Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 20
Helgarblað 9.–12. desember 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
20 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Björn Valur orðinn
Sigmundur Davíð
Vinstri grænna?
Ýmsir hafa klórað sér í kollinum
að undanförnu yfir framgöngu
varaformanns VG, Björns Vals
Gíslasonar, frá síðustu kosningum.
Meðan að á stjórnarmyndunar-
viðræðum hefur staðið hefur
Björn Valur ritað hvern pistilinn
á fætur öðrum á heimasíðu sína
þar sem hann hefur lagt eitt og
annað til málanna, og misvinsælt.
Þannig skrifaði
Björn Valur 4. des-
ember síðastliðinn
að hryggjarstykkið
í næstu ríkisstjórn
yrðu ekki miklar
og hraðar kerfis-
breytingar. Þetta
kom við kaun-
in á mörgum, samflokksmönn-
um Björns Vals sem og öðrum,
enda mikil áhersla verið lögð á
svokallaðar kerfisbreytingar í
landbúnaði, sjávarútvegi, stjórn-
arskrármálum og fleiru af hálfu
hugsanlegra samstarfsflokka
VG takist að mynda fimm flokka
stjórn frá miðju til vinstri.
Innan VG er fullyrt að Björn
Valur hafi með þessum skrifum
beinlínis verið að vinna gegn
myndun slíkrar ríkisstjórnar.
Hann sé enda áfram um að VG
fari í samstarf með Sjálfstæðis-
flokki, enda sjái hann fram á að
fleiri ráðherrastólar verði þá til
skiptanna. Björn Valur mun ætla
sér einn slíkan í krafti varafor-
mannsembættisins. Hins vegar
er hann nokkurn veginn alveg
einn um þá afstöðu innan VG og
er Björn Valur raunar orðinn svo
einangraður innan flokksins að
haft er þar í flimtingum að hann
sé orðinn Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson Vinstri grænna.
Hvað má segja börnum?
J
ólin nálgast og flestir bíða
þeirra í tilhlökkun. Vissulega
eru til þeir sem láta sér fátt um
allt tilstandið finnast og geyma
ekki jólaandann í brjósti sér, en
vonandi ekki margir. Jólin eru ljúf-
ur tími sem minnir okkur á náunga-
kærleik og allt það góða.
Á þessum tíma eru
jólaskreytingar alls staðar, þar eru
ekki bara jólasveinar áberandi held-
ur einnig englar og Jesúbarnið. Jóla-
lögin hljóma og þar er mikið um lof-
söng til Guðs og frelsarans. Enginn
ætti að komast hjá því að vita af
hverju við fögnum jólunum. Stund-
um er samt eins og vilji sé til þess að
börnin viti sem minnst af því.
Á hverju ári verða umræður um
heimsóknir skólabarna í kirkjur
um jól, en af einhverjum ástæðum
hleypir tilhugsun um þær heim-
sóknir illu blóði í einhverja sem
rausa mjög um skelfilega trúarinn-
rætingu. Það er engu líkara en að
velferð barna sé í stórhættu stígi
þau inn í kirkju á skólatíma í des-
ember og hlusti á prest segja frá
fæðingu frelsarans. Þarna er full-
mikill æsingur á ferð. Það er nú ekki
eins og prestar landsins séu ofsa-
trúarfólk sem hóti börnunum for-
dæmingu og eldum helvítis hneigi
þau sig ekki í auðmýkt frammi fyrir
altarinu.
Flest börn ættu að hafa gleði og
ánægju af því að fara inn í fallega
skreytta kirkju og heyra fagra sögu
um fæðingu barns. Flestir foreldrar
vilja örugglega að börn sín fari í
slíka heimsókn. Svo eru þeir sem
vilja það ekki. Enginn vill þvinga þá
til að gefa samþykki sitt og enginn
ætti heldur að vilja draga börn
óviljug inn í kirkju. Það er trúfrelsi
í landinu og það ber að virða. Á
sama hátt og ekki skal þvinga neinn
í kirkjuheimsóknir skal heldur ekki
meina skólabörnum að fara í guðs-
hús og fræðast þar um kristna trú.
Maður á allt eins von á því að
fólkið, sem ekki getur hugsað sér
heimsóknir skólabarna í kirkjur
landsins, fari fram á að textar jóla-
laga séu ritskoðaðir og nafn Jesú og
Guðs máð úr þeim. Þessu fólki væri
vel trúandi til að halda því fram að
gríðarleg innræting sé í textum sem
börn og unglingar læra ósjálfrátt ut-
anað og fela í sér lofsöng til almætt-
isins. Það væri alveg eftir þessum
hóp að spyrja vandlætingarfullt:
Er virkilega við hæfi að syngja slíka
söngva á jólaskemmtunum í skól-
um? Er ekki rétt að forða börnum
frá svo vondri innrætingu?
Kristin trú hefur haft jákvæð
áhrif á menningu okkar og lífs-
viðhorf, enda einkennist hún af
náungakærleik. Afar margir leitast
við að verða ögn betri manneskjur
um jól og það getur ekki verið
annað en gott. Náungakærleik
gleymum við of oft. Jólin minna
okkur rækilega á gildi hans. n
Myndi sinna þessu
starfi án launa
Björn Einarsson íhugar framboð til formanns KSÍ. – DV
Við viljum bara
fá að vera í friði
Ólafía og Andri, eigendur Immortal Art. – DV
Ég hef komist í hann
krappan hérlendis
Predikarinn Simon Ott er umdeildur. – DV
„Það er engu líkara
en að velferð
barna sé í stórhættu stígi
þau inn í kirkju á skóla-
tíma í desember og hlusti
á prest segja frá fæðingu
frelsarans.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Aðventa Eftirvænting eftir jólum nálgast nú árstíðarbundið hámark þegar jóladagatöl, jólasveinar og óskalistar renna saman í ægilegri iðu. Krakkar í Vesturbæjarskóla tóku forskot á sæluna og dönsuðu í kring um
tréð á Austurvelli á fimmtudagsmorgun. mynD SiGtryGGur Ari
Sandkorn