Fréttablaðið - 27.06.2017, Page 9
Undanfarin misseri hefur íslenska krónan styrkst mjög mikið og er að nálgast gengi
sitt fyrir hrun. Á meðan hefur verð-
lag á vörum og þjónustu til erlendra
ferðamanna rokið upp úr öllum
skynsamlegum mörkum. Nú er svo
komið að einfalt sjoppufæði hér á
landi er farið að nálgast verðlag á
þokkalegri máltíð með drykkjum
t.d. í Þýskalandi. Þetta nær ekki
nokkurri átt og er ýmsum aðilum
innan ferðaþjónustunnar til vansa.
Svona gengur ekki til lengdar!
Íslensk stjórnvöld virðast hafa
mjög takmarkaðan skilning á að
fyrirtæki sem eru annað hvort
í ferðamannabransanum eða
útflutningi geta ekki til lengdar
staðið undir því að útgjöld fari
vaxandi í íslenskum krónum en
tekjurnar í evrum eða öðrum gjald-
miðli dragast saman.
Aldrei gengur til lengdar að hafa
tekjur og útgjöld í sitt hvorum
gjaldmiðlinum.
Hvað þarf að gera? Svo virðist
sem íslenska ríkisstjórnin hafi enga
stefnu í þessum málum aðra en að
gera sem allra minnst. Að þessu
leyti er hún höll undir „laissez-
faire“ stefnuna þ.e. að leyfa markað-
inum alfarið að ráða.
Með því að halda dauðahaldi í
íslensku krónuna eru það þá spá-
kaupmennirnir sem í raun ráða
og hafa pólitíkusana í vasanum
meira og minna. Þeir vilja hafa
alla möguleika opna til að skara
að sinni köku. Á meðan vex vandi
ferðaþjónustunnar og útflutnings-
fyrirtækja.
Nú eru stærstu fyrirtæki landsins
með ársuppgjör sín og reikninga í
evrum eða öðrum gjaldmiðlum.
Tekjurnar dragast saman með
síhækkandi krónu og á meðan
eykst þrýstingur á að hækka allan
innlendan kostnað. Hvernig er
unnt að finna rökrétta leið út úr
vandanum þó svo það yrði þvert
á sjónarmið íslenskra stjórnvalda?
Hvernig væri að þau fyrirtæki
sem hafa tekjur sínar í erlendum
gjaldmiðlum, miði samninga sína
eftirleiðis gagnvart viðsemjendum
sínum að þeir fari fram í evrum
eða þeim gjaldmiðli sem þeim er
hagfelldast? Viðskiptasamningar
og kjarasamningar ættu að geta
hljóðað upp á annan gjaldmiðil en
íslenska krónu þegar svo stendur
á. Íslenska krónan er einn minnsti
gjaldmiðill heims og ætti fremur að
vera safngripur en gjaldmiðill.
Viðskiptafrelsi er alltaf það sem
verður ofan á. Þröngsýn ríkisstjórn
sem vill einblína á skammtíma
sjónarmið á ekki að lifa lengi.
Íslenska krónan:
Blessun eða bölvun?
Guðjón Jensson
leiðsögumaður
Það er fagnaðarefni fyrir alla unnendur íslenskrar náttúru að Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála hefur nú fellt úr gildi
starfsleyfi Umhverfisstofnunar fyrir
eldi regnboga í Ísafjarðardjúpi. Fyrir
liggja áform um að breyta starfsleyf-
inu til eldis á regnboga í laxeldi. Ekki
verður séð að haldið verði áfram með
áform um sjókvía eldi í innanverðu
Ísafjarðardjúpi eftir úrskurð nefndar-
innar. Þá er það ekki rétt hjá forsvars-
mönnum eldisiðnaðarins að ein-
ungis sé um gagnrýni á vinnubrögð
og verkferla að ræða. Úrskurðurinn
fjallar einnig um mikilvæg efnisat-
riði en svona hljóðar hann varðandi
fjarlægðarmörk eldisins frá ánum í
Djúpinu.
„Loks athugist að veiðitala er skil-
greind sem tala veiddra fiska skv. 58.
tl. 3. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og
silungsveiði. Skilgreining á því að
veiddum fiski sé sleppt eða áhrif
þess á veiðitölur koma ekki fram í
þeim lögum, en eðli máls samkvæmt
telst sá fiskur veiddur sem sleppt er.
Í viðbrögðum Umhverfisstofnunar
við athugasemd vegna fjarlægðar
fyrirhugaðs eldis frá ósum laxveiðiáa
kemur fram að samkvæmt nánar til-
greindum heimildum sé samanlögð
veiði tveggja tilgreindra laxveiðiáa
503 fiskar að meðaltali síðastliðin 10
ár. Þar sem veiðimenn sleppi a.m.k.
0-160 fiskum á ári í hvorri á fyrir sig
sé meðalfjöldinn hins vegar undir 500
fiskum síðastliðin 10 ár. Verður ekki
séð að þessi staðhæfing sé rökrétt
miðað við gefnar forsendur. Eins og
hér háttar er það álit úrskurðarnefnd-
arinnar, að gættum þeim markmiðum
laga nr. 71/2008 um fiskeldi að vernda
beri villta nytjastofna, og að í því sam-
bandi skuli m.a. gæta fjarlægðar eldis-
stöðva frá veiðiám, að miða skuli við
samtölu veiddra laxa úr þeim ám sem
sameiginlegan ós hafa fremur en tölu
veiddra laxa úr hverri á fyrir sig.“
Nýtt starfsleyfi ómögulegt
Það er því ómögulegt að nýtt starfs-
leyfi geti tekið gildi að fengnum
þessum úrskurði. Hér þurfa því leyfis-
veitendur að staldra við og átta sig
á því að ákvæði laganna eru sett til
verndar villtum stofnum fyrir áhrifum
eldis sem þessa, og úrskurðurinn skýr
skilaboð um að engan afslátt má veita
með staðhæfingum sem afbaka orða-
lag laga eða reglugerða.
Það vakti furðu Landssambands
veiðifélaga að Umhverfisstofnun
skyldi færa niður fjölda veiddra laxa
vegna þess að hluta veiðinnar var
sleppt aftur, þegar gefið var út starfs-
leyfi fyrir starfseminni. Landssam-
bandið undraðist það að Umhverfis-
stofnun tók ekki málstað umhverfisins
og veitti þessum viðkvæmu laxastofn-
um í Djúpinu þá vernd sem löggjafinn
mælir fyrir um. En í stefnu Umhverfis-
stofnunar stendur: „Við verndum líf-
ríki og jarðminjar fyrir komandi kyn-
slóðir.“ Túlkun stofnunarinnar á hvað
telst veiði er tæplega samrýmanleg
stefnu hennar. Þessa túlkun kærði
Landssamband veiðifélaga og er
alfarið tekið undir kæruna í úrskurði
Úrskurðarnefndarinnar.
En hvers vegna fór Umhverfisstofn-
un þá fram með þessa túlkun? Það
kemur fram í tilkynningu stofnunar-
innar en þar segir: „Ljóst er að ábend-
ing úrskurðarnefndarinnar varðandi
hvaða regla gildi um fjarlægðarmörk
byggir á veiðihagsmunum fremur en
lífrænu álagi. Umhverfisstofnun leitaði
leiðbeininga Matvælastofnunar þegar
tekin var afstaða til þessa atriðis til að
gæta samræmis við lög um fiskeldi.“
Þarna sannast enn að sjaldan
bregst Matvælastofnun þegar ganga
þarf erinda fiskeldisins. Með úrskurði
Úrskurðarnefndarinnar er þessari frá-
leitu túlkun snúið við og náttúran látin
njóta vafans. Úrskurðarnefndin hefur í
það minnsta sýnt leyfisveitendum gula
spjaldið.
Gula spjaldið á lofti
Jón Helgi
Björnsson
formaður
Landssambands
veiðifélaga Þarna sannast enn að sjaldan
bregst Matvælastofnun þegar
ganga þarf erinda fiskeldis-
ins. Með úrskurði Úrskurðar-
nefndarinnar er þessari
fráleitu túlkun snúið við og
náttúran látin njóta vafans.
Úrskurðarnefndin hefur í
það minnsta sýnt leyfisveit-
endum gula spjaldið.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
2
5
1
9
R
e
n
a
u
lt
K
a
n
g
o
o
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
j
ú
n
í
RENAULT KANGOO
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði, ríkulegum búnaði
og úrvali sparneytinna bensín- og dísilvéla. Komdu og reynsluaktu nýjum Kangoo
og láttu sölumenn okkar gera þér tilboð í nýjan Renault atvinnubíl.
www.renault.is
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
lei
ða
nd
a
um
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð: 2.088.000 kr. án vsk.
2.590.000 kr. m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9Þ R i ð J u D A G u R 2 7 . J ú n í 2 0 1 7
2
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
0
-D
9
3
0
1
D
3
0
-D
7
F
4
1
D
3
0
-D
6
B
8
1
D
3
0
-D
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K