Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2016, Blaðsíða 4
Helgarblað 1.–4. júlí 20164 Fréttir
K
ærunefnd útboðsmála komst
á dögunum að þeirri niður-
stöðu að Strætó bs. væri
skaðabótaskylt vegna brota
á ákvæðum rammasamn-
ings um tilfallandi akstur fatlaðs fólks.
Niðurstaða nefndarinnar var að fyrir-
tækið hefði ekki farið eftir samnings-
kaupagögnum við val á akstursaðil-
um auk þess sem fyrirtækið hafi með
ólögmætum hætti nýtt sér þjónustu
aðila fyrir utan rammasamninginn.
„Það er stjórnendavandi innan
Strætó bs. sem taka þarf á en enginn
virðist hafa kjark til þess. Maður er
orðinn býsna þreyttur á því að þurfa
sífellt að kæra afglöp þessa fyrirtækis,“
segir Sveinn Andri Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður en umbjóðendur
hans voru í hópi þeirra sem kærðu
Strætó bs. Um er að ræða þriðja mál-
ið á innan við ári þar sem kærunefnd
útboðsmála þarf að slá á fingur fyrir-
tækisins og eigenda þess. Ljóst er að
aðilar málsins munu sækja rétt sinn ef
ekki nást samningar við Strætó bs. um
skaðabætur. Skaðabótakrafan gæti
hlaupið á milljörðum.
Ekki staðið við rammasamning
Forsaga málsins er sú að í maí 2014
gerðu sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu, að Kópavogi undanskild-
um, samning um að standa saman
að ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Í júní
sama ár stóð Strætó bs. fyrir útboði
sem bar heitið „Akstursþjónusta fatl-
aðs fólks og fatlaðra skólabarna“. Út-
boðið skiptist í tvo hluta, annars
vegar A-hluta: „Reglubundin aksturs-
þjónusta“ og hins vegar B-hluta: „Til-
fallandi akstursþjónusta“. Gerður var
rammasamningur við 18 aðila undir
B-hluta útboðsins og hófst akstur
samkvæmt samningunum þann 1.
janúar 2015. Þessir aðilar eru allt frá
því að vera fyrirtæki með nokkra bíla
niður í að vera einstaklingar með
einn bíl. Fyrirkomulag samningsins
var í stuttu máli á þá leið að þegar til-
fallandi akstur kom inn á borð Strætó
bs. þá átti fyrst að leita til þess sem
var með hagstæðasta tilboðið. Ef sá
aðili var ekki laus skyldi ganga á þann
næsta og svo koll af kolli. Ljóst er að
ekki hefur verið staðið við þennan
samning.
„Leikreglur eru einfaldlega ekki
virtar“
Í nýlegum úrskurði kærunefndar
kemur fram að einn rammasamn-
ingshafi hafi sent kvörtun til Strætó
bs. þess efnis að hann hafi verið verk-
efnalaus heilu dagana á sama tíma og
hann vissi að aðilar með óhagstæðari
tilboð hafi fengið verkefni á vegum
fyrirtækisins. Þá herma heimildir DV
að umdeilt tölvuverkefni, sem keypt
var af aðila sem tengist fráfarandi
framkvæmdastjóra fyrirtækisins fjöl-
skylduböndum, virki ekki sem skyldi.
Þannig greini kerfið ekki að bílar með
hagstæðari taxta séu lausir og því sé
verkefnunum komið áfram til aðila
sem bjóða ekki jafn hagstætt verð.
Eins og áður segir er hinn nýfallni
úrskurður ekki sá fyrsti þar sem
kærunefnd útboðsmála slær á
fingur Strætó bs. Þann 7. mars síð-
astliðinn felldi kærunefndin úr gildi
þá ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að
fara fram hjá rammasamningshöfum
og semja beint við leigubílstjóra um
akstur fatlaðra skjólstæðinga. Þann
13. ágúst 2015 komst kærunefndin
að því að óheimilt hefði verið að
framselja réttindi og skyldur Kynnis-
ferða ehf. undir rammasamningnum
til annars fyrirtækis, Ný-tækni ehf.,
sem ekki tók þátt í útboðinu.
„Þetta er enn einn áfellisdómurinn
yfir störfum fyrirtækisins og það er
merkilegt að sveitarfélögin skuli ekki
grípa í taumana út af þessum síend-
urteknu brotum fyrirtækisins. Leik-
reglur eru einfaldlega ekki virtar. Fyrir
hönd skjólstæðinga minna mun ég
leitast við að fá forsvarsmenn Strætó
bs. að samningaborðinu til þess að
ræða mögulegar skaðabætur, sem
væri skynsamlegast fyrir alla aðila í
stöðunni. Ef ekki þá þurfum við að fá
dómkvaddan matsmann til þess að
meta tjónið. Ef allir aðilar að ramma-
samningnum leita réttar síns þá erum
við að tala um skaðabótakröfu upp á
níu stafa tölu,“ segir Sveinn Andri. n
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
Skaðabótakröfurnar
gætu náð milljarði
n Strætó bs. skaðabótaskylt að mati kærunefndar útboðsmála n Þriðja málið sem tapast á ári
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Strætó bs. Kærunefnd útboðsmála komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið væri skaða
bótaskylt gagnvart rammasamningshöfum sem það hafði brotið á.
Sveinn Andri Sveinsson Telur að
skaðabótakröfur rammasamnings
aðila gætu náð „níu stafa tölu“.