Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 6.–8. desember 201624 Menning K vikmyndaheimurinn logar eftir að áður óbirt viðtal við einn virtasta kvikmynda­ gerðarmann Ítalíu, Óskars­ verðlaunaleikstjórann Bernaldo Bertolucci, skaut upp koll­ inum á dögunum, en þar viðurkennir hann að hafa skipulagt nauðgunar­ atriði í hinni alræmdu kvikmynd Last Tango in Paris án vitundar aðalleikkonunnar. Last Tango in Paris er með um­ deildari kvikmyndum 20. aldarinn­ ar. Þegar hún kom út árið 1972 vakti hún sérstaka athygli fyrir ofbeldi og opinská kynlífsatriði, en myndin fjallar um stormasamt ástarævintýri bandarísks ekkils og ungrar franskrar konu. Atriði þar sem ekkillinn nauðgar ungu konunni er í handritinu, en í viðtali sem var tekið á kvikmynda­ hátíðinni La Cinématheque í París árið 2013 viðurkennir Bertolucci að hann og aðalleikarinn Marlon Brando hafi ákveðið í sameiningu að gera atriðið ógeðfelldara með því að láta hann nota smjör sem sleypiefni þegar hann nauðgar ástkonu sinni, sem var leikin af hinni 19 ára gömlu Mariu Schneider. Þeir ákváðu hins vegar að láta Schneider ekki vita af breytingunni til að ná fram raunveru­ legum óttaviðbrögðum frá henni. „Að nota smjörið var hugmynd sem við Marlon fengum morguninn fyrir tökurnar. En að vissu leyti var það hræðilega gert að segja ekki Mariu hvað myndi gerast. Ég vildi hins vegar að hún sýndi viðbrögð sem stelpa en ekki sem leikkona,“ segir Bertolucci. „Ég vildi ekki að Maria léki niður­ læginguna og reiðina. Ég vildi að hún myndi upplifa hana en ekki leika – og hún hataði mig eftir það.“ Hann sagðist vera fullur sektarkenndar en þó ekki sjá eftir því að hafa fram­ kvæmt atriðið á þennan hátt. Maria Schneider lést úr krabba­ meini árið 2011 en hún glímdi lengi við alvarlegt þunglyndi og eiturlyfja­ fíkn. Hún hafði oft talað illa um Ber­ tolucci í viðtölum, sagt það eina sem hún sæi eftir í lífi sínu væri að hafa leikið í myndinni hans, hann væri „glæpamaður og melludólgur“ og að hanni hafi rænt hana æskunni. Í við­ tali árið 2007 sagði hún að þótt kyn­ lífið í Last Tango in Paris hafi ekki verið raunverulegt hafi henni fundist henni hafa verið „pínulítið nauðgað“ við gerð myndarinnar. Hún sagðist hafa verið gríðarlega reið og hvor­ ugur mannanna hafi huggað hana eða beðist afsökunar: „Marlon sagði bara: engar áhyggjur Maria, þetta er bara bíómynd.“ Meðal leikara sem hafa stigið fram og fordæmt Bertolucci eru Jessica Chastain, Anna Kendrick og Chris Evans. n Sér ekki eftir neinu Bertolucci segist skammast sín fyrir að hafa ekki sagt Schneider frá breytingunum en segist þó ekki sjá eftir því. Mynd EPA Eitt alræmdasta nauðgunaratriði kvikmyndasögunnar verður enn umdeildara Ógeðfellt atriði Maria Schneider sagði að henni hafi fundist sér hafa ver- ið pínulítið nauðgað í Last Tango in Paris enda hafi Brando og Bertolucci ákveðið að gera atriðið grófara án þess að láta hana vita. n Bertolucci viðurkennir að hafa gert atriðið grófara án þess að láta leikkonuna vita n Vildi ná fram raunverulegum viðbrögðum Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Vinnum fyrir öll tryggingafélög Skútuvogi 12h, Reykjavík S: 568-9620 - bilaretting.is Útvegum bifreið meðan á viðgerð stendur Okkar kjarnastarfssemi er greiðslumiðlun og innheimta. Hver er þín? 515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is Síðan 2006

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.