Fréttablaðið - 27.06.2017, Síða 16
Aðalatriðið er að hætta ekki að hreyfa sig og þá minni ég á að ganga er líka hreyfing.
Í raun þarf fólk ekki að hreyfa sig
nema á um 60 prósentum af því
álagi sem það er að hreyfa sig á
venjulega, til þess að viðhalda
þeim árangri sem það hefur náð
yfir veturinn. Öll hreyfing er
betri en engin,“ segir Inga María
Baldursdóttir, íþróttafræðingur
hjá Heilsuborg, þegar hún er beðin
um ráð til þess að viðhalda líkam-
legu formi í sumarfríinu þar sem
æfingarútína vetrarins brotnar
gjarnan upp.
Þó megi gera betur en rápa
milli búða og rölta í rólegheitum
í flæðarmálinu á sólarströnd.
Púlsinum þurfi að ná upp. Best
sé að skipuleggja hreyfingu inn í
sumarfríið.
„Það er gott að ákveða að gera
eitthvað en það þýðir þó ekkert að
ætla sér tvo tíma í ræktinni hvern
einasta morgun í þrjár vikur. Mark-
miðið verður að vera raunhæft og
jafnvel gott að hafa gulrót að stefna
að. Ekki er þó skynsamlegt að verð-
launa sig með mat,“ segir Inga.
Fyrir ferðalag ætti að skoða hvað
hægt er að gera á áfangastaðnum,
er líkamsræktarstöð eða sundlaug
á staðnum sem má nýta sér? Eða
jafnvel fjall sem hægt er að ganga
á? Kannski mætti taka með sér
teygjur og lóð. Inga segir börnin
enga afsökun fyrir því að sleppa
hreyfingu í sumarfríinu.
„Það er margt hægt að gera með
krökkum á öllum aldri. Þau hafa
gaman af því að hreyfa sig með
manni og það má vel ná púlsinum
upp með því að ganga rösklega á
eftir barni sem hjólar, eða hjóla
með þeim. Virkja þau í gönguferðir
upp í fjall. Með smábörn í vagni
er hægt að fara í göngutúr, stoppa
svo á góðum stað og gera æfingar.
Á leikvelli er hægt að gera æfingar
meðan krakkarnir leika sér. Það
má nota bekki til að æfa uppstig og
dýfur, gera hnébeygjur, armbeygjur,
stíga upp á steina og skokka rösk-
lega upp brekkur. Það er um að
gera að nýta nærumhverfið. Inni á
síðunni ganga.is er til dæmis hægt
að skoða gönguleiðir víða um land
og erfiðleikastig hverrar leiðar.“
Í fríinu slakar fólk gjarnan á
mataræðinu og þar segir Inga að
mikilvægast sé að sofna ekki alveg
á verðinum heldur halda reglu.
„Mikilvægast er að halda reglu og
undirbúa sig vel. Til dæmis ef fram
undan er löng ökuferð eða flug er
mikilvægt að borða góðan morgun-
mat og hafa millibitana tilbúna svo
maður lendi ekki í þeim aðstæðum
að stoppa á leiðinni í sjoppu þar
sem ekkert fæst nema pulsa, kók og
súkkulaði. Fólk veit yfirleitt hvað er
á boðstólum á þessum stöðum og
ætti að geta haft eitthvað með sér
þó það sé kannski óþarfi að nesta
sig fyrir allar máltíðir dagsins. Í flugi
er til dæmis hægt að taka með sér
niðurskorna ávexti og taka með sér
skyr og flatkökur í bílinn.“
Öll hreyfing betri en engin
Inga María
Baldursdóttir,
íþróttafræðingur
hjá Heilsuborg.
MYND/ERNIR
Síðasta föstudag voru nýjar höfuðstöðvar Vodafone opnaðar við Suðurlands-
braut 8 í Reykjavík. Á jarðhæð
byggingarinnar er ný og glæsileg
verslun en við hönnun hennar
voru þarfir viðskiptavina og
starfsmanna hafðar að leiðarljósi
og lagt upp með að aðgengi við-
skiptavina að vörum og þjónustu
væri sem auðveldast og þægilegast
segir Ósk Hilmarsdóttir verkefna-
stjóri. „Hönnun og fyrirkomulag
verslunarinnar er unnið í nánu
samstarfi við Vodafone Group
og sett upp í samræmi við útlit
sem fjarskiptafélagið hefur unnið
fyrir verslanir sínar á heimsvísu.
Verslun okkar á Suðurlandsbraut
er sú þriðja hér á landi sem er sett
í þennan búning og ein sú stærsta
sinnar tegundar í heiminum.“
Verslunin býður m.a. upp á gott
úrval heilsuvara að sögn Óskar.
„Þar má m.a. finna breiða línu
heilsuúra og kosta þau ódýrustu
einungis 6.990 kr. Við erum stolt
af Garmin línunni okkar, í henni
má finna úr við allra hæfi og er
ein gerðin, vivofit jr., sérstaklega
hönnuð fyrir krakka. Öll eiga úrin
það sameiginlegt að telja skrefa-
fjölda og mæla svefninn en einnig
eru þau fáanleg með púlsmæli
og GPS móttakara. Það er hægt
að nota þau til að stjórna tónlist
í snjallsímanum, greina æfingar,
erfiðleikastig þeirra og miklu fleira.
Einnig erum við með Samsung
Úrval heilsuvara hjá Vodafone
Í nýrri og glæsilegri verslun Vodafone sem var opnuð nýlega á Suðurlandsbraut 8 í Reykjavík má
m.a. finna gott úrval af heilsuvörum á borð við heilsuúr og sérstök heyrnartól. Verslunin var sett
upp í nánu samstarfi við Vodafone Group og er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum.
Gott úrval heilsuvara fæst í nýrri verslun Vodafone sem er ein sú stærsta sinnar
tegundar í heiminum, segir Ósk Hilmarsdóttir verkefnastjóri. MYNDIR/STEFÁN
Fjölbreytt úrval
heilsuvara er
í boði hjá
Vodafone, m.a.
Garmin úrin vin-
sælu.
snjallúr og er Gear Fit úrið sérstak-
lega hannað fyrir heilsurækt.“
Góð þjónusta
Sérstök heyrnartól fyrir fólk sem
vill hreyfa sig eru líka í boði og þar
nefnir Ósk helst Bose SoundSport og
Plantronics BackBeat Fit sem bæði
eru þráðlaus Bluetooth heyrnartól.
„Þau eru svita- og vatnsvarin, nett
og meðfærileg. Plantronics eru auk
þess með spöng sem fer aftur fyrir
hnakkann og veitir auka stöðug-
leika en Bose heyrnartólin eru með
ótrúlegan hljómburð enda er Bose
merkið þekkt fyrir mikil gæði.“
Verslunin selur líka heyrnartól
sem ná alveg yfir eyrun. „Með Bose
QC35 og JBL 700 heyrnartólunum
er hægt að stilla hversu vel þau
útiloka hávaða frá umhverfinu.
Mörgum finnst t.d. gott að útiloka
hávaðann alveg í ræktinni en ef
þau eru notuð í útihlaupum er
öruggara að geta heyrt umhverfis-
hljóðin. Seinna í sumar fáum við
skemmtilega línu frá Adidas með
hulstrum og ólum sem koma sér
vel í hreyfingu og útiveru.“
Starfsfólk Vodafone leggur mikið
upp úr góðri þjónustu og í hvert
sinn sem nýjar vörur koma í versl-
anir fær starfsfólk fyrirtækisins
greinargóða kennslu á tækin. „Við
höldum námskeið eða kynningar-
fundi og allir fá sendar upplýsingar
um nýju vörurnar. Á vefverslun
okkar www.vodafone.is/vorur má
finna nánari upplýsingar um allar
vörur í framboði okkar.“
Nýja verslunin er til húsa á
Suðurlandsbraut 8 en við opnun
hennar var verslun Vodafone í
Ármúla 13a lokað. Verslunin er
opin milli 9 og 18 virka daga en
lokað er um helgar.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Sumarfríi fylgir
letilíf og fast-
skorðuð rútínan
brotnar upp. Inga
María Baldurs-
dóttir íþrótta-
fræðingur segir
mikilvægt að
halda sér við.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . j ú n Í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
0
-D
9
3
0
1
D
3
0
-D
7
F
4
1
D
3
0
-D
6
B
8
1
D
3
0
-D
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K