Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 2
Garðtraktorar fyrir þá kröfuhörðu Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Veður Norðan- og norðvestanátt, víða 5-13 m/s. Rigning með köflum norðan til og slydda til fjalla. Lengst af þurrt og bjart syðra. sjá síðu 16 PERsÓNuVERND Rafræn vöktun IKEA utan lóðarmarka fyrirtækisins er óheimil. Sömu sögu er að segja af sér- stakri vöktun og skráningu upplýs- inga um einstaklinga sem fyrirtækið telur óæskilega í versluninni. Þetta felst í ákvörðun Persónuverndar. Ákvörðuninni er ekki hægt að áfrýja til dómstóla. „Að mínu mati er þetta ofboðs- lega þröng túlkun á þessum lögum og reglum sem sníður okkur afar þröngan stakk. Mér finnst líka skjóta skökku við að fyrirtæki á borð við Facebook og YouTube geti látið upp- lýsingar um okkur ganga kaupum og sölum en við megum ekki passa upp á okkar eigin eigur,“ segir Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi. Þórarinn segir að vöktunin hafi gefið góða raun. Myndavélin sem vaktar bílastæðin hafi komið að notum þegar keyrt hefur verið á bíla, ef einhver slasast á bílastæðinu eða ef einhver heldur því fram að inn- kaupakerra hafi skemmt bíl sinn. Sömu sögu sé að segja af bílnúmera- vöktuninni. Nú viti starfsmenn um leið ef einhver sem hefur valdið tjóni eða stolið mæti í verslunina. „Ég á eftir að fara yfir þetta með lögfræðingi en niðurstaðan er mikil vonbrigði,“ segir Þórarinn. „Ein af forsendum stofnunarinnar er sú að svið myndavélarinnar nái út fyrir lóðarmörk IKEA. Við eigum eftir að kanna hvort þetta sé heimilt ef önnur fyrirtæki á svæðinu sam- þykkja vöktunina.“ – jóe Vonbrigði að þurfa að láta af vöktuninni FORNLEIFAR Fornleifarannsóknir á bænum Stöð í Stöðvarfirði hafa leitt í ljós að tveir skálar voru reistir þar á níundu og tíundu öld. Eldri skálinn er sennilega frá fyrri helm- ingi níundu aldar, frá því áratugum áður en Ingólfur Arnarson er sagður hafa numið Ísland, en líklegt þykir að hinn skálinn hafi verið byggður einhvern tímann á níundu eða tíundu öld. Bjarni F. Einarsson fornleifafræð- ingur, sem stýrir rannsóknunum, segir í samtali við Fréttablaðið að tilgáta rannsakenda sé sú að húsarústirnar á svæðinu hafi verið útstöð frá Skandinavíu eða öðrum norrænum byggðum á fyrri hluta níundu aldar. Þar hafi fólk dvalið áður en hefðbundið landnám hófst. „Það er ekkert sem hefur breyst í þeim efnum enn þá. Við gerum allt til þess að reyna að afsanna tilgátu okkar en það hefur ekki tekist enn sem komið er,“ segir hann. Þess má geta að mannvistarleifar frá svipuðum tíma hafa áður fundist í Kvosinni í Reykjavík, í Höfnum á Reykjanesi og Húshólma við Krýsu- vík. Fornleifarnar voru rannsakaðar í ágúst og september í fyrra og var markmiðið fyrst og fremst að stað- festa að skálar hefðu verið reistir á staðnum. Bjarni segir hins vegar að langtímamarkmiðið sé að komast að því hvort um hafi verið að ræða hefðbundið landnámsbýli eða útstöð skömmu fyrir landnámið. Í sumar verður svæðið, og þá sér- staklega skálarnir tveir, kannað nánar. „Við hófumst aftur handa 1. júní. Líklega elstu merki um landnám á Íslandi Fornleifarannsóknir á Stöð í Stöðvarfirði halda áfram í sumar. Þær hafa leitt í ljós að skálar voru reistir þar á níundu öld. Talið er að skálarnir hafi verið útstöð frá Skandinavíu. Uppgröfturinn er sagður einn sá áhugaverðasti í heiminum. Fetta sig og bretta Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu kom saman til æfinga á Laugardalsvelli í gær. Fram undan er leikur gegn toppliði Króata sem hreinlega verður að vinnast ætli liðið sér að eiga möguleika á að komast beint á heimsmeistaramótið í Rússlandi á næsta ári. Tapist leikurinn verður ansi strembið að ná í skottið á Króötum en þeir hafa reynst okkur erfiðir síðustu ár. Undirbúningur stendur yfir út vikuna en leikurinn er á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fornar rústir fundust fyrir tilviljun við gamla bæjarstæðið á Stöð árið 2003. Fornleifafræðingar rannsaka nú rústirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/FRIÐRIk ÞóR Það er ekkert sem hefur breyst í þeim efnum enn þá. Við gerum allt til þess að reyna að afsanna tilgátu okkar en það hefur ekki tekist enn sem komið er. Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingur Við lentum strax í úrhelli og fimbul- kulda, en nú er þetta farið að skána og allt komið á fullt,“ segir hann en hópur fornleifafræðinga undir stjórn Bjarna verður að störfum út mánuðinn. Fornleifarannsóknir Bjarna hlutu fyrr á árinu viðurkenningu sem ein tuttugu áhugaverðustu fornleifarann- sókna á heimsvísu í fyrra. Í umsögn sérfræðinga Archaeofeed, sem stóð að útnefningunni, kom fram að rann- sóknir Bjarna hefðu líklega leitt í ljós elstu merki um landnám á Íslandi. kristinningi@frettabladid.is Þórarinn, framkvæmdastjóri IkEA. LögREgLumáL Aðstoðaryfirlögreglu- þjónn segir lögregluyfirvöld ekki búa yfir upplýsingum um að hryðju- verk sé í undirbúningi hér á landi. Gera má ráð fyrir frekari lokunum fyrir umferð í miðborginni til að tryggja öryggi almennings á stórum viðburðum. Þetta kom fram í kvöld- fréttum Stöðvar 2 í gær. Í áhættumati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra vegna hryðju- verkahættu, sem gefið var út í janúar, er áhættan í meðallagi. Hryðjuverka- ógn hefur færst nær Íslandi vegna atburða sem orðið hafa í Svíþjóð, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi undanfarið. „Við teljum eðlilegt að við færum okkur í meðallag sem þýðir að það sé ekki hægt að útiloka hættuna á hryðjuverki,“ segir Gylfi Hammer Gylfason aðstoðaryfirlög- regluþjónn. – ósk Meiri áhersla á öryggi á stórum viðburðum 7 . j ú N í 2 0 1 7 m I ð V I K u D A g u R2 F R é t t I R ∙ F R é t t A B L A ð I ð 0 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 3 -B 6 3 4 1 D 0 3 -B 4 F 8 1 D 0 3 -B 3 B C 1 D 0 3 -B 2 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.