Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 16.–18. ágúst 201618 Menning Bætt fyrir fyrri glæpi V ið höfðum verið vöruð við. Dómarnir að vestan voru skelfilegir. Og ekkert við hinn sameinaða ofurhetjuheim DC gaf tilefni til bjartsýni. En kannski er það einmitt þegar væntingarnar eru svo litlar að hlutirnir koma manni skemmtilega á óvart. Óþarfi er að fjölyrða um plottið. Vondi kallinn kemur og vill útrýma heiminum, en við losnum þó við að sitja í gegnum langar útskýringar á ástæðu þess. Og þessi nýi, róman- tíski Jóker er frekar litlaus karakter. Það er bara einn raunverulegur bíó- Jóker, og nafn þess sem lék hann byrjar ekki á J. Vondu karl- arnir úr Bat- man-sögun- um eru hér saman komnir og áður en langt um líður eru þeir staddir í einhvers konar Escape from New York-veröld. Hver og einn er fimur á sín vopn og úr verður ágætis B-mynd. Og það að þeir séu ekki hetjur gerir það að verk- um að persónurnar geta dáið, sem er eitthvað sem vantaði svo áþreifanlega í til dæmis Expendables-myndirnar. Þó að ekki borgi sig að ofhugsa málið er myndin heldur ekki alveg hugsunarlaus. Systir mín, sem hefur kynnt sér fangelsismál í Bandaríkj- unum, segir að þetta sé nú nokkuð raunsönn lýsing. Og svo spennandi að hún snerti varla poppið. Vissulega er maður örlítið þreyttur á góðum fjöldamorðingj- um, og myndin missir sinn móralska kompás þegar jafnvel góðu gæjarnir fara að drepa saklaust fólk. En glæpa- menn sem eru að reyna að bæta fyrir fyrri misgjörðir gefa kannski loksins hinn þunga móralska undirtón sem bæði Batman og Superman voru að leita að. Líklega er þetta skásta DC-myndin síðan Dark Knight. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Suicide Squad IMDb 6,9 RottenTomatoes 27% Metacritic 40 Handrit og leikstjórn: David Ayer Aðalhlutverk: Will Smith, Margot Robbie og Jared Leto 130 mínútur Uppreist æru Hópur ofurill- menna samþykkir að taka þátt í hættulegu verkefni fyrir yfirvöld gegn sakaruppgjöf. Skuggaverur og þungt landslag Rokksveitin Kontinuum leikur plötuna Kyrr í heild sinni undir myndbandsverki Gauja H. É g hef alltaf verið pínu geðveik- ur í hausnum og ákvað bara að fara alla leið með þetta,“ segir Gaui H. sem hefur gert 45 mínútna myndbandsverk við plötuna Kyrr með rokksveitinni Kontinuum. Hljómsveitin mun leika plötuna í heild sinni á Menningarnótt undir myndbandsverki Gauja. Svið verður sett upp fyrir framan Hótel Kvosina í Reykjavík og verður verkinu varpað upp á tjald á bak við sveitina. Úr módelmyndun í myndbandagerð „Í rúmt ár hef ég verið að mynda fyrirsætur í yfirgefnum byggingum og eyðibýlum. Þar sem ég var stöð- ugt að flækjast um landið kviknaði hugmyndin um að gera eitthvað meira með þetta. Ég tók mig svo til fyrr á árinu og gerði tónlistar- myndband við lagið Requiem með Kontinuum og gaf það út á Youtube. Það voru aðilar sem sáu þetta myndband, vildu endi- lega hjálpa mér og ýttu mér áfram í að gera meira. Þá kviknaði þessi hugmynd um að gera myndband við plötuna í heild sinni,“ segir Gaui sem heldur úti ljósmynda- síðunum ReykjavíkLife og The Breath of Iceland auk þess að taka ljósmyndir fyrir ýmis tímarit, fyrirtæki og vörumerki. „Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið áður gert á Íslandi, en ég er svona gaur sem fer alltaf alla leið. Ég hef verið edrú í 10 ár en gekk alltaf of langt í allri fíkn sem ég var í, þannig að þetta var bara næsta skref – að fara alla leið í þessu,“ segir Gaui og hlær. Magnþrungin og „ambient“ Kyrr, sem er önnur plata þungarokkkvintettsins Kontin- uum, kom út í apríl 2015 og hlaut góðar viðtökur. Smáskífan Í huldusal af plötunni var til að mynda eitt mest spilaða lag rokkút- varpsstöðvarinnar X-ins árið 2014. „Tónlistin sem þeir spila er svo rosa- lega magnþrungin og „ambient“,“ segir Gaui um ástæður þess að hann langaði að vinna með sveitinni. „Það er myrkur „gothic“ fílingur í myndbandinu, skuggaverur og þungt landslag í kring. Mig langaði að tjá texta strákanna á minn eig- in hátt. Það eru líka mörg atriði sem hafa komið til mín í svefni – ég vakna oft upp með hugmyndir og skrifa þær niður. Myndbandið rekur ferða- lag aðalgaursins, sem er leikinn af Birgi Axelssyni – baráttu hans við innri djöfla og fíkn leiðir áhorfendur í gegnum myndbandið. Þetta er samt mjög óljós söguþráður, mig langaði ekki að hafa þetta of bókstaflegt, svo fólk getur túlkað það eins og það vill,“ segir Gaui. Kontinuum mun leika plötuna Kyrr í heild sinni við myndbandsverk Gauja H. við Hótel Kvosina á Menn- ingarnótt 20. ágúst klukkan 22.00. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Kyrrir Þungarokksveitin Kontinuum sendi frá sér plötuna Kyrr árið 2015. MynD GUðMUnDUR ÓlI PálMAson Tónlistarmyndband við heila plötu Gaui H. hefur starfað sem ljósmyndari en er smám saman að hasla sér völl sem myndbandalistamaður. MynD GAUI H „Tónlistin sem þeir spila er svo rosalega magnþrungin og „ambient“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.