Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Side 19
Vikublað 20.–22. september 2016 Kynningarblað - Áhrifaríkar meðferðir 3
Demantshúðslípun: Áhrifarík
meðferð fyrir fólk á öllum aldri
Abaco heilsulind, Hrísalundi 1, 600 Akureyri
H
úðslípun er afar öflug og ör-
ugg húðmeðferð sem Abaco
Heilsulind á Akureyri býður
upp á. Meðferðin er fram-
kvæmd með Silk Peel húð-
slípunartæki. Þetta er heildræn húð-
meðferð þar sem ysta lag húðarinnar
er fjarlægt með notkun örsmárra krist-
alla og demanta. Árangurinn er slétt-
ari, mýkri og þéttari húð, auk þess sem
áferð húðarinnar verður fallegri. Húð-
slípun er meðferð sem hentar fólki
á öllum aldri og er örugg fyrir allar
húðgerðir. Strax eftir fyrstu meðferð
fær húðin ferskan blæ, verður þéttari,
mýkri, hreinni og unglegri.
Þessi einstaka húðmeðferð lætur
húðina líta betur út og endurheimta
ljóma sinn. Dauðar húðfrumur eru
fjarlægðar, blóðflæði örvað og vöxtur
nýrra fruma og bandvefur örvast.
Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn
öldrun húðarinnar. Eldri húð sem
farin er að þynnast styrkist og þéttist.
Meðferðin veitir örugga hreinsun á
yfirborði húðarinnar, dregur úr húð-
stíflum og opnar húðholur dragast
saman. Sjáanlegur munur á húðinni
er eftir hvert skipti og verða stöðugar
framfarir á ástandi hennar.
Húðslípun vinnur meðal annars á
eftirtöldum vandamálum:
n Ótímabær öldrun
n Fínar línur og hrukkur
n Ör eftir skurði og bólur
n Hörundslýti og húðþykkildi
n Unglingabólur og óhrein húð
n Exemhúð
n Húðslit
Mælt er með að taka þrjár með-
ferðir með u.þ.b. tveggja vikna milli-
bili til að ná sem bestum árangri.
Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir því
hvaða vandamáli er verið að vinna
á. Eitt skipti frískar verulega upp á
húðina og gefur ljóma og gott útlit.
Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt
með að lágmarki 6 meðferðum með
tveggja til þriggja vikna millibili til að
ná sem bestum árangri. Sama á við
um meðferðir við húðsliti.
Eftirmeðferð
Bera skal rakakrem á meðferðarsvæði
og nota rakamaska fyrstu dagana eftir
meðferð. Forðast ber sól og ljósabekki
í a.m.k. þrjá sólarhringa eftir með-
ferð. Forðast jafnframt sund og heita
potta í a.m.k. þrjá sólarhringa. Sleppa
skal líkamsrækt sama dag og meðferð
á sér stað. Nota á SPF 30 sólarvörn
eða sterkari í viku eftir meðferð.
Um Abaco Heilsulind
Abaco Heilsulind er staðsett að Hrísa-
lundi 1 á Akureyri. Þetta er ein best
búna heilsulind landsins, einstakur
staður til að slaka á, endurnærast og
njóta lífsins. Abaco býður viðskipta-
vinum sínum upp á herðanudd og
kaldsteinanudd ofan í heitum potti.
Steinanuddið er einstakt og mjög sér-
stök upplifun: Herðar, háls, bringa og
andlit eru nudduð með köldum stein-
um, sem vekur mikla vellíðan. Þetta
hentar fyrir pör og hópa. Einnig er
boðið upp á andlitsmaska í pottinum.
Viðskiptavinir Abaco eru hvattir
til að nýta sér aðgang að baðstofunni
þegar komið er í nudd eða snyrtimeð-
ferðir, en aðgangur er innifalinn í öll-
um meðferðum.
Vínveitingaleyfi er á staðnum og
gestir geta hresst sig á víni, bjór eða
gosdrykkjum.
Í Abaco Heilsulind er boðið upp
á allar helstu snyrtimeðferðir, eins
og litun og plokkun, hand- og fót-
snyrtingu, vaxmeðferðir, Guinot and-
litsmeðferðir og demantshúðslípun.
Abaco Heilsulind er eina stofan á
Akureyri sem býður upp á St.Tropez
brúnkumeðferðir. Auk þess eru í boði
lasermeðferðir til háreyðingar og til
að vinna á háræðasliti. Enn fremur
er til staðar frystipenni sem virkar á
húðflipa og vörtur.
Boðið er upp á flestar tegundir af
nuddi, eins og slökunarnudd, heils-
unudd, íþróttanudd, ilmolíunudd og
heit- og kaldsteinanudd. Einnig er í
boði meðgöngunudd en á stofunni er
sérstakur meðgöngubekkur.
Í Abaco starfa hjúkrunarfræðing-
ur, snyrtifræðingar og nuddarar.
Í Abaco er auk þess glæsileg
ljósastofa og eru fjórir Ergoline-
ljósabekkir.
Hægt er að kaupa gjafabréf í
Abaco Heilsulind og eru þau afar vin-
sæl gjöf.
Þá má geta þess að á staðnum er
til sölu úrval húðsnyrtivara, með-
al annars frá Guinot, Sothys, Al-
essandro, St. Tropez og margt fleira.
Síminn í Abaco Heilsulind er 462-
3200 og netfangið er abaco@abaco.
is. Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni abaco.is. n