Fréttablaðið - 07.06.2017, Page 22
Kristján hefur
alla tíð haft
áhuga á mynd-
list en hefur
tekið áhuga-
málið föstum
tökum síðustu
ár. Mynd/eyþór
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Kristján er menntaður húsa- og húsgagnasmiður en hefur haft áhuga á myndlist frá unga
aldri. Þrátt fyrir annríki á vinnu-
markaðnum gaf hann sér tíma til að
sækja námskeið í listmálun. „Árið
1974 fór ég á námskeið hjá Sigfúsi
Halldórssyni tónskáldi og steig þar
mín fyrstu spor. Síðan var ég að gutla
við þetta næstu ár,“ segir Kristján
sem lagði þó pensilinn frá sér í
heilan áratug þangað til áhuginn
vaknaði að nýju á tíunda áratugnum.
Þá sótti hann nám í Myndlistaskóla
Kópavogs og síðan Myndlista-
skólann í Reykjavík. „Fyrir nokkrum
árum kynntist ég Þuríði Sigurðar-
dóttur, söngkonu og myndlistar-
konu, á helgarnámskeiði. Í fram-
haldinu spurði ég hana hvort hún
tæki fólk í einkatíma og þá kom í ljós
að hún var með nokkra nemendur
í einu á vinnustofu sinni og þar hef
ég verið undir hennar verndarvæng
síðustu ár,“ segir Kristján glettinn.
Hvað er það sem myndlistin gefur
honum? „Ég hef yndi af því að skapa,
er mikið í handverki, tréverki og
slíku. Þá er ég lítill sjónvarpsmaður
og finn mér eitthvað að dunda í
staðinn,“ svarar Kristján sem segist
hafa fengið heilmikla útrás fyrir
sköpun í starfi sínu sem smiður. „Ég
var töluvert í því að kaupa gamlar
íbúðir og hús og gera upp,“ segir
Kristján sem varð 74 ára í síðustu
viku og hætti að vinna sem smiður
fyrir nokkrum árum.
Þuríður hvatti hann til að halda
sýningu á verkum sínum og taldi
hann hafa alla burði til þess. „Ég er
nú hálf feiminn við þetta allt saman,“
segir Kristján sem telur sér þó hafa
farið mikið fram undanfarið. „Ég hef
núna fundið minn farveg í þessu,“
segir hann en inntur eftir innblæstri
segir hann myndefnið vera eitthvað
sem komi bara í hausinn á honum.
Í umsögn Þuríðar um verk Kristjáns
segir meðal annars: „Sá heimur sem
birtist í málverkum Kristjáns er hug-
lægur og byggir á minningabrotum
sem hafa orðið að leiðarstefi við
gerð verkanna. Áhugamálin og jafn-
vel heimsfréttir koma við sögu þar
sem flæði hugmynda og efnis renna
saman. Óhlutbundin áferð í nokkr-
um verkanna myndar ófyrirséðar
umbreytingar á vinnslustigi þar sem
áræði og leikgleði listmálarans tónar
með litum og efni þar til niðurstaða
fæst. Verkin á sýningunni eiga sér
forsögu í litlum blýantsteikningum
og/eða skyssum, sem Kristján síðan
útfærir í olíumálverk.“
Sýning Kristjáns verður opnuð í
veitingaskála BSRB í Munaðarnesi
laugardaginn 10. júní og verður opin
fram á sumar.
Úr húsasmíði í myndlist
Smiðurinn Kristján Finnsson, sem er 74 ára, opnar sína allra fyrstu mynd-
listarsýningu í veitingaskálanum í Munaðarnesi laugardaginn 10. júní.
OPNUNARTILBOÐ
20% AFSLÁTTUR
AF YFIRHÖFNUM
6 KynnInGArBLAÐ FóLK 7 . j ú n í 2 0 1 7 M I ÐV I KU dAG U r
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
3
-D
3
D
4
1
D
0
3
-D
2
9
8
1
D
0
3
-D
1
5
C
1
D
0
3
-D
0
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K