Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2016, Side 22
Vikublað 16.–18. ágúst 201622 Sport Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík • Sími 552-3300 • www.klif.is Notendavænn góður filter á hjólum fyrir raf- suðureyk og ryk • Auktu framleiðni og gæði • Bættu strarfsumhverfið S tuðningsmenn Liverpool eru orðnir langeygir eftir titli. Liðið hefur iðulega hafnað í sætum sex til átta en sigurinn um helgina kveikir mönnum von í brjósti. Fourfourtwo hefur tekið saman fimm atriði sem munu ráða úrslitum um gengi liðsins á leiktíðinni. 1 Mun Loris Karius standa sig betur en Simon Mignolet? Karius kom til liðsins frá Mainz og sagðist vilja verða markvörður númer eitt eins fljótt og auðið væri. Hann varði vel á undirbúningstímabilinu áður en hann handarbrotnaði í leik gegn Chelsea, þegar hann kýldi samherja sinn óvart. Hann verður frá keppni í 10 vikur sem gefur Mignolet færi á að sanna að hann sé betri en hinn 22 ára gamli Karius. Reynslan sýnir að hvorugur mun fá mikinn tíma til að sanna sig. 2 Komast þeir í gang á útivelli? Nýja Main Stand- stúkan verður ekki tilbúin fyrr en um miðjan september. Fyrir vikið byrjar Liverpool á þremur útileikjum, gegn Arsenal, Burnley og Tottenham. Leicester verður fyrsta liðið til að koma í heimsókn áður en Liverpool fer á Stamford Bridge. Byrjunin verður því afar krefjandi fyrir Liverpool og mikilvægt að liðið finni taktinn á útivelli. Leikmenn eins og Philippe Coutinho þurfa að eiga frábært tímabil en hann fór vel af stað og skoraði 2 mörk gegn Arsenal um helgina. Coutinho þarf að finna stöðugleika í leik sínum. 3 Hversu lengi verður Sturridge heill? Nítján leikmenn léku meira en Sturridge á síðasta tímabili. Samt skoraði hann mest allra, eða 13 mörk. Ef Sturridge verður heill allt tímabilið á Liverpool möguleika á að vera í toppbaráttu. En það byrjar ekki vel. Fourfourtwo segir að nýr styrktarþjálfari, Andreas Korn mayer, sem starfaði í 15 ár hjá Bayern, gæti þar komið sterkur inn. 4 Nýju mennirnir verða að blómstra Þjóðverjinn Klopp fær nú tækifæri til að sanna sig með leikmenn innanborðs sem hann hefur sjálfur keypt. Sadio Mané kom á 34 milljónir punda og Georginho Winjaldum á 23. Marko Grujic, Loris Karius og Ragnar Klavan eru líka komnir til Liverpool. Félagið hefur enn ekki keypt stórstjörnu en ljóst er að nýju mennirnir þurfa að standa undir væntingum og bæta liðið, ef það á að standa sig á komandi leiktíð. 2 Virkar taktíkin hans í úrvalsdeildinni? Þegar Klopp nær því besta fram í sínum liðum er unun að horfa á. Þannig náði hann frábærum árangri með Dortmund. Og hann var í raun óheppinn að landa ekki Evróputitli með Liverpool á síðustu leiktíð. Það sem gerðist í síðari hálfleiknum gegn Sevilla er einmitt versta martröð stuðningsmannanna. Winjaldum hefur verið keyptur á miðjuna en hann er kannski ekki þessi varnarsinnaði nagli á miðjuna sem stuðningsmenn vildu sjá. Sóknarleikurinn er hjá Klopp í fyrirrúmi og spurningin er hvort sú taktík dugi til árangurs ensku úrvalsdeildinni. n 5 lykilatriði fyrir klopp n Erfiðir leikir í upphafi leiktíðar n Helst Sturridge heill? Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Jurgen Klopp Þjóðverjinn hefur um margt að hugsa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.