Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 4
Dómsmál „Ég held að það myndi
enginn dómari vilja sitja í þessu
máli fyrir héraðsdómi,“ segir Sig-
urður Tómas Magnússon, prófess-
or við lagadeild HR, um fyrirhugað
dómsmál vegna skipunar dómara í
Landsrétt. Það bendir allt til þess að
það muni reynast þrautin þyngri að
finna dómara sem ekki eru vanhæfir
í málinu.
Fréttablaðið greindi frá því á
laugardag að að minnsta kosti einn
þeirra umsækjenda sem metnir voru
hæfastir til dómarastarfsins, en fengu
ekki skipun eftir tillögu ráðherra,
hygðist fara í mál vegna þess. Aðrir
liggja enn undir feldi og kanna rétt-
arstöðu sína.
Í gær greindi Fréttablaðið svo frá
því að meðferð Alþingis við sam-
þykkt tillögu dómsmálaráðherra
hefði farið á svig við lög. Á það þyrfti
að reyna fyrir dómi vegna hugsan-
legrar bótaskyldu íslenska ríkisins.
Umsækjendur um starfið voru 37
talsins. Þeir hafa nær allir víðtæk
tengsl inn í lagastéttina, hafa verið
héraðsdómarar eða starfað innan
háskólanna. Þeir umsækjendur sem
eru starfandi héraðsdómarar koma
úr flestum héraðsdómstólum lands-
ins. Þau tengsl geta skapað vanhæfi.
„Þetta eru allt samstarfsmenn meira
og minna eða sitjandi í hæfnisnefnd.
Svo er augljóst að ef þetta færi fyrir
Landsrétt þá væri allur Landsréttur
vanhæfur. En héraðsdómurinn er
líka meira og minna vanhæfur held
ég,“ segir Sigurður Tómas.
Dómstólaráði er þá falið að finna
nýja héraðsdómara en ef það tekst
ekki verður ráðherra falið að skipa
dómara í málið. Líklega yrði þá fyrir
valinn lögmaður sem ekki hefur
neina dómarareynslu og stendur
aðeins utan við þennan nátengda
hóp, kæmi jafnvel úr stjórnsýslunni.
Dómsmálaráðherra er aftur á móti
vanhæfur í málinu og svo gæti farið
að allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar
þyki vanhæfir vegna þess að allir
tóku þeir þátt í afgreiðslu Alþingis
á málinu, sem líklega var ólögmæt.
„Yfirleitt hefur það verið þannig að
þegar ráðherra er vanhæfur þá er
annar ráðherra kallaður inn. Það
hefði verið heppilegt að hafa utan-
þingsráðherra núna. En að skipa
ráðherra bara til að framkvæma þetta
væri alveg nýtt. Það er spurning hvort
það þyrfti að skipa ráðherra ad hoc,
og forseti myndi þá gera það, til að
fara með málið. Það reynir á margt
þegar svona óvenjulegir hlutir gerast.
Þá reynir á þolrifin í þessu kerfi.“
snaeros@frettabladid.is
Allsherjar vanhæfi gæti vel
orðið raunin í dómaramálinu
Víðtæk tengsl fólks innan lögfræðistéttar gætu reynst til trafala við val á dómurum til að skera úr um dóms-
mál vegna skipunar dómara í Landsrétt. Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir vanhæfi stjórn-
málamanna einnig vera í augsýn. Dómaramálið gæti því reynst prófsteinn fyrir íslenska réttarkerfið.
Héraðsdómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur eru að minnsta kosti í mjög þröngri stöðu. Annað gæti gilt um héraðs-
dómara í öðrum umdæmum. FRéttAblAðið/GVA
Það hefði verið
heppilegt að hafa
utanþingsráðherra núna.
Sigurður Tómas Magnússon,
prófessor
Rafmagnssláttuvélar
Úrval garðsláttuvéla
fyrir rafmagn eða
rafhlöður
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Dómsmál Sameigendur á lögmanns-
stofunni Landslögum gættu and-
stæðra hagsmuna í Hæstaréttarmáli
um fasteignamat Hörpu í febrúar í
fyrra. Stjórn Lögmannafélags Íslands
lagði málið fyrir úrskurðarnefnd lög-
manna sem komst nýverið að þeirri
niðurstöðu að ekki hefði verið brotið
gegn lögum eða siðareglum lög-
manna.
Málið á upphaf að rekja til þess að
hæstaréttarlögmaðurinn Jóhannes
Karl Sveinsson tók að sér að reka mál
fyrir Hörpu í Hæstarétti, en í málinu
krafðist Harpa þess að úrskurður yfir-
fasteignamatsnefndar um opinbert
fasteignamat Hörpu yrði ógiltur. Til
varnar voru Þjóðskrá Íslands og
Reykjavíkurborg, en verjandi borg-
arinnar var Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son, sameigandi Jóhannesar á Lands-
lögum. Lex lögmannsstofa rak málið
fyrir Hörpu í héraði, þar sem félagið
tapaði, en þegar rúm vika var eftir af
gagnaöflunarfresti Hæstaréttar sagði
lögmaðurinn á Lex sig frá málinu og
Jóhannes tók við því að beiðni for-
stjóra Hörpu. Svo fór að Harpa vann
málið í Hæstarétti.
Í kjölfarið krafðist stjórn Lög-
mannafélags Íslands að úrskurðar-
nefndin legði mat á hvort Jóhannes
hefði brotið gegn 11. gr. siðareglna
lögmanna. Samkvæmt henni skal
lögmaður varast að taka að sér nýjan
skjólstæðing ef hagsmunir hans fá
ekki samrýmst hagsmunum skjól-
stæðings lögmanns á sömu stofu.
Úrskurðarnefndin benti á að fyrir
lægi að deilendur málsins, Harpa
og Reykjavíkurborg, hefðu verið
fyllilega upplýstir um að lögmenn
á sömu lögmannsstofu gættu hags-
muna hvors þeirra fyrir sig. Þeir
hefðu ekki lagst gegn tilhöguninni.
Virðist ekkert fram komið um að
með nokkrum hætti hafi verið brotið
gegn hagsmunum kæranda, stjórnar
Lögmannafélagsins, eða lögmanna
yfirleitt með að Jóhannes tæki að sér
málið.
Jóhannes segir í samtali við blaðið
að hann sé sammála túlkun nefndar-
innar. Hann hefði ekki tekið málið að
sér nema af því að allir hlutaðeigandi
samþykktu það sérstaklega og Harpa
var í þröngri stöðu. – kij
Sameigendur á Landslögum gættu andstæðra hagsmuna
Deilendur málsins voru
fyllilega upplýstir um að
lögmenn á sömu lögmanns-
stofu gættu hagsmuna hvors
þeirra fyrir sig.
PERsóNUVERND Birting mynda af
heimildum einstaklinga á Já.is, þegar
leitað er erftir upplýsingum um þá á
síðunni, samræmist ekki persónu-
verndarlögum. Þetta er niðurstaða
Persónuverndar.
Stofnunin hafði áður verið í sam-
bandi við Já.is vegna þess að unnt var
að greina myndir af einstaklingum
og bílnúmerum í fyrstu útgáfum
götusýnar fyrirtækisins. Málið varð-
aði það að þegar einstaklingi er flett
upp birtist mynd af heimili hans..
Já.is taldi að sér væri þetta heim-
ilt þar sem bæði Persónuvernd og
almenningi hefði verið kunnugt
um þessa virkni heimasíðunnar.
Persónuvernd komst hins vegar
að þeirri niðurstöðu að vinnsla
persónupplýsinganna hefði verið
óheimil þar sem Já.is hefði ekki
upplýst hina skráðu, það er þá sem
eru skráðir með heimilisfang í síma-
skránni, um vinnsluna.
Fyrirtækið hefur til 19. júní næst-
komandi til að gera úrbætur. - jóe
Götusýn Já.is
andstæð lögum
FERÐAÞJóNUsTA Farþegar Icelandair
í síðasta mánuði voru tæplega 332
þúsund og er það aukning um fjög-
ur prósent samanborið við sama
mánuð í fyrra.
Tölur um fjölgun ferðamanna
milli ára í maímánuði liggja ekki
fyrir en sé litið til aprílmánaðar má
sjá að farþegum um Keflavíkurflug-
völl fjölgaði um 62 prósent á milli
mánaða.
Í tilkynningu frá Icelandair til
Kauphallarinnar segir að sætanýt-
ing í nýliðnum mánuði hafi verið
rúmlega 81 prósent. Þá hafi far-
þegar Air Iceland Connect verið 29
þúsund í síðasta mánuði sem er tólf
prósenta aukning á milli ára. – jóe
Farþegum
Icelandair
fjölgaði lítillega
7 . J ú N í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D A G U R4 F R é T T I R ∙ F R é T T A B l A Ð I Ð
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-C
9
F
4
1
D
0
3
-C
8
B
8
1
D
0
3
-C
7
7
C
1
D
0
3
-C
6
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K