Fréttablaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 10
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Í því ljósi
hlýtur að líða
að því, að
einhvers
konar endur-
mat fari fram
meðal stjórn-
málamanna
og hagsmuna-
samtaka
atvinnulífsins
hér á Íslandi.
Mín skoðun Logi Bergmann
Fyrir mörgum árum var dálkur í Mogganum sem hét Bókin á náttborðinu. Þar var fólk spurt hvað það væri nú helst að lesa. Svarið var yfirleitt eitthvað í líkingu við þetta:
„Ég er að lesa Gerplu. Aftur. Alltaf gaman að renna
yfir Laxness fyrir svefninn. Svo hef ég verið að lesa
ljóð eftir blablabla. Á frummálinu. Mér finnst ljóð
hans alltaf svo sterk og eiga mikið erindi við þjóð-
félagið. Svo reyni ég að fylgjast með í fræðasamfélag-
inu og er oft með fræðirit við höndina.“
Það var alveg sama við hvaða pappakassa var
talað. Menn voru alltaf að lista yfir sig í rúminu og
menningin lak af þeim öllum. Mögulega var einhver
að segja satt. Ég dreg það samt í efa. Það væri bara of
fáránleg tilviljun ef enginn úr þessum risastóra hópi
hefði verið að lesa eitthvað fullkomlega ómenn-
ingarlegt. Eins og glæpasögu eða bara tímarit.
Heiðarlega svarið
Ég hefði verið svo til í að einhver hefði svarað svona:
„Tjah. Það er nú engin bók. Ekki mikið fyrir að lesa
bækur. En hér er gamalt Playboy. Oft fín viðtöl í því.
Jú, og svo kíki ég í Ísfólkið annað slagið.“
Það gerðist náttúrlega aldrei. En svo rann upp fyrir
mér hvernig stóð á því. Þá var ég svona rétt að verða
þekktur og eitthvert Líf bað mig að svara spurn-
ingum um nokkra uppáhaldshluti. Mér fannst það
stórmál og man að ég vildi standa mig. Sýna að ég
væri nú enginn vitleysingur. Ég held að ég hafi verið
heilan dag að berja saman svar. Maður minn. Ég fæ
enn aulahroll þegar ég hugsa um svörin.
Í stað þess að leyfa mér bara að vera plebbinn
sem ég er, þá virðist ég hafa vandað mig alveg sér-
staklega við að slá Íslandsmetið í tilgerð. Ég var 25
ára íþróttafréttamaður sem ákvað að breyta sér í
miðaldra sérfræðing í klassískri tónlist. Ég held að
ég hafi í raun og veru þurft að fletta upp sumum
svörunum hjá mér. Og ég man hvað ég hataði mig
eftir þetta.
Hverjum er ekki sama?
Svo gerist eitthvað. Með aldrinum hættir að skipta
máli hvað fólki finnst um mig og menningarlegt
ástand mitt. Það rennur upp fyrir manni að svo lengi
sem maður er sjálfur sáttur við hvernig maður hagar
lífi sínu breytir álit annarra litlu. Lífið er nefnilega of
stutt til að eyða því í að ganga í augun á ókunnugu
fólki.
Og svo ég svari nú spurningunni. Á náttborð-
inu hjá mér eru nokkrar fjarstýringar, Kindle með
nýjustu Reacher-bókinni, golfbók og ævisaga fót-
boltamanns. Ef það er ekki nógu fínt fyrir einhvern,
verður bara að hafa það.
Og ef þetta hljómaði ekki nógu plebbalega, er rétt
að taka það fram að ég skrifaði þennan pistil sitjandi
í Lazyboy-stól að horfa á fótbolta í sjónvarpinu.
Listin að vera plebbi
Það væri bara of fáránleg tilviljun ef enginn
úr þessum risastóra hópi hefði verið að lesa
eitthvað fullkomlega ómenningarlegt. Eins
og glæpasögu eða bara tímarit.
S amtök iðnrekenda í Bretlandi hafa skorað á Theresu May forsætisráðherra að endurskoða aðferðir og áherslur í Brexit-viðræðunum. Samtökin vilja að Bretar setji hugmyndir um aðra við-skiptasamninga á ís og leggi áherslu á að
Bretar hafi óskoraðan aðgang að innri markaði
Evrópu og tollabandalaginu.
Með öðrum orðum, Bretar eigi að stefna að
því að ganga einungis úr Evrópusambandinu að
nafninu til.
Áskorunin endurspeglar vandræðin sem Bretar
hafa ratað í. Stjórnmálamannanna bíður að fara
að þjóðarviljanum sem endurspeglaðist í Brexit-
atkvæðagreiðslunni. Samtímis eru langflestir
sannfærðir um að Brexit sé Bretum ekki í hag.
Vandinn er sá að framáfólkið í Íhaldsflokknum –
þau May, Michael Gove, sem nú hefur snúið aftur
í ríkisstjórn, og Boris Johnson utanríkisráðherra –
seldu sálu sína fyrir Brexit. Fyrir þau er það nánast
pólitísk sjálfsmorðsyfirlýsing að hvika í málinu.
Á meðan Bretar velta fyrir sér hvernig hægt sé
að ganga úr Evrópusambandinu án þess að missa
þann ávinning sem í aðildinni felst, geta talsmenn
ESB borið sig vel. Barnier, aðalsamningamaður
ESB, segir hugmyndir um slíkt fráleitar. ESB sé ein-
faldlega ESB – þjóðir geti verið inni eða úti.
Hinn almenni Breti er í auknum mæli að gera sér
grein fyrir því að það voru mistök að segja skilið
við Evrópusambandið. Nýlegar kannanir benda til
þess að 60% kjósenda vilji endurskoða afstöðuna
sem birtist í atkvæðagreiðslunni í fyrrasumar. Það
er ansi seint í rassinn gripið.
Við bætist að efnahagsmálin í Evrópu, sem
sífellt er tönnlast á að séu í miklum ólestri, eru
í raun á leið í rétta átt. Hagvöxtur er meiri á
evrusvæðinu en í Bretlandi. Atvinnusköpun innan
ESB hefur tekið kipp, en ekki hafa orðið til fleiri
ný störf síðan árið 2009. Á meðan ríkir lognmolla
á breskum vinnumarkaði, þrátt fyrir fall sterlings-
pundsins, sem ýtir undir útflutning.
Þeim fjölgar sem vilja finna leið til að hætta við
allt saman. Tony Blair, fyrrverandi forsætisráð-
herra, er einn þeirra og hefur stofnað félagasamtök
um þá hugmynd. Blair nýtur ekki mikils trausts
um þessar mundir – engu að síður vex skoðun
hans fylgi, sem gæti kallað fram nýja og trúverð-
ugri forystumenn.
Brexit kallar fram betri greiningu á stöðunni í
Evrópu. Sú greining er ESB afar hagfelld að flestu
leyti. Bretar hafa lært þá lexíu. Í því ljósi hlýtur að
líða að því, að einhvers konar endurmat fari fram
meðal stjórnmálamanna og hagsmunasamtaka
atvinnulífsins hér á Íslandi.
Krónan bítur helstu talsmenn sína svo undan
svíður í gósentíðinni. Það er engin skömm að
skipta um skoðun á grundvelli endurmats sem
byggist á staðreyndum sem við blasa. Við getum
líka lært af reynslu annarra þjóða.
Sleppt og haldið
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Líflegir litir!
iGreen V5.06.12
umgjörð
kr. 11.900,-
Með iGreen umgjörðum getur þú útbúið
þá litasamsetningu sem þú vilt.
8 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R10 s k o ð U n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
SKOÐUN
0
8
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
4
8
-4
F
A
8
1
D
4
8
-4
E
6
C
1
D
4
8
-4
D
3
0
1
D
4
8
-4
B
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
7
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K