Fréttablaðið - 07.06.2017, Page 18
Breiðholt Festival er menn-ingarhátíð sem gerir lista-mönnum sem tengjast
Breiðholti og þeirri listsköpun
sem þar fer fram hátt undir höfði.
Hún verður haldin sunnudaginn
11. júní næstkomandi, í þriðja sinn.
Hátíðarhöldin fara fram í Seljadal
og þá aðallega við Skúlptúrgarð
Hallsteins Sigurðssonar í Ystaseli
37, sem er á bak við Ölduselsskóla.
Aðrir hátíðarstaðir eru Öldusels-
laug, Gróðurhúsið hljóðver og
Seljakirkja.
Hugmyndin að hátíðinni
kviknaði hjá hjónunum Valgeiri
Sigurðssyni tónlistarmanni og Sig-
ríði Sunnu Reynisdóttur leikhús-
listakonu en þau reka hljóðverið
Gróðurhúsið og útgáfufyrirtækið
Bedroom Comunity sem hvort
tveggja er starfrækt í Breiðholti.
Þau hafa síðan fengið til liðs við sig
fjölda annarra sem standa að baki
hátíðinni.
Aðspurður segir Valgeir lista-
mennina sem koma fram á hátíð-
inni tengjast Breiðholti með einum
eða öðrum hætti. „Þetta er ýmist
fólk sem býr eða hefur búið í hverf-
inu, hefur unnið hér eða á ljósar og
óljósar tengingar við hverfið.“ Hann
segir hugmyndina að leyfa fólki
að kynnast því sem er að gerast og
gerjast í hverfinu. „Markmiðið er
ekki síður að fá fólk til að koma út
úr húsunum sínum því þó hér búi
margt fólk vantar kaffihús og aðra
samkomustaði. Þetta er okkar við-
leitni til að bæta úr því.“
Hátíðin í ár er að hluta helguð
Gróðurhúsinu en það á tuttugu ára
starfsafmæli í ár. Hluti listamann-
anna sem koma fram hafa tekið
upp í hljóðverinu. Má þar nefna
Óskarsverðlaunahafann Markétu
Irglovu sem hlaut Óskarinn fyrir
lagið Falling Slowly í myndinni
Once árið 2008. Það sama á við um
hljómsveitina aYia. Aðrir sem stíga
á svið eru Sóley, Ólöf Arndalds,
Batucada, RuGl og Marteinn Sindri
svo dæmi séu nefnd. Þá verður
einleikurinn Hún pabbi, sem var
sýndur í Borgarleikhúsinu í vetur,
settur á svið auk þess sem boðið
verður upp á tískureif, dansnám-
skeið, samflot í vatni og ýmislegt
fleira.
„Þá ætlum við að vera með úti- og
matarmarkað til að fagna fjölmenn-
ingunni í hverfinu og geta gestir
smakkað á réttum frá hinum ýmsu
þjóðlöndum en íbúar hverfisins eru
eins og flestir vita frá öllum heims-
hornum,“ segir Valgeir.
Hann segir hátíðina fyrir alla
fjölskylduna. „Hún var haldin á
sunnudegi í fyrra og ætlum við að
gera slíkt hið sama í ár. Það verður
myndlistarsmiðja fyrir börn í
tengslum við innsetningu Ninnu
Þórarinsdóttur Safn ímyndunar og
furðuhluta og við hvetjum fólk til að
hafa með sér sundföt og njóta fjöl-
breyttra viðburða í Ölduselslaug.“
Að sögn Valgeirs tekur einungis
nokkrar mínútur að ganga á milli
staða á hátíðarsvæðinu. Allt eftir
göngustígum og fjarri bílaumferð.
„Þetta er gróið svæði sem kemur
fólki alltaf jafn mikið á óvart og er
um að gera að nýta betur.“
Hann hvetur Breiðholtsbúa til
að koma og hitta nágrannana en
segir hátíðina þó ekki síður sótta af
erlendum gestum og af fólki neðan
úr bæ og að allir séu velkomnir.
Hátíðin hefst klukkan 13 og
stendur til 19. Aðgangur er ókeypis
en það þarf að skrá sig sérstaklega
á nokkra viðburði. Allar nánari
upplýsingar er að finna á breidholt-
festival.com og á Facebook undir
breidholtfestival.
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN | FERÐAMÁLASKÓLINN | LEIÐSÖGUSKÓLINN
Þekking - Þroski - Þróun - Þátttaka
STÚDENTSNÁM:
• Alþjóðabraut
• Félagsgreinabraut
• Raungreinabraut
• Viðskiptabraut
• Opin braut
• Framhaldsskólabraut
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á WWW.MK.IS OG Á FACEBOOK SÍÐU SKÓLANS
GRUNNDEILD MATVÆLA OG FERÐAGREINA:
• Bakari
• Framreiðslumaður (þjónn)
• Kjötiðnaðarmaður
• Matreiðslumaður (kokkur)
eða starfa í ferðaþjónustu
Sími: 594 4000
Menntaskó l inn í Kópavog i - #mk l í f ið
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
Hátíðarhöldin fara fram í Seljadal og þá aðallega við Skúlptúrgarð Hallsteins Sigurðssonar í Ystaseli 37, sem er á bak við Ölduselsskóla. Aðrir hátíðarstaðir eru Ölduselslaug, Gróðurhúsið hljóðver og
Seljakirkja. Fjöldi fólks stendur að baki hátíðinni. Valgeir er hér lengst til hægri. MYNDir/ErNir
2 KYNNiNGArBLAÐ FÓLK 7 . j ú n í 2 0 1 7 M i ÐV i KU DAG U r
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-E
2
A
4
1
D
0
3
-E
1
6
8
1
D
0
3
-E
0
2
C
1
D
0
3
-D
E
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K