Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2016, Qupperneq 20
Helgarblað 1.–4. júlí 201620 Fólk
Gerum við Apple vörur
iP
one í úrvali
Sérhæfum okkur í Apple
Allskyns
aukahlutir s: 534 1400
Stjörnur sem misstu barn
Að missa barnið sitt er það skelfilegasta sem getur
hent foreldra. Sorgin hlífir engum, ekki heldur ríka
og fræga fólkinu og hér er sagt frá heimsfrægum
stjörnum sem misstu barn.
Roy
Rogers
og Dale
Evans
Dóttir Roy
Rogers og Dale
Evans, Robin
Elizabeth,
lést tæplega
tveggja ára
gömul, en
hún var með
Downs-heil-
kenni. Dale
Evans skrifaði
metsölubók
um þessa ungu
dóttur sína og
vann ötullega
að því að
breyta viðhorfi
til barna með
þroskahömlun
og varð mikið
ágengt.
Lou Costello Tvíeykið Abbott og
Costello nutu gríðarlegra vinsælda á árum áður,
sáu um eigin útvarpsþætti og léku í fjölmörgum
kvikmyndum. Í nóvembermánuði 1943 mætti
Costello í stúdíó NBC þar sem senda átti út gaman-
þátt þeirra félaga. Þar var honum sögð sú harma-
frétt að tæplega árs gamall sonur hans hefði fallið í
sundlaug fjölskyldunnar og drukknað. Costello hafði
fyrr um daginn beðið konu sína um að leyfa hinum
unga syni að hlusta á útvarpsþáttinn. Costello vildi
ekki hætta við útsendinguna heldur sagði: „Hvar
sem hann er núna, þá vil ég að hann heyri til mín.“
Hann flutti síðan gamanmál ásamt félaga sínum.
Náin vinkona Costello sagði að dauði sonarins
hefði breytt honum, hann hefði átt til að verða
uppstökkur og ekki jafn hlýr og ærslafullur og áður.
Paul Newman Paul Newman átti soninn Scott með fyrri
eiginkonu sinni, leikkonunni Jackie Witte. Scott varð snemma háður
áfengi og eiturlyfjum. Hann lést árið 1978 eftir að hafa tekið stóran
lyfjaskammt í bland við áfengi. Scott var 28 ára gamall.
Sylvester
Stallone
Sonur Sylvester
Stallone, Sage,
lést af völdum
hjartaáfalls árið
2012 og var þá 36
ára. Móðir hans er
Sasha Czack.
Marlon Brando Marlon Brando átti fjölda barna,
þar á meðal voru Christian og Cheyenne sem voru hálfsystkini.
Christian skaut unnusta Cheyenne til bana árið 1990. Cheyenne
fæddi barn látins unnusta síns en reyndi síðan misheppnað
sjálfsvíg. Hún var greind með geðklofa og missti forræði yfir barni
sínu. Cheyenne framdi sjálfsmorð árið 1995, 25 ára gömul, með
því að hengja sig. Fjölskylduharmleikurinn tók mjög á Marlon
Brando. Christian lést árið 2008 úr lungnabólgu, 49 ára gamall.