Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Side 8
Vikublað 20.–21. desember 20168 Fréttir
F
járfestingarsjóður á vegum
bandaríska eignastýringar
fyrirtækisins Eaton Vance
Management komst nýlega
í hóp stærstu hluthafa
Icelandair Group með tæplega eins
prósents eignarhlut. Sjóðurinn
Global Macro Portfolio, sem hefur
fjárfest í fjölmörgum skráðum félög
um á Íslandi á undanförnum miss
erum, er eini erlendi fjárfestirinn
sem kemst á lista yfir tuttugu stærstu
hluthafa flugfélagsins. Sé tekið mið af
núverandi markaðsvirði Icelandair,
sem er um 115 milljarðar króna, þá er
hlutur bandaríska sjóðsins metinn á
liðlega 1.150 milljónir króna.
Fjárfestingarsjóðurinn, sem
er stýrt af Boston Research
Management, dótturfélagi Eaton
Vance, hóf fyrst að kaupa bréf í
Icelandair fyrr á þessu ári og bætti
síðan talsvert við eignarhlut sinn
í flugfélaginu síðastliðið haust. Þá
hefur annar sjóður á vegum Eaton
Vance – Global Macro Absolute Ret
urn Advantage – jafnframt staðið að
kaupum á bréfum í Icelandair á ár
inu, samkvæmt upplýsingum DV.
Sú fjárfesting hefur hins vegar verið
smærri í sniðum og því ekki skilað
sjóðnum á lista yfir tuttugu stærstu
hluthafa félagsins.
Sjóðirnir byrjuðu að fjárfesta á
íslenskum hlutabréfamarkaði, eins
og áður hefur verið fjallað um á síð
um DV, fljótlega eftir að stjórnvöld
kynntu aðgerðaáætlun sína um los
un fjármagnshafta í júní 2015. Eru
þeir í reynd einu erlendu fjárfest
arnir sem hafa gert sig gildandi á
hlutabréfamarkaði hérlendis svo
einhverju nemi eftir fjármálaáfallið
haustið 2008. Þannig voru sjóðirnir
í lok síðustu viku á lista yfir tuttugu
stærstu hluthafa í sex skráðum fé
lögum – Icelandair, Högum, Reitum,
HB Granda, Símanum og Eimskip
um – og nemur samanlagt mark
aðsvirði eignarhlutanna um 7,5
milljörðum króna. Þá komst Global
Macro Portfolio sömuleiðis um tíma
í hóp stærstu eigenda fasteignafé
lagsins Regins í októbermánuði síð
astliðnum með 1,12 prósenta hlut.
Varlega áætlað eiga bandarísku
sjóðirnir tveir samtals um eitt pró
sent af heildarhlutafé á íslenskum
hlutabréfamarkaði.
Lítið um erlenda fjárfesta
Þrátt fyrir erfitt árferði á markaði það
sem af er þessu ári – Úrvalsvísitala
Kauphallarinnar hefur lækkað um
níu prósent – þá vegur á móti að gengi
krónunnar hefur styrkst um liðlega
fimmtán prósent gagnvart Banda
ríkjadal. Fjárfesting sjóða Eaton
Vance á íslenskum hlutabréfamark
aði hefur því almennt skilað þeim
ágætis ávöxtun. Þetta á ekki síst við
um félög á borð við Eimskip og Haga
en gengi bréfa þeirra hefur hækkað
mikið á árinu. Annað gildir hins vegar
um fjárfestingu sjóða Eaton Vance í
Icelandair en hlutabréf fyrirtækisins
hafa lækkaði í verði um meira en 32%
frá áramótum eftir að leiðrétt hefur
verið fyrir arðgreiðslum.
Ef undan er skilið árið 2009, þegar
aðeins 0,2 prósenta hlutur skilaði
DnB NOR Bank ASA í hóp tuttugu
stærstu hluthafa Icelandair, þarf að
fara allt aftur til 2006 til að finna er
lenda fjárfesta sem komust inn á
lista yfir stærstu hluthafa flugfélags
ins. Þá áttu erlendir fjárfestar sam
anlagt liðlega þriggja prósenta hlut
í félaginu og nam eignarhlutur þess
stærsta – Credit Suisse Securities
Europe – 0,9 prósentum. Samkvæmt
ársskýrslum Icelandair Group fyrir
árin 2007 og 2008 nam samanlagður
eignarhlutur erlendra fjárfesta í fyrir
tækinu hins vegar aðeins um 1,2 pró
sentum. Enginn í hópi þeirra hluthafa
var á meðal tuttugu stærstu eigenda
félagsins.
Fá óháða matsmenn
Kaup sjóðanna í skráðum íslenskum
félögum eru ekki síst áhugaverð
fyrir þær sakir að Eaton Vance er
á meðal þeirra bandarísku fjár
festingarsjóða sem kanna núna
þann möguleika að höfða málsókn á
hendur íslenska ríkinu vegna frum
varps fjármálaráðherra um meðferð
aflandskrónueigna. Eaton Vance
er sem kunnugt er á meðal stærstu
aflandskrónueigenda – sjóðurinn
á aflandskrónur fyrir meira en 30
milljarða – og féllst ekki á þau skil
yrði sem voru sett í gjaldeyrisútboði
Seðlabanka Íslands í sumar til að
leysa út aflandskrónueignir að fjár
hæð samtals 320 milljarða.
DV greindi frá því 6. desember
síðastliðinn að Héraðsdómur
Reykjavíkur hefði fallist á beiðni
Eaton Vance og bandaríska vog
unarsjóðsins Discovery Capital,
sem er jafnframt stór aflandskrónu
eigandi, um að skipaðir verði tveir
óháðir erlendir matsmenn sem
eiga að meta þær efnahagslegur
forsendur sem lágu til grundvallar
aðgerðum íslenskra stjórnvalda um
meðferð aflandskrónueigna. Telja
sjóðirnir að aðgerðirnar sem gripið
var til verði ekki réttlættar með
vísan til efnahagslegrar nauðsynjar.
Skömmu áður hafði Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA) hins vegar komist að
þeirri niðurstöðu að frumvarp ráð
herra væri í samræmi við skuld
bindingar Íslands gagnvart EES
samningnum. Tók stofnunin
því ekki undir kvartanir sömu
aflandskrónueigenda þess efnis að
aðgerðir ríkisins til að losa höft hafi
falið í sér ólögmæta eignaupptöku
og brot á jafnræðisreglu stjórnar
skrárinnar. n
Verið ávallt velkomin
Almar bakari
Bakarí og kaffihús Sunnumörk
Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17
Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega
og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt
að 18 tíma og því notum við engan viðbættan
sykur, minna salt og minna ger í hvert og
eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau
bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er
súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn
lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er
bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu.
Bandarískur sjóður eignast
eitt prósent í Icelandair
n Aflandskrónueigandi á meðal stærstu hluthafa n Umsvifamikill í sex skráðum félögum
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Erfitt gengi Bréf Icelandair hafa lækkað um
meira en 32% frá áramótum eftir að leiðrétt hefur
verið fyrir arðgreiðslum. Markaðsvirði fyrirtækisins
er í dag 115 milljarðar króna. Mynd Sigtryggur Ari