Fréttablaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 6
PI PA R\ TB W A • S ÍA Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN S:587 2123 FJÖRÐUR S: 555 4789 Bættu árangurinn! Íþróttagleraugu með og án styrkleika. Kjaramál Hlutfall kostnaðar Rík­ isútvarpsins vegna verktaka hefur verið stöðugt undanfarin ár, eða um 25 prósent af heildarlaunakostn­ aði. Þetta kemur fram í athuga­ semd Margrétar Magnúsdóttur, skrifstofustjóra RÚV, vegna fréttar Fréttablaðsins í gær. Þannig vísar stofnunin á bug vangaveltum þingmannsins Kol­ beins Óttarssonar Proppé um að verktökum fjölgi. „Maður hefur heyrt það að verktakar séu í aukn­ um mæli að sinna starfinu og ekki bara að taka þátt og þátt, heldur séu að sinna fullri starfsskyldu en séu ekki fastráðnir starfsmenn heldur verktakar,“ sagði Kolbeinn í Frétta­ blaðinu í gær. Kolbeinn spurðist fyrir um málið á Alþingi og krafðist skriflegra svara frá Kristjáni Þór Júlíussyni. Í svari ráðherra, sem byggir á svari RÚV, kemur fram að verkefni þeirra verk­ taka sem vinna fyrir Ríkisútvarpið séu afar mismunandi, allt frá því að til dæmis tónlistarmaður komi fram í eitt skipti í einum þætti eða til dag­ skrárgerðar í nokkra mánuði. „Þá eru ýmis tilfallandi eða tímabundin verkefni sem ekki koma að dagskrá unnin í verktöku. Verktakar sem vinna fyrir Ríkisútvarpið samkvæmt þessari skilgreiningu skipta hund­ ruðum á hverju ári,“ segir í svarinu. Halldór Grönvold, aðstoðarfram­ kvæmdastjóri ASÍ, telur hlutfall verktaka vera hátt. „Miðað við eðli starfseminnar finnst mér það vera óeðlilegt hlutfall,“ segir hann og bendir á að þýðendur hafi gagnrýnt mikið verktakasamninga hjá RÚV og einnig hafi verktakasamningar við tæknimenn verið gagnrýndir. Fjórðungur kostnaðar launa vegna verktaka Hlutfall kostnaðar RÚV vegna verktaka hefur verið stöðugt undanfarin ár. Fjöldi verktaka sem vinna þar hleypur á hundruðum á hverju ári. Aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ telur að hlutfallið sé hátt miðað við eðli starfseminnar. Svöruðu fyrirspurn 11. apríl Í upphafi vikunnar gagnrýndi Kolbeinn Óttarsson Proppé harðlega á fundi Alþingis að hann hefði ekki fengið svör frá menntamálaráðherra við fyrir- spurn sinni, tveimur mánuðum eftir að hann lagði hana fram. Fréttablaðið fékk þær upplýs- ingar frá mennta- og menningar- málaráðuneytinu að fyrirspurn- inni hefði ítrekað verið beint til RÚV. Margrét segir í svarinu að svar RÚV hafi borist ráðuneytinu þann 11. apríl síðastliðinn. Ráðu- neytið hafi síðan óskað eftir frekari upplýsingum. Verktakar hjá RÚV skipta hundruðum á hverju ári. Verktakasamningar hjá stofnuninni hafa verið gagnrýndir nokkuð. FRéttablaðið/PjetuR „Það sem maður sér fyrir sér að geti verið eðlilegur hluti af verk­ tökunni er einhvers konar þátta­ gerð eða því um líkt,“ segir Halldór og veltir fyrir sér hvert hlutfall verk­ töku af heildarlaunakostnaði sé hjá 365 í samanburði við RÚV. 365 rekur meðal annars Fréttablaðið, Stöð 2, Bylgjuna og Vísi. Fréttablaðið spurði í gær Ingibjörgu Pálmadóttur, for­ stjóra 365, út í málið en hefur ekki fengið svör. jonhakon@frettabladid.is Miðað við eðli starfseminnar finnst mér það vera óeðlilegt hlutfall. Halldór Grönvold. aðstoðarfram- kvæmdastjóri ASÍ Eyðileggingin alger Þessir þungvopnuðu írösku hermenn stóðu vörð innan um húsarústir í Zanjili-hverfinu í vesturhluta borgarinnar Mósúl í gær. Nærri þeim er víg- línan þar sem samlandar þeirra berjast við vígamenn hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki. Orrustan um borgina hefur staðið mánuðum saman og hefur íraski herinn náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Fjöldi hefur flúið borgina vegna átakanna. noRdicPhotos/aFP Dómsmál Viðar Már Friðfinnsson, fyrrverandi eigandi kampavíns­ klúbbsins Strawberries, hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot. Mun hann ekki hafa staðið skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu í rekstri staðarins. Þá var hann einnig dæmdur til greiðslu sektar í ríkissjóð upp á 242 milljónir króna en sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um upptöku eigna í eigu félaga hans. Viðar hefur krafist þess í tæp fjögur ár að kyrrsetningu eigna verði aflétt. Að sögn Páls Kristjánssonar, lög­ manns Viðars, mun hann koma til með að skoða rétt sinn. „Hann telur á sér brotið og eðlilega mun hann leita réttar síns. Miðað við dóm héraðsdóms voru félög í hans eigu sýknuð af upptöku eigna. Á móti hafa eignir farið á uppboð og hann misst eignir langt undir raunvirði,“ segir Páll og bætir því við að fjárhags­ legt tjón Viðars vegna þessa sé veru­ legt. „Félög hafa eyðilagst og farið í gjaldþrot.“ – þea Fyrrverandi eigandi Strawberries íhugar rétt sinn Hann telur brotið á sér og eðlilega mun hann leita réttar síns. Páll Kristjánsson, lögmaður 2 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð 0 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F E -7 C 2 4 1 C F E -7 A E 8 1 C F E -7 9 A C 1 C F E -7 8 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.