Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 25
UM
HVE
RFISMERKI
Prentgripur
141 825
Suðurhraun 1
Garðabæ
Sími: 59 50 300
www.isafold.is
VIÐ PRENTUM
Fjölpóstur • Umbúðir • Bækur • Tímarit • Fyrir skrifstofuna • Bæklingar • Kynningarefni
Dagblöð • Stafræn prentun • Allskonar!
BAUHAUS REYKJAVÍK - L
ambhagavegur 2–4 - 113 R
eykjavík - 515-0800 - info@
bauhaus.is - www.bauhau
s.is
Pallaolía, 5 l
Smýgur djúpt inn í viðinn
og hrindir vel
frá sér vatni. Notið litaða
olíu til aðná
fram fullnægjandi UV-vö
rn. Hægt að
fá í ýmsum gagnsæjum l
itbrigðum.
Starck 3 Salerni
Veggfest salernisskál án sk
olbrúnar, sem eykur hreinlæ
ti og auðveldar
þrif. Faldar festingar. Salern
isseta með hæglokun og fe
stingar fylgja.
XL hillueining
5 spónaplötuhillur, hámarks
burðarþol er u.þ.b. 290 kg
á hverri hillu við
jafna álagsdreifingu.
Gagnvarið pallaefni 28 x
120 mm
Gagnvarin fura. NTR A/B v
ottað. 28 x 120 mm. Verð
á m.
2.295.-
Afmæl is
ve r ð
8.995.-
Afmæl is
ve r ð149.-
Afmæl is
ve r ð
290 kgAU
Ð
VE
LT
AÐ
SETJA SAM
A
N
HÆÐ: 180 CM
BREIDD: 120 CM
DÝPT: 50 CM
Afmæl is
ve r ð
37.995.-
Afmæl is
ve r ð
Afmæl is
ve r ð
Við eigum 5ár
a afmæli
ára
195.-
50.495.
- 17.
995.-
3.495.-
1850 Annonce Island - UGE 18
- 3. maj - 255 mm x 380 mm - 4
sider.indd 1
03-05-2017 13:43:01
Kamm
ersve
it
Vínar
&
Berlín
ar
Frem
stu fi
ðlara
r
Evróp
u
Einlei
karar
Gaut
ier Ca
puçon
selló
,
Raine
r Hon
eck fi
ðla &
Noah
Bend
ix–Ba
lgley
fiðla
Konse
rtmei
stari
Raine
r Hon
eck
VIÐ OPNUM Í
KAUPTÚNI
23. MAÍ 2017
SÆKIÐ UM AÐILD Í DAG!
Fáið gjafabréf í Costco og
nýtið ykkur sértilboð*
*Sjá bakhlið
Flyer_Handout_Icelandic_v3_A5.indd 1 16/02/2017 16:09
LAMBAFRAMHRYGGJASNEIÐARArgentína.
2.078 KRKGÁÐUR 2.968/KG
NAUTAFILLE
Ferskt.
3.965 KRKGÁÐUR 5.149 KR/KG
BRATWURSTE GRILLPYLSUR360 g.
390 KRPK
ÁÐUR 488 KR/PK
GRÍSAKÓTELETTURFerskar. Með beini.
1.372 KRKGÁÐUR 2.287 KR/KG
LAMBAINNRALÆRIFerskt.
2.950 KRKGÁÐUR 3.598 KR/KG
KJÚKLINGALUNDIRFrá Danpo. 700 g.
989 KRKG
ÁÐUR 1.498 KR/KG
TILBOĐIN GILDA:4. - 7. MAÍ 2017
30%
SS LAMBALÆRI
(FROSIÐ)
ÁÐUR 1.498 KR/KG
1.049 KRKG
23%
34%
30%
20%
40%
Netverslun – l
yfja.is
Frábæ
r
tilboð
!
10 - 3
0%
afslátt
ur af v
öldum
heilsu
vörum
.
Heilsutjútt
- dagana 3. - 14.
maí
ÁSTRALÍA
SUÐUR-AFRÍKA
KÚBA
DUBAI
THAILAND
BALI
okkur hvað þeir eru að gera þessa
dagana. Helsta ógnin við WOW air
og ferðaþjónustuna í heild sinni á
Íslandi er stóraukið beint flug milli
Norður-Ameríku og Evrópu á mjög
hagstæðu verði. Þessi þróun mun
halda áfram að aukast og setja pressu
á ýmsa staði sem við og Icelandair
erum að fljúga á í dag. Norwegian
er einna „grimmast“ í þessu og Bjørn
Kjos hefur gert margt mjög gott sem
hægt er að læra af.
Okkar mótspil við samkeppni
yfir Atlantshafið er að bæta Asíu
inn í leiðakerfið og gera það enn
fjölbreytilegra og sveigjanlegra. Það
vantar grundvallarskilning á þess-
ari ógn innan stjórnsýslunar sem
einblínir nær alfarið á komu ferða-
manna í stað þess að skoða tækifærin
sem eru fólgin í því að búa til fyrir-
myndar alþjóðlegan tengiflugvöll
sem þar með getur tryggt stöðug-
leikann í ferðamannastraumnum
til og frá Íslandi og komið í veg fyrir
skyndilegt hrun sökum þess að einn
markaður bregðist.
Ef við bregðumst ekki við þessu
beina flugi yfir hafið þá er hætt við
því að loka yrði á fjöldann allan af
áfangastöðum frá Íslandi á næstu
árum með skelfilegum afleiðingum
fyrir ferðaþjónustuna og þar með
hagkerfið í heild sinni á Íslandi.“
Vill aðkomu einkaaðila
Væri æskilegt að einkaaðilar kæmu
að stækkun Keflavíkurvallar, eins og
sumir hafa lagt til, með því að ríkið
selji eitthvað af eignarhlut sínum?
„Ég held að það væri jákvætt og eitt-
hvað sem ég er mjög hlynntur að
gerist. Með því er ég ekki að segja að
Isavia hafi verið að standa sig illa en
með því að fá að alþjóðlega fjárfesta í
hluthafahópinn, sem hafa reynslu og
þekkingu af rekstri flugvalla, þá væri
það af hinu góða.
Það er orðið aðkallandi að við
komum fram með einhverja sýn á
það hvernig við ætlum að byggja
upp völlinn í Keflavík. Mér finnst
það til dæmis galin hugmynd, eins
og forsvarsmenn Icelandair hafa
talað fyrir, að byggja upp annan
flugvöll í Hvassahrauni og ég held
að sú umræða hafi truflað uppbygg-
inguna í Keflavík.
Þetta er týpísk íslensk umræða
og á meðan líður tíminn án þess að
nauðsynlegar ákvarðanir séu teknar.
Isavia hefur reynt í millitíðinni að
lappa upp á núverandi ástand með
ýmsum viðgerðum eftir bestu getu
en það er alveg ljóst að flugvöllurinn
er löngu sprunginn.
Við hjá WOW air sjáum fram á að
geta vaxið í samræmi við okkar áætl-
anir 2018 og 2019 en síðan verður
völlurinn endanlega sprunginn og
ekki hægt að koma á nýjum tenging-
um til og frá landinu næstu árin þar
á eftir. Þar með versnar samkeppnis-
staða okkar til muna við erlendu
flugfélögin sem munu á meðan halda
áfram að efla sín leiðakerfi beint yfir
hafið og tekjumissirinn fyrir þjóðar-
búið þegar sá tími kemur hleypur á
hundruðum milljarða.“
Ekki unnið heimavinnuna
Stjórnvöld hafa boðað hækkun virð-
isaukaskatts á ferðaþjónustu sem er
meðal annars liður í því að stemma
stigu við þessum mikla vexti og þar af
leiðandi gengisstyrkingu krónunnar.
Er það ekki bara jákvætt? „Mér
finnst þessi umræða vera á villi-
götum og myndi miklu frekar vilja
sjá markvissa umræðu um hvernig
við getum dreift álaginu betur á
helstu ferðamannasvæðin svo og
ferðamannastraumnum heilt yfir.
Það gleymist reyndar oft að hrósa
þeim sem vinna í ferðaþjónustunni
fyrir hversu vel hún hefur staðið sig
nú þegar í að byggja upp afþreyingu,
gistiaðstöðu og núna er sérstaklega
gaman að sjá hversu mikil uppbygg-
ing og nýsköpun er að eiga sér stað
úti á landi en það er ljóst að það er
síður en svo of mikið af ferðamönn-
um víðast hvar úti á landi ef þú talar
við heimamenn.
Hvað varðar aðgangsstýringu
þá held ég aftur á móti að þessi
virðisaukaskattshækkun muni engu
breyta ef það er tilgangurinn. Það er
undarlegt að við séum að ræða um
slíkt núna þegar við gætum hæglega
verið að taka á móti 4 milljónum
ferðamanna ef við hefðum verið
búin að vinna heimavinnuna okkar.
Gera viðskiptaáætlun um hvað það
myndi þýða fyrir ríkissjóð og hag-
kerfið í heild sinni að taka á móti
slíkum fjölda ferðamanna og þora
að horfa nokkur ár fram í tímann
þar sem ekki er gert ráð fyrir því að
þeir séu að fara að haga sér eins og
síldin sem lét sig hverfa frá Íslands-
ströndum. Ferðamenn eru ekki að
fara að hætta að koma til Íslands.
Ef tilgangurinn er að afla aukinna
tekna fyrir ríkissjóð og einfalda
skattkerfið þá er það eitthvað sem
ég get verið sammála um enda þykir
mér sjálfsagt að ferðaþjónustan
skili sínu í ríkissjóð. Að sama skapi
verðum við líka að gera þá kröfu að
þeir fjármunir fari jafnframt í fjár-
festingu í atvinnugreininni þannig
að hún grotni ekki niður. Þetta þarf
að hanga saman.“
Stöðugur straumur af erlendum fjárfestum
Skúli hefur verið eini hluthafi WOW
air allt frá stofnun og jafnframt ver
ið forstjóri félagsins frá því haustið
2012. Hann segir aðspurður að það
gæti vel komið til greina á komandi
árum að hann stígi úr stóli forstjóra
og eftirláti einhverjum öðrum dag
legan rekstur flugfélagsins.
„Ég lít svo á að WOW air sé enn
þá rétt að byrja. Þannig að á meðan
ég hef jafn gaman af þessu og
raun ber vitni og við erum að opna
mikið af nýjum flugleiðum, eins og
með Asíuflugi, bæta við mjög miklu
af tækninýjungum og lausnum
gagnvart farþegum okkar þá er ég
ekki að hugsa um neitt slíkt.
Ef ég horfi til þess að við erum
komin með 1.100 starfsmenn, og
þeir verða um 2.000 áður en langt
um líður, þá er það að sinna dag
legum rekstri fyrirtækisins af þeirri
stærðargráðu ekki endilega mín
sterkasta hlið enda gæti ég það
ekki í dag nema með aðstoð mjög
öflugs framkvæmdastjórateymis
sem starfar sjálfstætt og ég treysti
100 prósent.
Í framtíðinni gæti ég hins vegar
alveg séð fyrir mér að fá einhvern
til liðs við félagið til að stýra dag
legum rekstri og ég gæti þar með
einbeitt mér að stefnumótandi
verkefnum eins og til dæmis nýjum
erlendum starfsstöðvum félags
ins.“
Kæmi til greina að fá aðra fjár-
festa inn í hluthafahópinn til að
styðja við vöxt WOW air? „Þetta er
orðið það stórt fyrirtæki að þrátt
fyrir að vera að skila mjög góðri
arðsemi er fjárþörfin sem þarf til
að halda áfram að vaxa um kannski
tíu flugvélar á ári með þeim hætti
að það krefst gríðarlegra fjármuna
og ábyrgða. Ef við ætlum að halda
áfram á þeirri braut þá munum við
þurfa aukið hlutafé eða að fá strat
egíska fjárfesta að félaginu. Þetta
á sérstaklega við ef við ætlum að
hefja starfsemi og fá flugrekstrar
leyfi í öðrum löndum óháð Íslandi.
Þetta er samt ekkert sem er á
döfinni strax á þessu ári.“
Hefurðu fengið mikið af tilboðum
í félagið? „Ekki í allt félagið en það
er stöðugur straumur þessa dagana
af erlendum fjárfestum sem vilja
koma að félaginu. Við finnum einn
ig fyrir ört vaxandi áhuga innlendra
fjárfesta sem er ánægjulegt.“
Tilboð sem hafa verið þannig að
þú hefur staldrað við og hugsað um
að samþykkja? „Nei, aldrei. Ekki
vegna þess að ég sé með einhverja
tölu í huga heldur finnst mér þetta
ennþá svo skemmtilegt að það
er ekki inni í myndinni að fara að
sleppa hendinni af félaginu og
hætta á þessum tímapunkti.
Þótt við værum með aðra hlut
hafa sem ættu einungis fimm eða
tíu prósent í félaginu þá myndi
eðli fyrirtækisins breytast við það
eitt af því að þú værir kominn með
aðrar skyldur.
Í dag get ég leyft mér að taka
ákvarðanir, sem annaðhvort
hafa í för með sér einhverjar
nýjungar eða meiri áhættu, sem
yrðu kannski ekki samþykktar hjá
skráðu félagi eða myndu krefjast
mun meiri umræðu. Í dag get ég
sest niður með lykilstjórnendum
og rætt málið í hálftíma og síðan
er kýlt á það á meðan skráð félag
myndi kannski ár til að komast að
sömu niðurstöðu.“
500
milljónir dala eru áætlaðar
tekjur WOW air á þessu ári.
markaðurinn 5M I Ð V I K U D A G U R 7 . j ú n í 2 0 1 7
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-E
7
9
4
1
D
0
3
-E
6
5
8
1
D
0
3
-E
5
1
C
1
D
0
3
-E
3
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K