Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 19
Vikublað 20.–22. september 2016 Kynningarblað - Áhrifaríkar meðferðir 3 Demantshúðslípun: Áhrifarík meðferð fyrir fólk á öllum aldri Abaco heilsulind, Hrísalundi 1, 600 Akureyri H úðslípun er afar öflug og ör- ugg húðmeðferð sem Abaco Heilsulind á Akureyri býður upp á. Meðferðin er fram- kvæmd með Silk Peel húð- slípunartæki. Þetta er heildræn húð- meðferð þar sem ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra krist- alla og demanta. Árangurinn er slétt- ari, mýkri og þéttari húð, auk þess sem áferð húðarinnar verður fallegri. Húð- slípun er meðferð sem hentar fólki á öllum aldri og er örugg fyrir allar húðgerðir. Strax eftir fyrstu meðferð fær húðin ferskan blæ, verður þéttari, mýkri, hreinni og unglegri. Þessi einstaka húðmeðferð lætur húðina líta betur út og endurheimta ljóma sinn. Dauðar húðfrumur eru fjarlægðar, blóðflæði örvað og vöxtur nýrra fruma og bandvefur örvast. Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Eldri húð sem farin er að þynnast styrkist og þéttist. Meðferðin veitir örugga hreinsun á yfirborði húðarinnar, dregur úr húð- stíflum og opnar húðholur dragast saman. Sjáanlegur munur á húðinni er eftir hvert skipti og verða stöðugar framfarir á ástandi hennar. Húðslípun vinnur meðal annars á eftirtöldum vandamálum: n Ótímabær öldrun n Fínar línur og hrukkur n Ör eftir skurði og bólur n Hörundslýti og húðþykkildi n Unglingabólur og óhrein húð n Exemhúð n Húðslit Mælt er með að taka þrjár með- ferðir með u.þ.b. tveggja vikna milli- bili til að ná sem bestum árangri. Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir því hvaða vandamáli er verið að vinna á. Eitt skipti frískar verulega upp á húðina og gefur ljóma og gott útlit. Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt með að lágmarki 6 meðferðum með tveggja til þriggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sama á við um meðferðir við húðsliti. Eftirmeðferð Bera skal rakakrem á meðferðarsvæði og nota rakamaska fyrstu dagana eftir meðferð. Forðast ber sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá sólarhringa eftir með- ferð. Forðast jafnframt sund og heita potta í a.m.k. þrjá sólarhringa. Sleppa skal líkamsrækt sama dag og meðferð á sér stað. Nota á SPF 30 sólarvörn eða sterkari í viku eftir meðferð. Um Abaco Heilsulind Abaco Heilsulind er staðsett að Hrísa- lundi 1 á Akureyri. Þetta er ein best búna heilsulind landsins, einstakur staður til að slaka á, endurnærast og njóta lífsins. Abaco býður viðskipta- vinum sínum upp á herðanudd og kaldsteinanudd ofan í heitum potti. Steinanuddið er einstakt og mjög sér- stök upplifun: Herðar, háls, bringa og andlit eru nudduð með köldum stein- um, sem vekur mikla vellíðan. Þetta hentar fyrir pör og hópa. Einnig er boðið upp á andlitsmaska í pottinum. Viðskiptavinir Abaco eru hvattir til að nýta sér aðgang að baðstofunni þegar komið er í nudd eða snyrtimeð- ferðir, en aðgangur er innifalinn í öll- um meðferðum. Vínveitingaleyfi er á staðnum og gestir geta hresst sig á víni, bjór eða gosdrykkjum. Í Abaco Heilsulind er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir, eins og litun og plokkun, hand- og fót- snyrtingu, vaxmeðferðir, Guinot and- litsmeðferðir og demantshúðslípun. Abaco Heilsulind er eina stofan á Akureyri sem býður upp á St.Tropez brúnkumeðferðir. Auk þess eru í boði lasermeðferðir til háreyðingar og til að vinna á háræðasliti. Enn fremur er til staðar frystipenni sem virkar á húðflipa og vörtur. Boðið er upp á flestar tegundir af nuddi, eins og slökunarnudd, heils- unudd, íþróttanudd, ilmolíunudd og heit- og kaldsteinanudd. Einnig er í boði meðgöngunudd en á stofunni er sérstakur meðgöngubekkur. Í Abaco starfa hjúkrunarfræðing- ur, snyrtifræðingar og nuddarar. Í Abaco er auk þess glæsileg ljósastofa og eru fjórir Ergoline- ljósabekkir. Hægt er að kaupa gjafabréf í Abaco Heilsulind og eru þau afar vin- sæl gjöf. Þá má geta þess að á staðnum er til sölu úrval húðsnyrtivara, með- al annars frá Guinot, Sothys, Al- essandro, St. Tropez og margt fleira. Síminn í Abaco Heilsulind er 462- 3200 og netfangið er abaco@abaco. is. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni abaco.is. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.