Fréttablaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 26
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@365.is Ég er nýkominn heim eftir fjög­urra ára háskólanám í Rotter­dam þaðan sem ég útskrifaðist í júní með BA­próf í sirkuslistum. Ég sérhæfði mig í súlufimi, sem er ekki það sama og súlufitness heldur er súlan ansi miklu hærri og hreyfingin öðruvísi. Aðrir voru til dæmis með jafnvægislistir, fimleika eða loftfimleika sem aðalgrein en fyrir utan það þurfum við líka að æfa okkur í undirstöðuatriðum eins og að djöggla og standa á höndum. Við erum líka mikið í leiklistaræf­ ingum og dansi þannig að námið er mjög fjölbreytt og skóladagurinn oft langur.“ Sirkusáhuginn hafði alltaf blundað í Jóakim og sem krakki hafði hann gaman af því að leika sér á hjólaskautum og með bolta. En það má segja að fyrstu skrefin á sirkusbrautinni hafi verið stigin þegar hann sá einhjól í búðar­ glugga. „Ég var sautján ára og kolféll fyrir einhjólinu og keypti það strax. Svo veðjaði ég við félaga minn um hvor okkar yrði fljótari að læra á hjólið. Þannig að við vorum að æfa okkur á hverjum degi í einhverjar vikur niðri í bæ sem leiddi af sér að okkur var boðið á sirkusæfingu í Kramhúsinu með þeim hópi sem seinna stofnaði Sirkus Íslands. Og áður en við vissum af vorum við farnir að vinna við þetta, sýna og kenna.“ Jóakim hefur því verið hluti af Sirkus Íslands næstum frá byrjun. „Fyrsta sumarsýningin okkar var 2011 í Tjarnarbíó og það var ágætt að vera þar. Á Sirkushátíð sem var haldin í Vatnsmýrinni 2013, þar sem reis heilt þorp af sirkus­ tjöldum, áttuðum við okkur hins vegar á því hvað það er mikilvægt fyrir sirkus að eiga sirkustjald. Við Sirkusköttur á róluvellinum Í sýningunni Róló leikur Jóakim kött sem fer sínar eigin leiðir. lJóSmynd/EyþóR Jóakim Meyvant Kvaran er nýút- skrifaður með BA í sirkuslistum. Hann vinnur hjá Sirkus Íslands sem frumsýnir þrjár nýjar sýning- ar um helgina og hlakkar til að leika listir sínar í sumar. efndum til söfnunar á Karolina Fund og árið 2014 fengum við Jöklu og erum búin að vera að sýna síðan þá.“ Í sumar verður Jökla mest á Klambratúni en áður hefur sirkusinn farið með tjaldið um allt land. „Við förum tvær helgar á Sel­ foss og komum aftur til Reykjavíkur en ætlum svo vonandi að flakka um landið með þessar sýningar næsta sumar.“ Sirkusinn er með þrjár nýjar sýningar í sumar, að sögn Jóakims. „Sú stærsta er fjölskyldu­ sýningin Róló, Litli Sirkus er hugsuð fyrir undir fimm ára og foreldra þeirra og svo er það Skinnsemi þar sem við leyfum okkur fullorðins­ legri húmor.“ Róló er sýning með söguþræði og gerist eins og nafnið bendir til á róluvelli. „Karakterinn minn er svona hálfgerður villi­ köttur sem á heima á leikvellinum og er pínulítið góður með sig en hefur gaman af því að ráfa um og heimsækja börnin sem eru að leika sér.“ Hann má ekki segja mikið um aðrar persónur. „En ég get lofað því að lokaatriðið verður það flottasta sem við höfum nokkurn tíma sýnt.“ Sirkusinn verður með sýningar allar helgar í sumar en síðasta sýn­ ingin er 20. ágúst, sunnudaginn eftir menningarnótt. Nánari upplýsingar má finna á sirkusislands.is. Pantaðu á www.curvy.is eða kíktu við í verslun okkar að Fákafeni 9 Opið Alla virka daga frá kl. 11-18 og Laugardaga frá kl. 11-16 ÚTSALA ÚTSALA! 30-50% AFSLÁTTUR Fákafeni 9, 108 RVK Sími 581-1552 | www.curvy.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9 Alla virka daga frá kl.11-18 Laugardaga frá kl. 11-16 4 KynnInGARBlAÐ FólK 8 . J ú l Í 2 0 1 7 l AU G A R dAG U R 0 8 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 4 8 -4 5 C 8 1 D 4 8 -4 4 8 C 1 D 4 8 -4 3 5 0 1 D 4 8 -4 2 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.