Fréttablaðið - 27.06.2017, Síða 8
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Félags- og jafnréttismálaráðherra verður tíð-rætt um það hlutverk fæðingarorlofskerfisins að stuðla að jafnrétti. Það er vissulega eitt af
meginmarkmiðunum en vandinn er að þessu mark-
miði höfum við ekki náð. Raunar höfum við færst
fjær markmiðinu á undanförnum árum og lítið bólar
á raunverulegum breytingum á kerfinu sem BSRB og
fleiri hafa kallað eftir lengi.
Niðurskurður í kjölfar hrunsins stórskaðaði
fæðingarorlofskerfið og ekki hefur verið bætt þar
úr nema að litlum hluta. Ráðherra hefur nú boðað
hækkun hámarksgreiðslna í 600 þúsund krónur á
mánuði. Sú hækkun er vissulega mikilvægt skref. En
hún er bara eitt lítið skref af þeim mörgu sem stíga
verður til að kerfið skili í raun því mikilvæga hlut-
verki að stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði.
Mikilvægt er að lengja orlofið í 12 mánuði. Þá
þarf einnig að tryggja börnum dagvistunarúrræði
strax þegar orlofi lýkur. Rannsóknir sýna að mæður
taka ekki bara lengra orlof en feður, þær axla einnig
frekar ábyrgð á því að brúa bilið frá fæðingarorlofi
þar til barnið kemst í dagvistun eða á leikskóla. Þær
eru því að jafnaði mun lengur frá vinnu en feður sem
hefur neikvæð áhrif á stöðu þeirra á vinnumarkaði.
Það er ekki nóg að tryggja að feður taki eitthvert
fæðingarorlof. Eftir nær tveggja áratuga reynslu af
fæðingarorlofskerfinu er ljóst að næstu skref verða
að vera þau að tryggja feðrum sömu möguleika og
mæðrum til sex mánaða fæðingarorlofs.
Einnig þarf að tryggja að þeir sem lægst hafa laun-
in geti tekið fullt fæðingarorlof. Það má gera með því
að tekjur allt að 300 þúsund krónum skerðist ekki í
fæðingarorlofi.
Ef þetta hljómar kunnuglega er það trúlega vegna
þess að þessar tillögur komu fram í skýrslu sem
starfshópur ráðherra skilaði snemma árs í fyrra.
Sé ráðherra alvara þegar hann talar um mikilvægi
fæðingarorlofskerfisins fyrir jafnrétti á vinnumark-
aði mun hann þegar í stað hefja vinnu við að breyta
lögum í samræmi við tillögur starfshópsins. Það er
ekki eftir neinu að bíða.
Lengjum fæðingarorlofið
Sé ráðherra
alvara þegar
hann talar
um mikilvægi
fæðingaror-
lofskerfisins
fyrir jafnrétti
á vinnumark-
aði mun hann
þegar í stað
hefja vinnu
við að breyta
lögum.
Elín Björg
Jónsdóttir
formaður BSRB
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að íslensk stjórnvöld ættu að setja það í algjöran for-gang að efla eftirlit með bankakerfinu. Sjóð-urinn hefur áréttað þriggja ára gamla gagn-rýni sína um að Fjármálaeftirlitið (FME) sé bitlaus stofnun og skorti sjálfstæði.
Þetta kemur fram í úttekt sjóðsins á stöðu og horfum
í íslensku efnahagslífi sem birtist 22. júní síðastliðinn.
Þar er jafnframt gefið sterklega í skyn að FME ráði ekki
við stór og viðamikil verkefni eins og athugun á kaupum
erlendra vogunarsjóða á þriðjungshlut í Arion banka
sem sé prófsteinn fyrir stofnunina. Eru þessi tilteknu við-
skipti með bréf í Arion banka nefnd á nokkrum stöðum
í úttektinni.
Í haust verða níu ár frá banka- og gjaldeyrishruninu.
Orsakir hrunsins voru samspil margra þátta. Bankarnir
stækkuðu langt fram úr hófi með lántökum erlendis í
skjóli góðs lánshæfis íslenska ríkisins. Árið 2008 voru
efnahagsreikningar þeirra orðnir tólf sinnum landsfram-
leiðsla Íslands sem var algjört einsdæmi í heiminum á
þeim tíma. Þá voru bankarnir allt of áhættusæknir og
lánuðu of háar fjárhæðir til eigenda sinna og fárra aðila
sem tengdir voru innbyrðis. Efnahags- og rekstrarreikn-
ingar bankanna voru falsaðir til að gefa betri mynd af
stöðu þeirra en hún raunverulega var. Þetta gátu þeir gert
í skjóli vottorðs frá stórum erlendum endurskoðunar-
fyrirtækjum. Samhliða þessu brást svo opinbert eftirlit
með bankakerfinu.
FME var alltof fámenn stofnun fyrir hrunið. Starfs-
mannaveltan var mikil og starfsmönnum fjölgaði ekki
samhliða aukinni ábyrgð og nýjum verkefnum. Starfs-
mönnum FME var líka mætt af fullri hörku í bönkunum
sem réðu til sín her sérfræðinga til að verjast öllum
athugasemdum og fyrirspurnum stofnunarinnar. Fyrr-
verandi stjórnandi hjá FME lýsti þessu í smáatriðum í
viðtali við Morgunblaðið 8. janúar 2009. Þá er þetta allt
rakið í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis frá 12. apríl
2010.
FME var stórkostlega vanrækt stofnun á sama tíma
og bankabólan blés út af fullum krafti. Þess vegna eru
athugasemdir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins núna árið
2017 svo óþægileg lesning. Hugtakið déjà vu er notað
á alþjóðavísu til að lýsa þeirri upplifun að hafa orðið
fyrir atburði áður eða séð stað áður án þess að kunna
skýringu á því. Vandamálið við notkun déjà vu um þá
atburði sem gerast fyrir augunum á okkur núna er auð-
vitað að við getum fullkomlega útskýrt að við séum að
endurtaka sömu mistökin þegar kemur að eftirliti með
bankakerfinu. Þetta er ekki eins og að fljóta sofandi að
feigðarósi. Þetta er eins og að sleppa því að spenna á sig
bílbelti og lenda svo viljandi í bílslysi, fullkomlega með-
vitaður um hvað hafi gerst.
Það er merkilegt í ljósi þeirra lærdóma sem Íslend-
ingar telja sig hafa dregið af bankahruninu að ekki hefur
enn verið farið í nauðsynlega endurskoðun á lögum um
opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi í þeim tilgangi
að efla FME. Samt hefur forstjóri FME kallað eftir slíku í
nokkur ár. Það er kannski kominn tími fyrir ráðamenn
til að hlusta á forstjóra stofnunarinnar.
Déjà vu
Þetta er eins
og að sleppa
því að spenna
á sig bílbelti
og lenda svo
viljandi í bíl-
slysi, fullkom-
lega meðvit-
aður um hvað
hafi gerst.
UP!LAGÐUR
Við látum framtíðina rætast.
Nýr up! frá aðeins
1.790.000 kr.
Dómur Gísla
Eitt þekktasta pólitíska hneyksli
sögunnar varð árið 2013 þegar
aðstoðarmaður þáverandi
innanríkisráðherra lét fjöl-
miðlum í té upplýsingar um
mann sem hafði sótt um hæli
hér á landi. Upplýsingar um
að maðurinn væri grunaður
um mansal. Ríkissaksóknari
tók málið af fullri alvöru og lét
fara fram lögreglurannsókn.
Aðstoðarmaðurinn, Gísli Freyr
Valdórsson, sætti síðan lög-
reglurannsókn og var dæmdur
í skilorðsbundið átta mánaða
fangelsi. Varla þarf að fjölyrða
um þau óþægindi sem slík mála-
ferli geta valdið einstaklingum.
Lekinn úr þingnefndinni
Gísli Freyr var dæmdur á grund-
velli 136. greinar almennra
hegningarlaga þar sem segir að
opinber starfsmaður megi sæta
fangelsi allt að þremur árum
ef hann segir frá einhverju sem
leynt eigi að fara. Á dögunum
birti fréttamiðillinn Kjarninn
persónuupplýsingar sem
umsækjendur um dómaraemb-
ætti höfðu sent innanríkisráðu-
neytinu. Upplýsingarnar höfðu
verið afhentar þingmönnum
stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar með því skilyrði að þær
væru trúnaðarmál. Þótt síðara
lekamálið verði að sjálfsögðu
ekki lagt að jöfnu við mál Gísla
vekur áhugaleysi ríkissaksókn-
ara á því óneitanlega spurning-
ar. jonhakon@frettabladid.is
2 7 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R8 s k o Ð U n ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
0
-C
F
5
0
1
D
3
0
-C
E
1
4
1
D
3
0
-C
C
D
8
1
D
3
0
-C
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K