Alexöndru
og trommaranum Fannari, en
þau þrjú síðastnefndu voru áður í
drungapönksveitinni Börn sem hef-
ur verið áberandi í jaðarrokksen-
unni á undanförnum árum. Þau
segja Börn þó ekki vera búna að vera
– „bara í barneignarleyfi.“
Pogo-partí og hatur
„Við byrjuðum að æfa saman
haustið 2015 og spiluðum á okkar
fyrstu tónleikum í febrúar á þessu
ári. Við gáfum út demó á kassettu í
mars og svo tókum við upp efni á sjö
tommu núna í apríl, sem er að koma
út í sumar hjá þýsku pönkútgáfunni
Erste Theke Tonträger,“ segja Dauð-
yflin í Facebook-spjalli við blaða-
mann.
Fimm laga platan Drepa drepa er
nú þegar aðgengileg á Bandcamp-
síðu sveitarinnar en kemur von
bráðar á sjö tommu vínylplötu.
„Tónlistin okkar hljómar eins og
pogo-partí og hatur. Hún hljómar
eins og Suicide og Trash, úr kvik-
myndinni Return of the Living
Dead, líta út,“ segja þau þegar þau
eru beðin um að lýsa tónlistinni fyrir
þeim sem ekki heyra.
Eins og nafn plötunnar gef-
ur til kynna eru helstu viðfangsefni
textanna morð og limlestingar en
þannig segjast þau slá á móti og fá
valdeflingu. „Stundum þegar mað-
ur upplifir sig sem lítinn og van-
máttugan vegna þess að maður til-
heyrir jaðarsettum hópi eða bara
vegna þess að maður er neðarlega
í valdapíramída kapítalísks þjóðfé-
lags, þá líður manni betur ef manni
finnst maður geta slegið aðeins á
móti. Textarnir okkar eru einungis
skrifaðir til að slá á móti, til að upp-
lifa örlitla valdeflingu og vonandi
til að þeir sem heyra tónlistina og
finna til samleiðar með okkur, upp-
lifi einnig valdeflingu.“
Útrýming þöngulhausanna
Hvaðan sækið þið innblástur?
„Við erum innblásin af draumum
um útrýmingu á þöngulhausum.“
Hverju viljið þið ná fram með tón-
listinni?
„Að Íslendingar byrji að pogo
-a og að það verði svalt að krota,
brjóta og ganga illa um, að óþekkt
verði dyggð, að stoðir samfélagsins
hrynji, að Hannes Hólmsteinn verði
sendur í gúlagið.“
Hvað er eiginlega þetta pógó?
„Það er bara svona að hoppa
um við tónlist. Við erum reynd-
ar hrifnust af tegund af pogo sem
heitir „Fiskurinn.“ Þá setur maður
hendur niður með síðum og reyn-
ir að sprikla í loftinu eins og fisk-
ur á þurru landi. Mér skilst að það
hafi verið fundið upp á Húsavík til
að dansa á tónleikum með Innvort-
is. Svona 1-2-1-2 taktur eins og við
spilum er fullkominn til að skoppa
um við. Hrindipytturinn er búinn að
vera.“
Á laugardag koma Dauðyfl-
in fram á tónleikunum „Kveikjum í
Reykjavík II“ ásamt hljómsveitunum
Antimony, Kvöl og ROHT.
„Þetta verða sjúkir tónleikar.
Þetta eru fjögur bönd sem öll gefa
út plötur undir merkinu Paradísar-
borgarplötur eða PBP. Antimony er
að hita upp fyrir Citadel-hátíðina
í London, þar sem það mun spila
ásamt Sigur Rós og einhverjum fleir-
um. Við erum að hita upp fyrir K-
Town Hardcore Fest í Kaupmanna-
höfn. Þannig að það verða allir í
feitum fíling.“
Dauðyflin, Antimony, Kvöl og
ROHT koma fram á tónleikunum
„Kveikjum í Reykjavík II“ í Lucky
Records á laugardag. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.00 og er frítt inn. n
Kála, stúta, slátra Dauðyflin voru að
gefa út sína fyrstu plötu, Drepa drepa, sem
er uppfull af skítugu pönki með ofbeldisfull-
um textum.
n Dauðyflin gefa út plötuna Drepa drepa n semja um morð
og limlestingar n gefa út hjá þýskri pönkútgáfu
hannes hólmsteinn
sendur í gúlagið
„Við erum
innblásin
af draumum
um útrýmingu á
þöngulhausum.
Slá frá sér Dauðyflin nota
pönktónlist og texta til að slá
frá sér og upplifa valdeflingu.
Tökum
leik eftir
EM leik
Frábært úrval af
foosball borðum
Pingpong.is - Suðurlandsbraut 10, Reykjavík - Sími 568 3920 & 897 1715
Áf
ram
Ísl
an
d!
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is