Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 29
dortmund stal stjóra ajax
Peter Bosz verður næsti knatt-
spyrnustjóri þýska liðsins Borussia
dortmund. dortmund er þar með að
taka þjálfarann af ajax en Peter Bosz
var með samning við hollenska liðið
til ársins 2019. Bosz tekur við starfinu
hjá dortmund af thomas tuchel sem
hætti óvænt með liðið eftir tveggja
ára starf. samningur Peters Bosz og
dortmund er til næstu tveggja tíma-
bila eða fram á sumar 2019.
Bosz tók við ajax-liðinu af Frank
de Boer í byrjun síðasta tímabils.
Bosz er 54 ára gamall Hollending-
ur. Hann var lengi leikmaður Feyeno-
ord. Hann var sem dæmi á miðjunni
hjá Feyenoord þegar liðið tapaði
1-0 á móti Ía á laugardalsvellinum í
september 1993.
geir valdi 28 manna HóP
geir sveinsson, lands-
liðsþjálfari karla í hand-
bolta, valdi í gær þá 28
leikmenn sem koma til
greina fyrir leikina gegn
tékkum og Úkraínu í
undankeppni evrópumótsins en
þetta eru síðustu leikir Íslands i
riðlinum og fara fram seinna í júní.
Íslenska liðið mætir tékkum
ytra miðvikudaginn 14. júní
klukkan 16.10 og spilar svo við
Úkraínu hér heima sunnudaginn
18. júní klukkan 18.45.
Ísland þarf að vinna þá báða til
þess að komast á evrópumótið í
Króatíu í byrjun næsta árs. ekkert
kom á óvart í vali geirs en hópinn
má sjá á vísi.
handbolti strákarnir okkar æfa nú
af kappi fyrir æfingamót í noregi sem
fer fram 8. til 11. júní. Flesta sterkustu
leikmenn liðsins vantar í þetta verk-
efni og því gullið tækifæri fyrir marga
aðra að láta ljós sitt skína.
janus daði smárason fékk stóra
tækifærið á Hm í janúar og hefur
spilað reglulega síðan. Hann fór til
Álaborgar eftir Hm og varð danskur
meistari með félaginu á dögunum.
janus sér ekki eftir því að hafa farið
til danmerkur.
Var tilbúinn í atvinnumennsku
„mér fannst ég vera tilbúinn og geta
haldið áfram að bæta mig. mér finnst
ég hafa bætt mig mikið á þessu ári,“
segir janus daði en hann fékk mikið
traust hjá þjálfara sínum í Álaborg,
aroni Kristjánssyni, og spilaði mikið.
„Það var æðislegt. Ég er að spila
með og keppa á móti mönnum sem
eru betri en ég hef verið að mæta
áður og það hjálpar mér að taka
skrefin fram á við. Það var gaman
að taka þátt í þessu ævintýri. Þetta
var líklega eitt af því skemmtilegasta
sem ég hef gert. Ég er svo ungur. Ég
hef ekki upplifað neitt.“
Meistari á hverju ári
Þetta er þriðja árið í röð sem janus
daði verður landsmeistari en hann
var meistari með Haukum tvö ár
á undan. „Ég er heppinn að vera
alltaf í svona góðum liðum,“ segir
janus kíminn en hann fær að spila
í meistaradeildinni næsta vetur og
fær örugglega enn stærra hlutverk í
liðinu.
Hann fór í stutt frí til selfoss áður
en hann mætti aftur í slaginn með
landsliðinu.
„Það er gott að komast aftur í
gang og klára svo sumarið á því að
tryggja okkur inn á em. við erum
staðráðnir í því. Þetta mót í noregi
verður skemmtilegt. Öll liðin sakna
lykilmanna. Það verður gaman að
fá meiri ábyrgð og svo gaman fyrir
peyjana sem eiga skilið að fá tæki-
færi,“ segir janus en í kjölfarið eru
það síðustu tveir leikirnir í undan-
keppni em og þar er mikið undir.
„við förum í þá leiki til að vinna
og ég held að við gerum það. Það er
ekkert annað í boði.“ – hbg
Ég hef bætt mig mikið á þessu ári
Janus Daði verður í stóru hlutverki hjá landsliðinu í næstu leikjum rétt eins og
hjá Álaborg. fréttablaðið/ernir
Þetta var líklega eitt
af því skemmti-
legasta sem ég hef gert. Ég er
svo ungur. Ég hef ekki
upplifað neitt.
Janus Daði Smárason
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 18. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
30-70%
AFSLÁTTUR
S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 13M i ð V i K U d a G U r 7 . j ú n í 2 0 1 7
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-C
0
1
4
1
D
0
3
-B
E
D
8
1
D
0
3
-B
D
9
C
1
D
0
3
-B
C
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K