Fréttablaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 12
8 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R12 S p o R t ∙ F R É t t A B l A ð i ð sport FótBolti Sif Atladóttir hefur verið fastamaður í landsliðinu lengi og er á leiðinni á sitt þriðja stórmót með íslenska liðinu. Fréttablaðið hitti á hana fyrir æfingu landsliðsins á dögunum og heyrði í henni hljóðið. „Stemmingin er bara góð. Ég er búin að eiga góða fyrstu daga og maður er spenntur fyrir deginum í dag,“ sagði Sif, en landsliðið var að koma saman á sína fyrstu æfingu fyrir Evrópumótið í Hollandi sem hefst sunnudaginn 16. júlí. Ísland spilar í C-riðli og hefur leik gegn Frökkum þriðjudaginn 18. júlí. Hvernig er að vera á leiðinni á sitt þriðja stórmót? „Hvert stórmót er sérstakt út af fyrir sig, en maður er kannski rólegri í ár miðað við áður. Þetta er fyrsta stór- mótið þar sem maður er í formi, fyrir utan kannski 2009 þar sem ég var mest bara á bekknum, því 2013 þá var ég svo mikið meidd, þannig að þetta verður spennandi.“ Þrátt fyrir meiðsli byrjaði Sif þrjá af fjórum leikjum Íslands á Evrópu- mótinu árið 2013 og var lykilmaður í varnarlínu Íslands. Hún verður 32 ára daginn áður en Evrópumótið verður sett og er einn af reyndustu leikmönnum liðsins, með 50 lands- leiki að baki. Kynslóðaskipti í liðinu Undanfarið hafa verið ákveðin kyn- slóðaskipti í landsliðinu, reyndir leikmenn hafa verið að leggja skóna á hilluna og yngri að stíga fram í sviðsljósið. Spurð út í hvernig hún upplifi þessar breytingar sagði Sif: „Þetta er bara gaman. Það er ógeðs- lega gaman að sjá þessar stelpur koma upp og stíga upp á þetta stig. Það sýnir hvað íslensk knattspyrna er frábær og á leiðinni upp. Það þýðir að ég fæ kannski meiri ábyrgð heldur en maður hefur verið með, en maður tekur því fagnandi.“ Fagna stærra ábyrgðarhlutverki Sif Atladóttir er lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins sem hefur leik á EM 18. júlí. FréttA- blAðið/Ernir Sif Atladóttir er á leiðinni á sitt þriðja stórmót með íslenska kvennalandsliðinu. Hún tekur kynslóðaskiptum í landsliðinu vel og segist ætla að halda áfram eins lengi og líkaminn leyfir. Svanasöngur Sifjar? Eftir farsælan feril skyldi fáa undra þótt Sif væri sjálf með hugann við að leggja frá sér landsliðs- skóna. Aðspurð segist hún þó ekki vera farin að huga að því. „Nei, á meðan líkaminn heldur og þetta er skemmtilegt þá sér maður enga ástæðu til að hætta. Það er HM eftir tvö ár og af hverju ekki að stefna þangað eins og að stefna á EM 2017?“ Ísland hefur aldrei komist í lokakeppni heimsmeistaramóts og því ekki skrítið að hugurinn stefni þangað, en Sif vildi þó ekki gefa neitt út um þau markmið. „Við byrjum á þessu núna í sumar og svo ræðum við hitt í haust,“ sagði Sif glöð í bragði. Sjöunda árið í Svíþjóð Sif hefur verið á mála hjá sænska liðinu Kristianstad síðan árið 2011 og byrjar sitt sjöunda ár hjá liðinu í haust. Hún hefur spilað 72 leiki fyrir félagið sem er í efstu deild í Svíþjóð. Spurð hvort hún ætli sér að vera þar um ókomna tíð segir Sif: „Já, á meðan líkaminn heldur og maður nær að halda tempói og fólk vill hafa mann í liðinu. Ég held það sé nú mest það, að maður sé að standa sig vel og halda áfram að fá tækifæri til þess að spila við þá bestu, á móti þeim bestu og með þeim bestu.“ astrosyr@365.is PIPA R\TBW A • SÍA • 172166 VEL BÚINN MANNSKAPUR VINNUR BETUR Elka vinnu- og hlífðarfatnaður er lipur og þægilegur og tryggir góðan hreyfanleika. Vertu viss um að velja rétta fatnaðinn fyrir starfsfólkið þitt. Söluráðgjafar Olís svara fyrirspurnum í síma 515 1100 og á pontun@olis.is. Sendum hvert á land sem er. Sportrásir Stöðvar 2 l08.55 F1: Æfing Sport l11.30 Dubai Open Golfstöðin l11.50 F1: tímataka Sport l17.00 Greenb. Classic Golfstöðin S02.00 UFC: 213 Sport S11.30 F1: Austurríki Sport S16.45 Grindavík - KA Sport S17.00 Greenb. Classic Golfstöðin S19.45 Valur - Stjarnan Sport S21.30 thornb. Classic Golfstöðin Pepsi-deild karla S17.00 ÍbV - breiðablik S17.00 Grindavík - KA S20.00 Valur - Stjarnan inkasso-deildin l14.00 leiknir F. - Ír Í dag Fylkir - Haukar 1-0 1-0 Valdimar Þór Ingimundarson (70.), 2-0 Oddur Ingi Guðmundsson (87.). Selfoss - Þróttur 1-1 0-1 Vilhjálmur Pálmason (36.), 1-1 Ivan Martinez (43.). inkasso-deildin staðan FélAG l U J t MÖrK S Fylkir 10 7 1 2 18-7 22 Keflavík 10 6 3 1 16-7 21 Þróttur r. 10 6 2 2 18-11 20 Þór 10 5 0 5 16-14 15 Selfoss 10 4 3 3 12-15 15 Fram 10 4 3 3 13-14 15 Haukar 9 3 4 2 14-11 13 HK 10 4 0 6 12-15 12 leiknir r. 10 2 5 3 13-14 11 Ír 9 2 2 5 9-14 8 leiknir F. 9 2 1 6 10-22 7 Grótta 10 1 2 2 6-16 5 Nýjast FH - Víkingur Ó. 0-2 0-1 Kenan Turudija (56.), 0-2 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (79.). Pepsi-deild karla staðan FélAG l U J t MÖrK S Valur 9 6 2 1 15-8 20 Grindavík 9 5 3 1 14-10 18 FH 11 4 5 2 19-15 17 Stjarnan 9 4 2 3 19-14 14 Víkingur r. 9 4 2 3 15-13 14 KA 9 3 3 3 16-12 12 Kr 9 3 2 4 13-15 11 breiðablik 10 3 2 5 13-17 11 ÍbV 9 3 1 5 10-16 10 Víkingur Ó. 10 3 1 6 11-18 10 Fjölnir 9 2 3 4 8-13 9 ÍA 9 2 2 5 18-20 8 0 8 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 4 8 -4 A B 8 1 D 4 8 -4 9 7 C 1 D 4 8 -4 8 4 0 1 D 4 8 -4 7 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.