Fréttablaðið - 07.06.2017, Page 8
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Beint lýðræði snýst um að þú getir haft bein áhrif á það sem skiptir þig máli. Beint lýðræði snýst ekki um að hafa skoðun á öllu alltaf, heldur að
geta haft áhrif á það sem skiptir mann máli.
Núna stendur yfir mótun menntastefnu Reykja-
víkurborgar og í fyrsta sinn er þér; borgaranum,
boðið með. Stefnumótunin fer fram í víðtæku sam-
ráði við fagmenn, starfsfólk borgarinnar, foreldra og
nemendur sjálfa og nær yfir alla starfsemi skóla- og
frístundasviðs borgarinnar, leikskóla, grunnskóla
og frístund. Útgangspunktur stefnunnar er sú færni
sem nemendur eiga að hafa öðlast árið 2030. Hvað
á nemandi að kunna við útskrift? Á Betri Reykjavík,
lýðræðisgátt Reykjavíkur, getur þú haft aðkomu
með ýmsum hætti; mótað tillögur, forgangsraðað
verkefnum og svokölluðum færniþáttum og tekið
þátt í umræðum.
Liður í samráðsferlinu er að opnað hefur verið
fyrir forgangsröðun færniþátta á Betri Reykjavik
(betrireykjavik.is). Einnig getur almenningur lagt
fram sínar eigin hugmyndir að færniþáttum og rök-
rætt þær fram og til baka. Þetta rímar vel við stefnu
Pírata, sem borgin er nú að gera að sinni, að vefkerfi
eins og Betri Reykjavík eigi að nota í meiri mæli til að
fá fram álit á þeirri stefnumótun og ákvarðanatöku
sem eru í gangi hjá borginni hverju sinni. Nú þegar
þekkir fólk ágætlega til árlegrar hugmyndasöfnunar
um framkvæmdir í hverfum á Betri Reykjavík, Hverf-
ið mitt, og hefur það notið vaxandi vinsælda. Í fyrra
var kosningaþátttaka í Hverfinu mínu 9,4 prósent og
hefur aldrei verið hærri. Lykillinn að velgengni þess-
ari er sennilega sú að þarna er hugmyndasöfnunin
– lýðræðið – beintengd við stjórnsýslu borgarinnar;
fólk hefur raunveruleg áhrif á það sem borgin gerir
og sér árangur af því að taka þátt. Framtíðin í stjórn-
sýslu felst í lifandi samtali við almenning í gegnum
vefinn og Reykjavíkurborg ryður þar veginn. Hvernig
sérð þú fyrir þér skólakerfið árið 2030? Taktu þátt á
Betri Reykjavík – samráð stendur yfir til 10. júní.
Beint lýðræði í
menntamálum
Halldór Auðar
Svansson
borgarfulltrúi
Pírata
Þórlaug
Ágústsdóttir
fulltrúi Pírata
á skóla- og
frístundasviði
Reykjavíkur
Ætíð vill valdið sinn vilja hafa,“ stendur víst einhvers staðar og má til sanns vegar færa þegar íslenskt samfélag er annars vegar. Einhverra hluta vegna er málum þannig háttað á Íslandi að sá einn
ræður sem mest hefur valdið, óháð visku, samræðu
eða einfaldlega hvort viðkomandi kemst að bestu
mögulegu niðurstöðu fyrir heildina.
Í íslenskum stjórnmálum er oft talað um ráðherra-
vald og það ekki að ósekju því vald ráðherra yfir
sínum málaflokkum virðist á stundum vera allt að því
algert. Embættismenn, sérfræðingar, nefndir og ráð
eru að vísu látin paufast og eiga heiður skilinn fyrir að
fóðra viðkomandi ráðherra á upplýsingum og leiða þá
til niðurstöðu en allt kemur fyrir ekki. Ef ráðherra líkar
ekki niðurstaða sérfræðinga er einfaldlega ekki farið
eftir henni.
Tillaga Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra
um skipan dómaraembætta við hinn nýja Landsrétt
er nýjasta dæmið um það sem við getum kallað: Eins-
og-mér-finnst-og-rétt-er-pólitík. Í fjórum tilvikum af
fimmtán taldi ráðherra sig vita betur en nefnd skipaða
sérfræðingum og þar með var það niðurstaðan.
Umræður um niðurstöðuna og atkvæðagreiðslan á
Alþingi voru svo eins fyrirsjáanleg og verið gat því hér
er lítil hefð fyrir því að stjórnarliðar taki afstöðu gegn
ráðherrum sínum, því miður. Þetta er gott dæmi um
að betur færi á því að ráðherra væri í raun fram-
kvæmdaraðili þingsins, fremur en að stjórnarliðar á
þingi starfi við að skrifa upp á vilja ráðherra.
Óháð því hversu rétt eða röng niðurstaðan er þá
grafa þessir stjórnarhættir undan lýðræðinu og undan
fagmennsku í stjórnun. Með öðrum orðum þá er þetta
einfaldlega fúsk. Að auki hefur nú komið í ljós að
skipan dómara við Landsrétt var ekki í samræmi við
lög og gæti skapað ríkinu bótaábyrgð, samkvæmt áliti
lögfræðinga sem Fréttablaðið leitaði til í vikunni. En
þannig er það með fúsk, það á það til að koma í bakið
á viðkomandi fúskurum með einum eða öðrum hætti
og þetta tiltekna tilfelli gæti svo sannarlega reynst
landsmönnum dýrt.
Íslendingar eru þreyttir á fúski í stjórnmálum.
Þreyttir á því að sérhagsmunir séu teknir fram yfir
heildarhagsmuni og fagmennska látin víkja fyrir per-
sónulegri sannfæringu einstaklinga sem fara með völd
hverju sinni. Þessi þreyta var forsenda þess að í síðustu
kosningum komust að nýir flokkar og nýtt fólk. Fólk
sem fullyrti við kjósendur að nú yrði látið af öllu fúski,
fagmennska og heildarhagsmunir ættu að ráða för.
Engu að síður hikaði þetta sama fólk ekki við að
beygja sig undir ráðherravaldið margfræga. Lét sér
nægja að jórtra rólyndislega á forsendum og röksemda-
færslu ráðherra eins og tannhreinsityggjói og nýtti svo
klessurnar til þess að reisa stoðir Landsréttar. Óháð því
hversu hæfir viðkomandi einstaklingar eru, sem munu
taka þar sæti dómara, þá er þegar búið að grafa undan
þeim og senda um leið þjóðinni þau skilaboð að þetta
sé hrákasmíð. Dómsvald reist á stoðum ráðherravalds
og sérhagsmuna fremur en fagmennsku og lýðræðis.
Hrákasmíð
En þannig er
það með fúsk,
það á það til
að koma í
bakið á
viðkomandi
fúskurum
með einum
eða öðrum
hætti og þetta
tiltekna
tilfelli gæti
svo sannar-
lega reynst
landsmönn-
um dýrt.
Vanhæfi
Það er alveg ótrúlega skemmtileg
ur samkvæmisleikur að fara yfir
tengsl þeirra 37 umsækjenda sem
sóttu um starf dómara við Lands
rétt. Á listanum eru tíu héraðs
dómarar, þrír dómstjórar, einn
hæstaréttardómari og að minnsta
kosti fimm fræðimenn úr tveimur
stærstu háskólunum. Þá eru auð
vitað uppi vísbendingar um að
allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar
séu vanhæfir vegna þátttöku í
afgreiðslu Alþingis á málinu, sem
ekki var gerð með lögmætum
hætti. Þá er spurningin, verður
forseti Íslands vanhæfur ef hann
staðfestir ákvörðunina með
undirskrift sinni?
Hitnar í borginni
Það var átakafundur í borgar
stjórn þegar rædd var húsnæðis
áætlun Reykjavíkurborgar til
2020. Tóninn setti Guðfinna
Guðmundsdóttir, fulltrúi Fram
sóknar, í gærmorgun sem sagði
þéttingaráform meirihlutans
hafa valdið miklum vanda. Það
fuðraði svo allt upp á Facebook
Lífar Magneudóttur, fulltrúa VG,
á meðan á borgarstjórnarfundi
stóð, þar sem hún sagðist vona að
minnihlutinn fengi ekki að ráða
neinu um framtíð Reykvíkinga.
Hann ástundaði ömurlega
pólitík. Halldór Halldórsson, odd
viti Sjálfstæðismanna, sagðist þá
ekki geta stutt fleiri leiksýningar
af hálfu meirihlutans. Notaleg
fjölskyldustemning í Ráðhúsinu.
snaeros@frettabladid.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
Bættu árangurinn!
Íþróttagleraugu með og án styrkleika.
7 . j ú n í 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R8 s K o Ð U n ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-D
8
C
4
1
D
0
3
-D
7
8
8
1
D
0
3
-D
6
4
C
1
D
0
3
-D
5
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K