Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 28
Vikublað 20.–22. september 201620 Lífsstíll Sykraðir drykkir Sterk tengsl eru á milli þess að drekka sykraða drykki og þess að þyngjast. Þó að drykkirnir geti verið svalandi eru þeir ekki mettandi og þú munt ekki borða minna af mat í staðinn. Ef þú drekkur sykraðan gosdrykk mun það líklega verða hrein viðbót við neyslu hitaeininga þann daginn. Ef þú þarft að léttast er best að drekka bara vatn. Tilboð á Lappset útileiktækjum 2016 Leitið til sölumanna í síma 565 1048 HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI - Leiðandi á leiksvæðum jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is Uppsetningar, viðhald og þjónusta • Útileiktæki • Girðingar • Gervigras • Hjólabrettarampar • Gúmmíhellur • Fallvarnarefni Eldbakaðar pizzur hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni salur fyrir hópa sími 557 1007 hamborgarar, salöt, pasta, kjúklingavængir og flEira Forðastu þetta ef þú berst við aukakílóin Sykur og unnið hveiti eru afurðir sem þeir sem vilja léttast ættu að neyta ætti í hófi Ó tal kenningar eru uppi um hvaða aðferð er best til að léttast. Eitt er þó alveg á hreinu: Ef þú innbyrðir fleiri hitaeiningar en þú brennir, þá þyngist þú. Ef við þú vilt léttast þarftu að neyta færri hitaeininga en þú brennir. Þrátt fyrir að vísindin hafi enn ekki sett fram skothelda leið til að léttast eru nokkur matvæli sem fólk sem vill léttast ætti að neyta í hóflegu magni. n 1 Franskar og kartöfluflögur Kartöflur eru heilsusamlegar og mettandi, en unnir kartöfluréttir eru það sjaldnast. Flögur og franskar innihalda mikið magn hitaeininga. Þær eru svo góðar að það er auðvelt að missa tökin á neyslunni. 3 Hvítt brauð Hvítt brauð er yfirleitt úr hveiti sem er mikið unnið og inniheldur auk þess mikinn sykur. Það getur fyrir vikið hækkað blóðsykurinn. Rannsókn sem meira en níu þúsund manns tóku þátt í leiddi í ljós að líkurnar á þyngdaraukn­ ingu og offituvandamálum jukust um 40 prósent hjá þeim sem neyttu tveggja brauðsneiða (120 gramma) á dag. 4 Súkkulaðistykki Hér er um mjög sykraða og óholla vöru að ræða. Auk þess að innihalda mikinn sykur inniheldur súkkulaðistykki yfirleitt viðbættar olíur og mikið unnið hveiti. Fyrir vikið eru það stútfullt af kaloríum og inniheldur fá næringarefni. Ef þig þyrstir í sælgæti ættirðu að prófa að borða handfylli af hnetum í staðinn. 5 Ávaxtasafar Langfæstir ávaxtasafar innihalda hreinan safa úr ávöxtum. Hér er yfirleitt um að ræða mikið unna vöru sem inniheldur mikið af sykri og oft svipaðan fjölda hitaeininga og sykraðir gosdrykkir. Flestir safarnir eru snauðir af trefjum og raunar er fátt sem minnir á ávöxtinn sem þeir eiga að vera gerðir úr. 6 Smákökur og kex Bakkelsi á borð við smákökur inniheldur yfirleitt mikið af hvoru tveggja unnu hveiti og sykri. Þá innihalda þær gjarnan transfitusýrur. Það sama gildir um kexkökur. Þetta er ekki mettandi fæða og er slæm í miklu magni. 7 Bjór og aðrir áfengir drykkir Í einu grammi af hreinu alkóhóli eru sjö hita­ einingar. Ekki hefur þó tekist að sanna að neysla áfengis geti stuðlað að þyngdaraukningu. Þvert á móti benda rannsóknir til að hófleg neysla víns geti leitt til þess að fólk léttist. En bjórinn er verri. Ef þú ætlar að drekka áfengi á annað borð – og vilt léttast – ættirðu að drekka vín í hóflegu magni, frekar en bjór. 8 Ís Afskaplega gómsæt vara en afar óholl í óhófi. Yfirleitt er ís hlaðinn sykri og þannig fullur af hitaeiningum. Betri leið er að búa til sinn eigin, þar sem jógúrt eða ávextir koma að einhverju leyti í stað sykursins. 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.