Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2016, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2016, Blaðsíða 35
Allir eiga að hafa ráð á lögfræðingi kynning Laga er í eigu Sigþrúðar Þorfinnsdóttur lögfræðings sem er cand.jur frá Háskóla Íslands árið 1994. Hún hefur víðtæka reynslu af vinnumarkaðinum og þekkir alla ranghala kerfisins. Sigþrúður, eða Dúa eins og hún er oftast kölluð, hefur nú hafið eigin rekstur undir merkjum Laga þar sem boðið er upp á hagkvæmar lausnir í öllu sem viðkemur skjalagerð og skattamálum auk þess sem hún veitir ráðgjöf í öllu sem tengist lagalegum gjörningum. Áhersla á persónulega þjónustu Dúa ákvað að læra lögfræði á sínum tíma því hana langaði til þess að hjálpa fólki. Hún er á þeirri skoðun að aðgangur að réttlátri málsmeðferð innan kerf- isins eigi að vera aðgengilegur öllum. „Ég hef 20 ára starfsreynslu innan lög- fræðinnar og hef m.a. unnið hjá ríkisskattstjóra og yfirskattanefnd. Auk þess er ég þaulvön hvers kyns skjalagerð. Ég rek mitt litla fyrirtæki að heiman og hef engin áform um að verða eitthvert risafyrirtæki eða bákn,“ segir hún. „Ég legg áherslu á að veita persónulega þjónustu; hér á bæ er engin færibanda- vinna og hverjum og einum er veittur sá tími sem hann þarf.“ Sérstakur afsláttur fyrir aldraða og öryrkja Dúa hefur ríka réttlætiskennd og vill bjóða þjónustu lögfræðings á verði sem fólk almennt ræður við. „Ég er einnig með sérstakan afslátt fyrir öryrkja og aldraða en í samanburði við aðra sambærilega þjónustu er ég ábyggilega með lægri gjaldskrá en gengur og gerist. Mér er kleift að bjóða upp á hagstætt verð þar sem þjónusta mín ein- skorðast við þrjá málaflokka: Skjalagerð, stjórnsýslumál og skattamál. Flestir þurfa einhvern tíma á lífsleiðinni að gera einhver lögformleg skjöl, eins og t.d. erfðaskrá, kaupmála og annað slíkt. Laga tekur einnig að sér erindi og kærur til stjórnvalda og umboðs- manns Alþingis. Um þessar mundir eru það skattamálin sem brenna á mörgum þar sem álagning ríkisskatt- stjóra er nýbirt og margir þurfa að- stoð varðandi álagninguna og hvort þurfi að kæra hana til yfir skattanefndar. Ég tek ég að mér framtalsgerð og raunar öll samskipti við skattyfirvöld,“ segir hún. Einstök meðmæli „Sigþrúður er lögfræðingur sem frábært er að geta snúið sér til; hún er eldklár; fljót að greina kjarnann frá hisminu. Hún finnur lausnina. Allra best er þó að hún er einmitt manneskja – lætur sér annt um þann sem leitar til hennar og það er ekki minna mikilvægt en öll heimsins lagaþekking.“* Markús Þórhallsson, útvarpsmaður og sagnfræðingur. „Sigþrúður veitti mér framúrskarandi, skjóta og ódýra þjónustu. Kona sem kann sitt fag.“ Guðmundur Steinsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi. „Á síðunni laga.is má finna einfalda verðskrá en einnig er unnið eftir tímakaupi. Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að senda línu eða slá á þráðinn,“ segir Dúa að lokum. Laga: sími: 511-0444, veffang: www.laga.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.