Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2016, Blaðsíða 19
Helgarblað 1.–4. júlí 2016 Sport 19
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
IVECO Da
ily 4x4
- tilbúinn
í hvað se
m er!
Sjálfstætt
starfandi
apótek
í Glæsibæ
Opnunartími: Virka daga frá kl. 8.30-18.00
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00
Okkar markmið er að veita þér og þínum
framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
n Væntanlegt byrjunarlið Frakka hlaðið stórstjörnum n Tveir mikilvægir í banni
Knattspyrnusérfræðingurinn
Hjörvar Hafliðason segir í samtali
við DV að umræðan í Frakklandi sé
á þann veg að Frakkar eigi erfiðan
leik fyrir höndum gegn Þýskalandi í
undanúrslitum. Stuðningsmenn líti
ekki á Ísland sem ógn. Hann bendir
hins vegar á að leikmennirnir hugsi
ekki þannig. Reynsluboltinn Pat-
rice Evra hafi til að mynda skam-
mað menn á dögunum fyrir að tala
sífellt um að Frakkar myndu mæta
Englendingum í 8-liða úrslitum.
Hann á því ekki von að leikmenn
eða þjálfarar franska liðsins van-
meti Íslands.
Vill fá Mangala
Hjörvar vonar að Eliaquim
Mangala, leikmaður Manchest-
er City, komi inn í byrjunarliðið
í stað Adil Rami, sem er í banni.
Hann eigi það til að vera mistækur.
Í stað Kante, sem hefur leikið sem
djúpur miðju maður, væntir Hjörvar
þess að Moussa Sissoko, leikmaður
Newcastle, komi inn í liðið. Ef sú
verður raunin verða sjö leikmenn
byrjunarliðsins úr ensku úrvals-
deildinni. Tveir verða úr Juventus á
Ítalíu, einn úr PSG í Frakklandi og
einn úr Atletico Madrid.
Hjörvar segir að munurinn á
Englandi og Frakklandi á þessum
tímapunkti sé sú staðreynd að bestu
menn Frakka hafi verið í stuði að
undanförnu. Hann nefnir þar Griez-
mann, Payet og Giroud. Þrátt fyrir
það hefur liðið ekki alltaf leikið vel
á mótinu. „Umræðan er þannig að
þeir telja sig eiga Pogba inni. Menn
telja að hann eigi sínar bestu stundir
á mótinu eftir – og muni stíga upp.“
Höfum mætt betri liðum en þeir
Andstæðingar Frakklands í mótinu
til þessa hafa ekki allir verið hátt
skrifaðir. Hjörvar segir við DV að
hans mat sé að Ísland hafi mætt
þremur liðum sem séu betri en
besta liðið sem Frakkland hafi mætt
(Sviss) til þessa á mótinu; Portúgal,
Austurríki og Englandi. „Austurríki
er að mínu mati með besta liðið sem
féll úr leik í riðlakeppninni.“
Íslenska liðið hefur hrifið flesta
þá sem á leiki þess hafa horft.
Hjörvar segir að hann hafi að ósekju
haft áhyggjur af liðinu á mótinu.
Hann dáist að hugarfari strákanna.
„Ég skil ekki hvar þeir finna þessa
trú. Ef „lúser“eins og ég hefði ver-
ið í íslenska landsliðinu á móti
Englandi – og lent undir strax – þá
hefði ég vonast til að sleppa með 3-0
eða 4-0 tap,“ segir hann glettinn. n
Sjö úr ensku deildinni
Antoine
Griezmann
Staða: Framherji Aldur: 25
ára Félag: Atletico Madrid
Hugo
Lloris
Staða: Mark
Aldur: 29
ára Félag:
Tottenham
Oliver
Giroud
Staða: Framherji
Aldur: 29 ára
Félag: Arsenal
Tveir Frakkar í banni
Yohan Cabaye og Samuel Umtiti þykja líklegir til að fylla í skörðin
E
kki eru allir sammála hvaða
leikmenn Frakklands komi til
með að leysa þá af hólmi sem
eru í leikbanni. Franskir fjöl-
miðlar spá því flestir að Samuel Um-
titi, varnarmaður Lyon, verði sá sem
leysi miðvörðinn Adil Rami af hólmi
í vörninni. Miðjan er meiri höfuð-
verkur. Hjörvar Hafliðason nefnir að
Sissoko gæti fyllt skarð Kanté á miðj-
unni en Yohan Cabaye, leikmaður
Crystal Palace, er talinn líklegri.
Hitt gæti líka gerst að Sissoko eða
Kingsley Coman verði látnir spila á
hægri kantinum. Í staðinn færi stór-
stjarnan Antonie Griezmann inn á
miðjuna, fyrir framan þá Paul Pogba
og Blaise Matuidi. Þessi uppstilling
væri afar sóknarsinnuð, enda frábær-
ir menn í hverju rúmi. Varnarlega yrði
liðið kannski aðeins veikara en í síð-
asta leik – miðað við uppstillinguna.
Af Íslandi er það að frétta að Aron
Einar Gunnarsson fyrirliði gat ekki æft
að fullu á fimmtudag. Hann tók að-
eins að hluta til þátt í æfingu dagsins
en skokkaði létt eða ræddi við lækna-
teymi liðsins á meðan hinir æfðu.
Aron Einar lék stór-
an hluta leiksins
við Englendinga
meiddur á
nára, þótt það
sæist ekki á
frammistöðu
hans. Ólíklegt
þykir að meiðslin
muni koma í veg fyrir
þátttöku Arons Einars
í leiknum við Frakka,
en það væri mikil blóð-
taka fyrir liðið. n
Yohan
Cabaye og
Samuel
Umtiti.