Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 10
Móðir mín (94 ára) fór á hjúkrunarheimilið Víði-hlíð í Grindavík fyrir um
tveimur mánuðum og var búin að
bíða eftir vist í nokkur ár. Heimilið
er ríkisrekið. Þar eru enn tveggja
manna herbergi þannig að móðir
mín deilir litlu herbergi með
ókunnri konu. Skömm er að. Starfs-
fólkið er yndislegt og sem betur fer
talar það íslensku.
Móðir mín er hálf blind, engin
sjón á öðru auga en um fjögur
prósent á hinu. Hún kýs að ganga
stigann á milli hæðanna (t.d. að
útgangi) til þess að halda sér í formi
en þrepamerkingarnar (hvít lína)
eru afmáðar sumstaðar. Hún á erf-
itt með að átta sig á þrepunum fyrir
vikið. Ég nefndi þetta við yfirmann
heimilisins og taldi hreinlega víst
að slitið væri bara athugunarleysi.
Nei, aldeilis ekki. Ríkið hefur ekki
brugðist við ítrekuðum athuga-
semdum, bæði yfirstjórnar heim-
ilisins, Vinnueftirlits og Heilbrigðis-
eftirlits í 2-3 ár!
Það þarf að útbúa einstaklings-
herbergi í Víðihlíð strax. Fram-
kvæmdasjóður aldraðra (FA) hefur
ekki staðið undir nafni frá 2011
þegar ríkið leyfði að fé hans færi
til reksturs heimila en hvorki við-
halds né framkvæmda eins og
til var stofnað. Nú er lag hjá ríkri
þjóð að afnema þessa heimild og
láta FA sinna sínum frumskyldum,
t.d. að gera umhverfi gamalmenn-
anna sómasamlegt og öruggt. „Það
er engin ástæða til þess að borða
naglasúpu þegar vel árar,“ segir nýr
formaður sjóðsins, dr. Guðrún Alda
Harðardóttir. Er farin að efast um
kraft heilbrigðisráðherra en ef hann
læsi nú þessi orð myndi hann lík-
lega láta laga tröppurnar í Víðihlíð
með einu pennastriki. Eða hvað?
Tröppur á hjúkrunarheimili
Sesselja
Guðmunds-
dóttir
aðstandandi
Það er athyglisvert að hlusta á utanríkisráðherra lýðveldis-ins ræða um málefni granna
okkar í Evrópu. Það fer ekki á milli
mála að ráðherrar Sjálfstæðisflokks-
ins eiga við mikil talmein að stríða
þegar þeir þurfa að minnast á ESB
án þess að hreyta úr sér ónotum
eða skammaryrðum. Stundum
skýlir ráðherrann sér á bak við EES
til að þurfa ekki að segja Evrópu-
sambandið. Hann ræðir iðulega
við fréttamenn eins og Evrópusam-
bandið sé hreinlega ekki til.
Bretland er hins vegar orðið eftir-
læti ráðherrans. Aldrei er rekinn
framan í hann hljóðnemi svo hann
mæri ekki Breta og lofsyngi. Eftir að
þeir sögðu sig úr ESB eru þeir allt í
einu orðnir sérstakir vinir okkar
Íslendinga. Öðru vísi mér áður
brá, því þeir eru í reynd eina Evr-
ópuþjóðin sem sýnt hefur okkur
beinan fjandskap, ef alþjóðleg átök
heimsstyrjaldanna eru frátalin. Þeir
gengu harðast fram í því að reyna
að hindra að Ísland fengi alþjóð-
lega viðurkenningu á útvíkkun
landhelginnar. Sennilega bjargaði
aðild okkar að NATO og varnar-
samningurinn við BNA því, að við
urðum ekki undir og hefðum þurft
að bíta í gras.
Árið 2008 settu þeir okkur á lista
yfir hryðjuverkalönd, sem pólitískt
og í viðskiptalegu tilliti jafngilti því
að landið væri sett í sóttkví vegna
ebólufaraldurs. Það var fyrirferðar-
mikil vinátta. Aldrei báðust þeir
afsökunar. Stóra-Bretland þarf ekki
að afsaka gerðir sínar. Bretar eru
nefnilega eins og flest önnur stór-
veldi; þeir þekkja ekki varanleg vin-
áttusambönd, aðeins tímabundin
hagsmunatengsl. Málflutningur
íslenska utanríkisráðherrans er því
barnalegur, falskur og smeðjulegur.
Evrópusambandið sem bannorð
Bretar eru vissulega mikilvægir
nágrannar, sem við verðum að
eiga góð samskipti við. Hagsmunir
þeirra munu hins vegar, framvegis
sem hingað til, ráða því hverjir séu
vinir þeirra í það eða hitt skiptið.
Það er ekki leið til virðingar eða
áhrifa að vera sífellt á hnjánum og
mæra þá fyrir vináttu og forystu-
gæði, þegar sagan sýnir allt aðrar
hliðar á sambandi landanna. En
þessi hegðun ráðherrans kallar á
útmálun og greiningu. Sá sem þetta
ritar finnur ekki aðrar líklegar
skýringar en hugmyndafræðilega
frændsemi í frjálshyggjunni og lang-
þráðan bandamann í andúð á ESB.
Íslenski utanríkisráðherrann telur
sennilega að nú hafi heldur betur
hlaupið á snærið hjá flokki sínum
með nýjan félaga í slag fyrir enda-
lokum ESB. En kannski er útskýr-
ingin nærtækari. Ráðherrann er að
niðurlægja og snupra Viðreisn með
því að smána ESB, en aðild að því var
eitt helsta baráttumál Viðreisnar, og
svik Sjálfstæðisflokksins við þjóðar-
atkvæði fæðingarvottorð Viðreisnar.
Nú eru þeir saman í ríkisstjórn þar
sem utanríkisráðherra hennar virð-
ist líta á orðið Evrópusamband sem
blótsyrði, sem ekki sæmi að hafa á
orði í opinberri umræðu.
Ráðherra á refilstigum
Þröstur
Ólafsson
hagfræðingur
Ráðherrann er að niðurlægja
og snupra Viðreisn með því
að smána ESB, en aðild að
því var eitt helsta baráttumál
Viðreisnar, og svik Sjálf-
stæðisflokksins við þjóð-
aratkvæði fæðingarvottorð
Viðreisnar.
Ríkið hefur ekki brugðist við
ítrekuðum athugasemdum,
bæði yfirstjórnar heimilisins,
Vinnueftirlits og Heilbrigðis-
eftirlits í 2-3 ár!
Gildi–lífeyrissjóður
Aukaársfundur 2017
Dagskrá fundarins
Tillögur til breytinga á samþykktum Gildis–lífeyrissjóðs.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétti.
Sérstakt fulltrúaráð skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda
sem að sjóðnum standa fer með atkvæði á fundinum.
Tillögur til breytinga á samþykktum má sjá á vef sjóðsins og liggja þær einnig
frammi á skrifstofu sjóðsins.
Stjórn Gildis–lífeyrissjóðs.
1.
Grand hótel Reykjavík, fimmtudaginn 22. júní kl. 17.00
www.gildi.is
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 8.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi
- þegar gæðin skipta máli
idex.is - sím 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
Álgluggar
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Álgluggar og hurðir
7 . j ú n í 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R10 s K o Ð U n ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-C
5
0
4
1
D
0
3
-C
3
C
8
1
D
0
3
-C
2
8
C
1
D
0
3
-C
1
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K