Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 20.–22. september 20164 Áhrifaríkar meðferðir - Kynningarblað Síþreyta var kölluð „Íslenski sjúkdómurinn“ Chikly-stofnunin með áhrifaríka meðferð gegn síþreytu B runo Chikly er franskur en hefur starfað við lækningar og rannsóknir í Bandaríkj- unum frá árinu 1992. Eitt af hans sérsviðum er síþreyta eða Chronic Fatigue Syndrome. Síþreyta hefur lengi verið talin al- geng á Íslandi og árið 1959 var sjúk- dómurinn kallaður „The Icelandic Disease“. Bruno hafði viðdvöl hér á landi fyrir skömmu og hélt námskeið í meðferð á síþreytu og vefjagigt sem hefur gagnast mjög vel við þessum einkennum. Hann hefur enn frem- ur mikinn áhuga á að rannsaka hvers vegna tíðni síþreytu hefur verið og er svo há á Íslandi. Samstarfs aðilar Chiklys á Íslandi eru Anna Bjarna- dóttir og Birgir Hilmarsson, með- ferðaraðilar. Chikly-stofnunin hóf formlega starf sitt á Íslandi í kjölfar námskeiðs sem Bruno Chikly hélt hér landi í mars á þessu ári – en hann er tíður gestur á landinu og á eftir að koma aftur. Stofnunin býður reglulega upp á ýmiss konar námskeið sem tengjast síþreytu og vefjagigt, sogæðakerfinu, heilanum og einnig „heart center- ed therapy“ námskeiðalínunni. Það má fá nánari upplýsingar um nám- skeiðin á vefsíðunni chikly.is. Chikly var beðinn um að segja stuttlega frá sjúkdómnum og með- ferðinni. Hver eru einkenni síþreytu? Orsakir síþreytu eru ekki kunnar og segir Bruno Chikly að oft hafi reynst sjúklingum erfitt að fá skiln- ing á ástandi sínu. „Mörg sjúkdóms- einkennin eru huglæg og því ekki hægt að sanna þau. Ef maður er með hálsbólgu er auðvelt fyrir lækni að greina hana. En sá sem segist alltaf vera þreyttur eða ekki geta sofið hef- ur engin áþreifanlega merki því til sönnunar. Sá sem fer til læknis og segist vera þreyttur getur fengið það svar frá lækninum að hann segist líka vera þreyttur. Það er afar erfitt fyrir lækni að meta hlutlægt þessi sjúk- dómseinkenni.“ En síþreyta snýst ekki bara um þreytu heldur eru fimm einkenni gjarnan greind hjá þeim sem þjást af sjúkdómnum: „Fyrsta meginein- kennið eru þreyta og skert hæfni í meira en sex mánuði, sem er skilyrði þess að geta talist vera með síþreytu. Annað einkenni er ofboðsleg þreyta eftir líkamlega áreynslu. Þriðja ein- kennið er ófullnægjandi svefn. Fjórða er skert vitsmunahæfni, hugs- unin verður óskýr og minnið glopp- ótt. Í fimmta lagi er það sem kallað er Othostatic intolerance sem lýsir sér í ókyrrð við að standa uppréttur.“ Sérhæfð handarsnerting Bruno lýsir sjúkdómnum og með- ferðinni enn fremur svo: „Þetta er meðferð sem byggir á osteopathy – bein- og liðskekkjulækningum – sem felst í sérhæfðum handarsnerting- um, en hún er afskaplega mjúk og nærgætin. Orsakir síþreytu eru ekki þekktar og ekki er vitað hvaða með- ferð gagnast best við henni. Algeng- ast er að beita þunglyndislyfjum eða til dæmis lyfjum gegn vöðvaverkjum. En greiningar eru mjög á reiki, tugir greininga koma fram á hverju ári, breytilegar frá einu landi til annars. Margt bendir til þess að vefjagigt og síþreyta séu einn og sami sjúk- dómurinn þar sem vefjagigt fram- kallar meiri sársauka en síþreyta meiri þreytu. Árið 1959 var síþreyta – Chronic Fatigue Syndrome – kall- aður „Íslenski sjúkdómurinn“. Yfir- leitt er talið að hver sjúklingur bregð- ist á sinn hátt við sjúkdómnum en ég hef í mínum rannsóknum fundið sex óvirk svæði í líkamanum. Þessi sex svæði hjálpa mér til að greina og meta vandamálið og finna réttu með- ferðina fyrir hvern og einn. Sumir koma frá lækninum greindir með síþreytu en síðan kemur á daginn með þessari aðferð að þeir hafa aðra sjúkdóma sem koma í ljós við með- ferðina, til dæmis vandamál í skjald- kirtli. Sjúklingar geta þá leitað til læknis sem getur sannreynt þetta og beitt viðeigandi meðferð. Um leið og greining á síþreytu hefur fundist er hægt að meðhöndla sjúklinginn á aðeins 20 mínútum. Stundum er hægt að lækna sjúkdóm- inn með aðeins tveimur eða þremur skiptum en stundum þarf að með- höndla sjúklinginn allt að 20 sinn- um. Maður verður hins vegar að fara sér hægt og gefa sér tíma til að finna réttu greininguna því ef maður beitir ekki réttri meðferð er sjúklingurinn í meiri vanda en áður.“ Bruno Chikly lýsir því enn frem- ur að meðferðin felist í því að finna svæði þar sem mikil spenna er og losa um hana með hárréttri snertingu. Eitt af því jákvæða sem gerist eftir með- ferðina er að sjúklingar fá afar góðan nætursvefn en eitt af helstu einkenn- um síþreytu er svefnleysi og truflaður og ófullnægjandi svefn. „Sjúklingum mínum líður alltaf betur eftir meðferðina og sumir ná sér eftir annað eða þriðja skiptið. Þeir fá líf sitt til baka en það hefur al- veg farið úr skorðum vegna þreytu, svefnleysis og annarra langvarandi einkenna.“ Chikly-stofnunin á Íslandi Eins og áður hefur komið fram er Chikly-stofnunin á Íslandi rekin í nánu samstarfi við Bruno Chikly sem kemur oft hingað til lands til að halda námskeið. Chikly á Íslandi býður upp á mörg námskeið í námskeiðalínum þeirra hjóna auk þess að taka fólk í meðferð. Nánari upplýsingar eru sem fyrr segir á vefsíðunni chikly.is en auk þess er Chikly-stofnunin á Íslandi á Facebook. Einnig má fá nánari upp- lýsingar og skráningu í meðferð eða á námskeið með því að senda tölvu- póst á chikly@chikly.is eða hafa sam- band við Önnu Bjarnadóttur í síma 862-4898 og Birgi Hilmarsson í síma 898-1760. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.