Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 20.–22. september 2016 Kynningarblað - Áhrifaríkar meðferðir 5 Íslenskur jarðhitakísill gegn hárlosi og húðvandamálum GeoSilica K ísilsteinefnið geoSilica inniheldur hreinan jarð­ hitakísil sem unninn er úr jarðhitavatni Hellisheiðar­ virkjunar. Læknisfræði­ legar rannsóknir hafa leitt í ljós að kísill gegnir mikilvægu hlutverki í mannslíkamanum og er honum nauðsynlegur. Kísill er sérstaklega mikilvægur fyrir heilsu beina enda örvar hann myndun kollagens í líkamanum, en kollagen er helsta uppistaða bandvefjar sem er að finna í beinum, húð, hári, nöglum, liðböndum, sinum og brjóski. Kís­ ill hjálpar einnig kalki að koma sér fyrir í beinvef og er því mikilvægt að taka inn kísil samhliða kalkinntöku til að kalkið nýtist sem best. Inntaka kísilsteinefnis gæti haft fyrirbyggj­ andi áhrif gegn beinþynningu. Kísilsteinefnið geoSilica styrkir bandvef, styrkir hár og neglur og vegna betri myndunar kollagens getur inntaka kísilsins stuðlað að sléttari og fallegri húð. Fyrirtækið geoSilica Iceland hef­ ur þróað vöruna, framleiðir hana og selur. Þau Fidu Abu Libdeh og Burkni Pálsson, ásamt Ögnum ehf., stofnuðu fyrirtækið árið 2012. Um haustið það ár fékk geoSilica verk­ efnastyrk Tækniþróunarsjóðs til rannsókna og þróunar á vörunni. Hún kom síðan á markað í desem­ ber árið 2014: 100 prósent hágæða náttúrulegt íslenskt kísilsteinefni í vökvaformi, tilbúið til inntöku. GeoSilica kísilsteinefnið fæst í heilsuvörubúðum, öllum helstu apótekum, Nettó og öllum verslun­ um Hagkaupa. Varan er einnig til sölu í vefverslun á heimasíðu geo­ Silica, geosilica.is. Þar er jafnframt að finna ítarlegan og aðgengilegan fróðleik um vöruna. Reynslusaga: Sá verulegan mun eftir tvær vikur Margir hafa afar góða reynslu af notkun geoSilica og má lesa nánar um það á vefnum geosilica.is. En hér deilir Ásdís Geirs einstaklega jákvæðri reynslu sinni af notkun geoSilica: Nokkrum mánuðum eftir að ég átti yngri dóttur mína í nóvember 2014 fór að bera á miklu hárlosi hjá mér. Ásamt því var ég mjög slæm í húðinni og neglurnar á mér brotn­ uðu endalaust. Mér var þá bent á kísilsteinefnið frá geoSilica. Það er 100% náttúrulegt steinefni sem er þróað og framleitt á Íslandi úr jarð­ hitavatni frá Hellisheiðarvirkjun. Kísill er steinefni sem finnst í náttúrunni og ýmsum fæðu­ tegundum. Kísill er nauðsynlegt næringarefni fyrir líkamann en hann gegnir lykilhlutverki í mynd­ un og viðhaldi beina. Kísill getur einnig auðveldað líkamanum upp­ töku á öðrum steinefnum, eins og kalki og magnesíum sem dæmi. Kísilsteinefnið kemur í vökva­ formi og ætlast er til að maður taki inn 1 msk. (10 ml) á hverjum degi. Það sem mér fannst líka virkilega gott við kísilinn er að hann inni­ heldur engin aukaefni – aðeins kísil og vatn – og er einnig bragðlaus. Ég ákvað að prófa enda orðin frekar langþreytt á þessu ástandi og búin að prófa bæði sjampó fyrir hár­ los, ýmis krem og naglaherði. Ein flaska dugði mér í einn mánuði og eftir um tvær vikur var ég farin að sjá verulegan mun á húðinni, hár­ inu og nöglum. Ég ákvað því að taka aðra góða törn og keypti flöskur næstu tvo mánuðina og árangur­ inn lét ekki á sér standa! Ég náði svo að sannfæra mann­ inn minn um að prófa kísilinn líka. Hann er með psoriasis en kísillinn hefur reynst fólki með psoriasis einstaklega vel. Hann sá einnig mikinn mun á húð sinni og margir blettir sem hann var með urðu þynnri og minnkuðu til muna. Síðan þá höfum við nokkrum sinnum tekið tarnir með kísilinn frá geoSilica og alltaf sé ég jafn mikinn mun á mér og þá sérstaklega á húð­ inni og nöglunum. Auk þess finnst mér þetta minnka slen og stirðleika sem oft hellist yfir marga yfir vetrar­ tímann. Kísillinn getur meðal annars stuðlað að: n Fyrirbyggingu við beinþynningu n Styrkingu á hjarta­ og æðakerfi líkamans n Heilbrigði húðar og hárs n Sterkari nöglum n Góðri heilsu n Losun áls úr líkamanum n Aukinni upptöku annarra steinefna n Örvun kollagenmyndunar Það er alltaf gaman að deila góð­ um lausnum og vörum með öðrum! n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.