Fréttablaðið - 13.06.2017, Síða 18

Fréttablaðið - 13.06.2017, Síða 18
Almenningur er æ meðvitaðri um mikilvægi heilsunnar og eru útihlaup hluti af breytt- um lífsstíl hjá mörgum sem þannig hugsa. Útihlaup er góð aðferð til að stuðla að bættu líkamlegu formi og ekki þarf dýran búnað til að byrja þó vissulega sé mikilvægt að huga vel að góðum skóm. Þeir sem eru að hefja hlaup þurfa þó að huga að ýmsum þáttum, segir Gunnar Páll Jóa- kimsson, hlaupaþjálfari og íþróttafræðingur. Forsendur séu mjög misjafnar hjá byrjendum þar sem líkamlegt ástand og aldur hafi mikið að segja. Frumskilyrði sé þó að byrja rólega og gefa sér góðan tíma til að aðlagast breyttu álagi. „Ekki falla í þá gryfju að finnast að meira sé alltaf betra. Öll hreyfing er betri en engin. Sumir eru með góðan grunn úr öðrum íþróttum og geta byrjað á hlaupaæfingum. Aðrir byrja að ganga og blanda síðan saman göngu og skokki. Fyrstu vikurnar geta verið með einföldum æfingum en eftir það er betra að hafa æfingarnar fjölbreyttar, bæði hvað varðar hlaupaleiðir og æfingaálag. Flest- allir eiga að geta stundað hlaup sem heilsurækt en ganga er líka ágætt form líkamsræktar fyrir þá sem ekki geta eða vilja hlaupa.“ Skór skipta máli Ekki er nauðsynlegt að fjárfesta í dýrum útbúnaði en þó skipta góðir skór máli, segir Gunnar Páll. „Mikið framboð er af alls kyns góðum skóm en skór geta verið fínir til síns brúks þó þeir henti ekki fyrir þig. Þá eru bestu skórnir fyrir utanvega- hlaup ekki alltaf góðir á malbikinu. Því er gott að leita ráða við val á skóm. Mikið framboð er af góðum útivistarfatnaði sem hentar vel til hlaupa. Á Íslandi eru fingravett- lingarnir góðir, með þá líður þér betur þó þú sért léttklæddur að öðru leyti. Í íslenska rokinu er gott að vera í hlýjum undirfatnaði og þar yfir í léttum skjólfatnaði sem ver þig gegn vindinum.“ Hann ráðleggur byrjendum að skrá sig í hlaupahóp, slíkt hafi gjörbreytt viðhorfinu hjá fjölmörgum til hlaupa. „Innan hlaupahópa fæst leiðsögn og aðhald. Ekki bara frá leiðbein- endunum heldur líka frá hinum í hópnum. Auðvitað kjósa margir að hlaupa einir en það er þá auð- velt að blanda þessu saman. Ég ráðlegg öllum að finna sér félags- skap í hlaupunum, allavega einu sinni í viku. Þá er gaman að hafa samband við hlaupahópa þegar þú ert á ferðalagi og njóta þekk- ingar þeirra á hlaupaleiðum á sínu svæði.“ Muna að teygja Teygjur og styrktar æfingar skipta einnig máli, segir Gunnar Páll. „Hlaupin ein og sér eru of einhæft form líkamsræktar. Ég ráðlegg öllum að taka einhverjar styrkt- aræfingar með hlaupunum. Eftir æfingu er best að taka sér tíma til að taka teygjuæfingar og léttar styrktaræfingar, með eða án tækja. Þá er rétt að liðka sig alltaf vel í upphafi. Upphitun með göngu eða skokki og léttum liðkunaræfingum ef fara á í einhverjar krefjandi æfingar. Annars að byrja allar æfingar rólega, jafnvel á göngu, og enda þær á sama hátt.“ Að lokum bendir hann á að ýmsir skemmtilegir viðburðir þar sem allir geta tekið þátt, skemmti- skokkarar jafnt sem afreksfólk, hafi átt sinn þátt í að fjölga þátttakend- um. „Fjölbreytni þessara viðburða er líka alltaf að aukast. Sumum finnst gaman að taka þátt í götu- hlaupum en aðrir heillast af utan- vegahlaupum. Það er hvetjandi að setja sér takmark og vera með í viðburði sem viðkomandi þarf að þjálfa markvisst fyrir í langan tíma til að taka þátt. Á síðunni hlaup. is er að finna fjölda viðburða sem höfða til ólíkra hópa auk lista yfir flesta starfandi hlaupahópa hér á landi.“ Starri Freyr Jónsson starri@365.is „Fyrstu vikurnar geta verið með einföldum æfingum en eftir það er betra að hafa æfingarnar fjölbreyttar,“ segir Gunnar Páll Jóakimsson, hlaupaþjálfari og íþróttafræðingur. MYND/ANTON BRINK Frumskilyrði að byrja rólega Margir byrja að stunda útihlaup á þessum árstíma. Nauðsynlegt er að gefa sér góðan tíma til að aðlagast breyttu álagi og huga vel að hlaupaskóm. Kæri Nágranni Okkur langar að benda ykkur á nokkur atriði varðandi Secret Solstice hátíðina sem fer fram 15. til 18. Júní. Við munum gera allt sem getum til að lágmarka það ónæði sem nágrannar okkar verða fyrir á meðan hátíðinni stendur. Við vinnum náið með Reykjavíkurborg til að ganga úr skugga um að allir njóti helgarinnar á meðan við gætum fyllsta öryggis bæði gesta og íbúa. Hávaðamengun: Öll sviðin okkar eru staðsett með það í huga að lágmarka hávaðamengun í íbúðahverfum í kring. Þá munum við vera með reglulegar hávaðamælingar til að tryggja að við höldum okkur innan þess sem leyfilegt er. Það verður spiluð lifandi tónlist úti fimmtudaginn 15. júní frá kl. 18:00 til 23:30, og frá 12:00 til 23:30 dagana 16. til 18. júní. Hvernig dag munu hljóðprufur hefjast klukkan 11:00 Miðvikudaginn 14. júní munu fara fram prófanir á hljóðkerfum klukkan 15:00 Með kærri kveðju Starfsfólk Secret Solstice 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . j ú N í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 3 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 0 -B 9 C 8 1 D 1 0 -B 8 8 C 1 D 1 0 -B 7 5 0 1 D 1 0 -B 6 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.