Fréttablaðið - 27.06.2017, Page 2
Mikið úrval af limgerðisklippum - með bensínmótor,
rafmótor eða fyrir 18 og 36V rafhlöður
Limgerðis-
klippur
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Tafir á Sæbraut
„Þetta er bara þannig gata að við megum ekki taka þennan vegarkafla á nóttunni vegna íbúabyggðarinnar,“ sagði Óskar Aðils Kemp, starfsmaður
verktakans Hlaðbæjar Colas, sem í gær vann að því að fræsa upp gamalt malbik á Sæbraut og leggja nýtt. Olli það gríðarmiklum umferðartöfum.
Óskar sagði að í dag yrði byrjað mun fyrr að fræsa en í gær eða strax klukkan fimm og síðan hæfist malbikun klukkan átta. Fréttablaðið/andri Marinó
Verslun Costco á Íslandi óskaði í vor
eftir að fá að leigja bílastæði á lóð
sælgætisgerðarinnar Góu við Garða-
hraun. Helgi Vilhjálmsson í Góu
segir óljóst hvað Costco vildi gera við
bílastæðin en telur líklegt að ætlunin
hafi verið að bæta við stæðum fyrir
starfsfólk verslunarinnar sem er í um
eins kílómetra fjarlægð frá höfuð-
stöðvum Góu og KFC.
„Þessi verslun er komin hingað
og verslar nú ekki mikið við íslensk
fyrirtæki. Ég er svo sem ekki ósáttur
við það og vil frekar selja hinum 500
búðunum. Að sparka svona í rass-
gatið á okkur og sýna okkur ekki
lit og vilja svo fá bíla-
stæðin hjá okkur. Þá
fer maður að hlæja
og spyrja: Hvar eru
sérfræðingarnir?“
segir Helgi. – hg
Vildi ekki lána
Costco stæðin
Helgi Vilhjálms-
son í Góu
Veður
Róleg suðvestanátt í dag. Skýjað
vestan til á landinu og lítilsháttar
skúrir öðru hverju. Öllu léttara yfir
austanverðu landinu, en skúrir á
stöku stað síðdegis. Hiti 8 til 17 stig,
hlýjast á Austurlandi. sjá síðu 16
samfélag „Ákærði krefst sýknu af
öllum ákæruliðum og telur að slysið
megi ekki rekja til atvika sem hann
ber ábyrgð á,“ segir Áslaug Gunn-
laugsdóttir, verjandi unga mannsins
sem ákærður er fyrir manndráp af
gáleysi þegar hann bakkaði hjólabát
við Jökulsárlón á kanadíska konu
sem lést. Málið var þingfest í gær í
Héraðsdómi Austurlands.
Maðurinn, sem fæddur er árið
1993, er ákærður fyrir manndráp af
gáleysi og í ákærunni er þess krafist
að hann verði dæmdur til refsingar,
sviptur ökuréttindum og greiði allan
sakarkostnað.
Áslaug var skipaður verjandi
mannsins um hádegisbilið í gær og
fékk frest til haustsins til að leggja
fram greinargerð og fer næsta
þinghald fram í haust. Hún segir
að þegar maðurinn var ráðinn til
starfa hafi hann upplýst um þau
réttindi sem hann hafði og félagið
sagði réttindin vera fullnægjandi til
að sigla hjólabátum á Jökulsárlóni
sem byggist á undanþágu frá Sam-
göngustofu.
Í tilkynningu frá lögmanni ferða-
þjónustunnar Jökulsárlóns ferða-
þjónustu ehf. kemur fram að árið
2016 gerðu aðstandendur hinnar
látnu og vátryggjandi félagsins með
sér samkomulag sem fól í sér fulln-
aðaruppgjör á bótum vegna slyss-
ins. – bb
Skipstjórinn
neitar ábyrgð
aKureYrI Vinna er hafin við að
skipta öðru sinni um jarðveg í glæ-
nýjum reiðvegi á Akureyri. Jarð-
vegur sá sem notaður var í upphafi
reyndist ófullnægjandi.
Vegurinn, sem liggur sunnan
við golfvöll bæjarins, var lagður í
vor. Snemma kom í ljós að efnið
var mengað af alls konar úrgangi.
Meðal annars mátti þar finna postu-
lín, glerrusl og málma. Skipt var um
efnið um leið. Nýja efni reyndist
einnig ófullnægjandi.
Fundir hafa farið fram vegna
málsins allan mánuðinn og botn
fékkst í það fyrir helgi í kjölfar þess
að hestur fékk nagla í hófbotn. Nið-
urstaðan varð sú að skipta þurfti um
jarðveg öðru sinni.
„Við höfðum bent á hættuna á að
þetta gæti gerst allan mánuðinn.
Því miður þá fór þetta svona,“ segir
Sigfús Helgason, framkvæmdastjóri
hestamannafélagsins Léttis á Akur-
eyri.
Sigfús segir að knapar og fulltrúar
Léttis hafi gert athugasemdir við
veginn strax í upphafi. Reynt var að
finna ódýrustu leiðina til að tækla
vandann.
„Við höfum verið í mjög góðu
samstarfi við umhverfis- og mann-
virkjaráð. Það sáu allir strax að
eitthvað þurfti að gera en það voru
skiptar skoðanir um hvaða leið
væri best. Við settum velferð knapa
og hrossa ofar peningunum,“ segir
Sigfús.
Líkt og áður segir var vegurinn
glænýr en hann var tekinn í notkun
í lok maí. Ingibjörg Isaksen, for-
maður umhverfis- og mannvirkja-
ráðs, segir að það hafi verið mikil
vonbrigði þegar það uppgötvaðist
hvernig efni fékkst í seinna skiptið.
„Þetta var efni sem við fengum og
hafði farið í meðhöndlun og átti að
uppfylla alla staðla. Við töldum að
það væri í lagi en annað kom í ljós,“
segir Ingibjörg.
Meðal annarra möguleika sem
kannaðir voru var að gá hvort unnt
væri að ná ruslinu burt með því að
fara með öflugan segul yfir veginn.
Þar sem segullinn var bilaður var
ekki unnt að nota hann. Því var
ákveðið að fjarlægja efnið.
„Við fengum efnið án kostnaðar
og borguðum aðeins fyrir flutn-
inginn á því. Kostnaðurinn felst í
vinnunni við að fjarlægja það og að
finna efni sem uppfyllir þær kröfur
sem gerðar eru til reiðvega,“ segir
Ingibjörg. johannoli@frettabladid.is
Endurnýja reiðveg með
úrgangi í þriðja skiptið
Reiðvegur á Akureyri hefur verið í ólestri frá því hann var lagður. Í tvígang hefur
efni í veginn reynst ófullnægjandi enda fullt af glerbrotum og öðru rusli. Efni
hefur nú verið skipt út í annað sinn. Kostnaðurinn er sagður lítill fyrir bæinn.
Glerbrot og naglar voru í nýjum reiðvegi á akureyri. Fréttablaðið/SVeinn
Fá merki leiðbeina um umferð við
Jökulsárlón. Fréttablaðið/VilHelM
2 7 . j ú n í 2 0 1 7 Þ r I ð j u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
2
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
0
-D
4
4
0
1
D
3
0
-D
3
0
4
1
D
3
0
-D
1
C
8
1
D
3
0
-D
0
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K