Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2016, Qupperneq 12
Helgarblað 1.–4. júlí 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
12 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Ég ætla að vera á áhorfendapöll-
unum með stuðningsmönnunum
Hann er vonlaus
í að elda mat
Kannski maður fari að
henda í eina kæru eða svo
Guðni Th. hefur takmarkaðan áhuga á að sötra kampavín í fyrirmannastúku á EM. – CNN Eliza Reid ljóstrar upp um verkaskiptingu á heimilinu. – DV Sigríður Rut Júlíusdóttir er ósátt við skopteikningar Morgunblaðsins. – Eyjan
Bíta ekki í höndina sem
fæðir
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnað
arráðherra skrifaði grein í Frétta
blaðið í vikunni þar sem hún lét
að því liggja að hún og ráðuneyti
hennar hefðu unnið þrekvirki í
uppbyggingu ferðaþjónustu sem
skilaði ríkinu gríðarlegum tekj
um. Þetta viðhorf ráðherrans er á
skjön við viðhorf nær allra þeirra
sem að málaflokknum koma.
Ekki bara er ítrekað kvartað yfir
slæmum aðbúnaði ferðamanna
víðs vegar í kringum landið, held
ur hefur bókstaflega ekkert geng
ið að nýta þann tekjustofn sem
erlendir ferðamenn eru. Ljóst er
að mikilla úrbóta er þörf í þess
um málum meðan lítið sem
ekkert gerist. Óþol er áberandi
vegna þessa og ráðherrann sætir
æ meiri gagnrýni og sumir telja
að hann sé búinn að mála sig út
í horn með aðgerðarleysi sínu.
Ráðherrann ætti hins vegar að
eiga bandamenn í röðum æðstu
forkólfa ferðaþjónustunnar sem
eru áberandi á lista Ríkisskatt
stjóra yfir skattakónga. Þeir
græða á óbreyttu ástandi og varla
fara þeir að bíta í höndina sem
fæðir þá. Þ
að var beinlínis átakanlegt að
horfa á myndband sem sýndi
lögreglumenn draga tvo hælis
leitendur út úr Laugarneskirkju
en þar höfðu prestar veitt þeim skjól.
Þarna reyndi á kirkjugrið sem dugðu
ekki og sennilega ekki við því að
búast. Mörgum er brugðið við þenn
an atburð, aðfarir lögreglumanna
sýndust harkalegar og einn þeirra sló
til manns sem þar var staddur og virt
ist ekki hafa gert neitt af sér. Varla var
sérstök nauðsyn á því.
Kristín Þórunn Tómasdóttir,
sóknarprestur í Laugarneskirkju, og
Toshiki Toma, prestur innflytjenda,
stóðu fyrir því að kirkjan skaut skjóls
húsi yfir þessa tvo hælisleitendur.
Þetta gerðu þau í von um að fornar
venjur um kirkjugrið gætu fengið
stjórnvöld til að taka ábyrga og efnis
lega afstöðu til mála einstakra hæl
isleitenda.
Það er ljóst að ekki líkaði öllum
vel að prestar skyldu ganga fram fyrir
skjöldu í að veita hælisleitendum
skjól. Einhverjir hafa jafnvel hug á því
að segja sig úr Þjóðkirkjunni vegna
þessa. Hvað voru prestarnir að gera?
Jú, þeir störfuðu þarna í nafni ná
ungakærleiks, sem kirkjunnar þjón
ar mættu reyndar vera ögn duglegri
við að sýna í verki á erfiðum stundum
eins og þessum. Það er fjarska auðvelt
að elska náungann eins og sjálfan sig
á rólegu tímunum en þegar náunginn
þarfnast hjálpar á erfiðum tímum
þá getur kostað átak að stíga fram og
rétta fram hjálparhönd, sérstaklega
ef menn eiga á hættu að kalla yfir sig
reiði annarra með því.
Það má vissulega deila um það
hvort nýta eigi kirkjur sem griðastaði
en það er ljóst að prestarnir tveir hafa
vakið mikla athygli á því hversu kald
ranalega meðferð hælisleitendur fá
of oft hér á landi. Við sem þjóð erum
ekki að standa okkur vel í málefnum
hælisleitenda, það er eins og við vilj
um helst sem minnst af þeim vita. Við
notum Dyflinnarreglugerðina eins og
vottorð fyrir því að þurfa ekki að aðhaf
ast. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðar
dóttir, hefur hvatt til endurskoðun
ar á Dyflinnarreglugerðinni en ekkert
bendir sérstaklega til að svo verði gert.
Ef halda á í þessa reglugerð þá er ósk
andi að hún verði túlkuð á rýmri og
mannúðlegri hátt en gert hefur verið.
Í löndum í kringum okkur er
útlendingaandúð tekin að vaxa og
dafna. Víða í lýðræðisríkjum sækjast
öfgafullir stjórnmálamenn eftir að
verða þjóðarleiðtogar og safna fylgi
þeirra sem trúa svo innilega á skipt
inguna „við“ og „hinir“.
Flóttamenn eru ekki óvinir okkar
og ekki hættulegar manneskjur. Ef við
getum ekki sýnt fólki í neyð náunga
kærleik þá er ekki mikið í okkur varið
sem manneskjur. n
Prestar í nafni kærleikans
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Blóm og gjafavara
við öll tækifæri
Góð og
persónuleg
þjónusta
Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir
M
y
n
d
S
iG
TR
y
G
G
u
R
A
R
i
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Það er ljóst að
prestarnir tveir
hafa vakið mikla athygli
á því hversu kaldranalega
meðferð hælisleitendur
fá of oft hér á landi.
Myndin Skúradembur Myndarlegar skúradembur hafa verið tíðar á suðvesturhorninu og reyndar blautt víða um land. Ekki er víst að stytti upp fyrr en eftir helgina. Nýliðinn
júnímánuður hefur engu að síður verið yfir meðallagi hlýr. Mynd SiGTRyGGuR ARi