Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2016, Blaðsíða 8
Vikublað 6.–8. desember 20168 Fréttir Bílahitari Við einföldum líf bíleigandans Termini 1700 bílahitarinn er tilvalin lausn. Hann er lítill og nettur og auðvelt að koma honum fyrir t.d. undir mælaborði bílsins. Allur tengibúnaður fylgir ásamt tímarofa sem ræsir hitarann t.d. klukkutíma áður en þú leggur af stað. Verð kr. 39.000 Væri ekki dásamlegt að sleppa við að skafa glugga og geta sest inn í heitan og notalegan bílinn á köldum vetrarmorgni? Láttu verkstæðið sjá um ísetninguna. Verð frá kr. 49.900 með ísetningu. 11.0 52 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21 S vissneski predikarinn Simon Ott, sem er 23 ára gamall, hefur gert víðreist um landið síðan að hann kom til Íslands fyrir tveimur mánuðum. Óhefðbundnar aðferðir hans við að predika Guðs orð hafa bæði vakið undrun og reiði Íslendinga. Lögreglan hefur margoft haft af- skipti af Ott og nú hefur sá sviss- neski verið ákærður fyrir haturs- orðræðu líkt og útvarpsmaðurinn Pétur Gunnlaugsson og samfélags- rýnirinn Jón Valur Jensson. Sat í fangelsi í 11 klukkustundir „Ég gerði mér alveg grein fyrir því að aðferðir mínar, sem eru ögrandi og umdeildar, yrðu ekki líklegar til vinsælda. Ég hef komist í hann krappan hérlendis en lögreglan hér hefur veitt mér mikið rými, mun meira en lögreglan í heimalandi mínu,“ segir Ott. Að hans sögn hafi þó orðið breyting þar á undanfarna daga en lögreglan á Norðurlandi eystra handtók Svisslendinginn og lét hann dúsa í fangaklefa í 11 klukkustundir. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég stæði á skóla- lóð. Í framhaldinu sagði lögreglan mér að ég yrði fangelsaður ef ég léti ekki af þessari hegðun minni. Ég veit ekki nákvæmlega hvort ég eigi að hætta alveg að predika eða passa mig á því að það sé ekki á einkalóð- um,“ segir Ott. Hótað nauðgun Að hans sögn hefur hann ítrekað lent upp á kant við Íslendinga undanfarna tvo mánuði. Hann var kýldur nokkrum sinnum í Reykja- vík og þá gerði kona ein tilraun til þess að sparka í punginn á honum. „Henni mislíkaði það að ég kallaði hana hóru af því hún stundaði kynlíf utan hjónabands,“ segir Ott og telur að Guð hafi gert sér kleift að verjast árásinni. Þá hafa viðar- krossar sem hann hafi útbúið verið brotnir og bramlaðir auk þess sem hinsegin fána í hans eigu var stolið. „Ég stóð ofan á honum fyrir utan Dunkin' Donuts en þá kom hópur manna askvaðandi frá nærliggjandi bar. Þeir ýttu mér, tóku fánann og einn þeirra tróð honum ofan í bux- urnar sínar. Þangað gat ég ekki náð í fánann, það hefði verið kynferðisleg áreitni,“ segir Ott. Að hans sögn var hann eltur af hópi fólks á Skagaströnd, þá reyndi maður að kyrkja hann fyrir utan bar á Akureyri. „Í Reykjavík elti mig maður sem sagðist vera samkyn- hneigður og hótaði að nauðga mér,“ segir Ott. Gaf Ott ullarpeysu og fimm þúsund krónur Ekki hafa þó allir brugðist svona við predikunum Svisslendings- ins. Þriggja barna móðir á fertugs- aldri fyrir norðan sá aumur á Ott og leyfði honum að gista á heim- ili hennar eina nótt. „Ég varð vitni að því þegar hann var handtekinn án aðvarana eða skýringa fyrr um daginn þegar hann talaði í róleg- heitum við unglinga. Ég hitti hann aftur síðar um daginn og bauð hon- um næturgistingu. Hann ráfaði þá peningalaus um bæinn með einn ost í poka. Ég gaf honum að borða, leyfði honum að fara í sturtu og þvo fötin sín. Síðan tæmdi ég ísskápinn minn ofan í poka handa honum, gaf honum ullarpeysu og fimm þúsund kall og vona að hann finni sér hlýj- an og þurran stað til að sofa á í nótt, segir konan. n n Segir samkynhneigðan mann hafa hótað að nauðga sér Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Henni mislíkaði það að ég kallaði hana hóru af því hún stund- aði kynlíf utan hjónabands Simon Ott Hefur verið ákærður fyrir hatursorð- ræðu og á yfir höfði sér tveggja ára dóm. Simon predikari ákærður fyrir hatursorðræðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.