Fréttablaðið - 27.06.2017, Page 18
Er gott að þvo
hárið upp úr
bjór?
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Mikið er rætt um falskar upplýsingar og fréttir á netinu. Auðvelt er að
nálgast alls kyns læknisráð og
heilsuupplýsingar sem eiga alls ekki
við rök að styðjast. Margir hlaupa á
eftir svona kraftaverkalausnum en
flestir sérfræðingar vara fólk við og
segja að ekki megi taka allt trúan-
legt sem upp kemur á leitarsíðum.
Sænski vefmiðillinn expressen.
se spurði lyfjafræðing um nokkrar
mýtur eða kerlingabækur eins og
við köllum svona hugarburð. Svörin
voru ekki alltaf eins og fólk vill hafa
þau. Flest töfraráð eru tóm vitleysa.
Haukur Ingason, apótekari í
Garðsapóteki, var spurður hvort
fólk kæmi með furðuspurningar
um kraftaverkalausnir í apótekið
en hann kannast ekki við það hjá
sínum viðskiptavinum. „Það er
mjög sjaldgæft að við fáum ein-
hverjar svona furðulegar fyrir-
spurnir,“ segir hann.
Á netinu má finna alls kyns ráð til
að verða fallegri og heilsuhraustari
á einfaldan og ódýran hátt, jafnvel
eitthvað heimagert. „Það getur
verið auðvelt að falla fyrir krafta-
verkalausnum. Ef ráðið lítur út fyrir
að vera einum of gott til að vera satt
þá er það oft þannig,“ segir sænskur
lyfjafræðingur, Annika Svedberg, í
samtali við expressen.se.
Grænsápa í staðinn fyrir fóta-
krem? Að smyrja fæturna með
grænsápu og troða þeim í plast-
poka yfir nótt til að gera þá mýkri
er eitt ráð sem finna má á netinu.
Sérfræðingurinn segir að það sé af
og frá að þetta sé rétt. „Grænsápa
er ekki endilega hættuleg fyrir
húðina en það eru ekki til neinar
rannsóknir sem sýna að sápa hjálpi
fólki með vandamál á fótum eins
og harða húð og sprungur. Notið
frekar mýkjandi fótakrem og
heilsusokka,“ svarar hún. „Þetta hef
ég aldrei heyrt,“ segir Haukur og
efast um virknina.
Gamalt húsráð er að þvo hárið
upp úr bjór til að fá það mjúkt og
glansandi. Bjór er ríkur af B-víta-
míni. „Kannski ekki alrangt,“ segir
Annika. „Bjór inniheldur B-vítamín
sem er mjög gott fyrir hárið, gefur
því jafnvel einhvern glans. Hins
vegar eru til aðrar mjög góðar leiðir
eins og að nota vandaða hárnær-
ingu.“
Annað einkennilegt kraftaverka-
ráð er sápa í rassinn. Sumir telja að
með því að stinga litlu sápustykki í
rassinn mýkist hægðirnar. Sérfræð-
ingurinn segir það ekki rétt. „Lík-
legast hefur þessi sögusögn komið
vegna þess að margir telja að sápan
hafi ertandi áhrif og geti þar af
leiðandi örvað þarmana. Fólk telur
þetta ódýrara en að kaupa sérstök
lyf við hægðatregðu. Hægðalyfin
eru hins vegar mun betri, þau hafa
verið rannsökuð hjá viðurkenndum
rannsóknarstofum og eru örugg í
notkun,“ segir hún.
„Ég held að þetta hljóti að vera
mjög óþægilegt ráð,“ segir Haukur
og bætir við. „Allt dettur nú fólki í
hug.“
Að nota nefsprey við rauðum
augum. Getur maður notað
nefspray eins og augndropa, til
dæmis þegar augun eru rauð-
hlaupin?
Sérfræðingurinn segir: „Virka
efnið í sumum nefúðum eru í sama
flokki lyfja og augndropar og hafa
æðaþrengjandi áhrif. Ekki er mælt
með að nota nefúða í augun vegna
þess að þau eru mjög viðkvæm.
Það gætu verið efni í nefúðum sem
eru alls ekki góð fyrir augun,“ segir
Annika.
„Ég ætla að vona að fólk fari
ekki að spreyja nefúða í augun á
sér,“ svarar Haukur þegar hann er
spurður um þetta atriði.
Aspirín í andlitsmaska. Sú ábend-
ing hefur komið upp hjá sænskum
bloggurum að það hafi mjög góð
áhrif á húðina að útbúa slíkan
maska, hann jafni húðlit og losi fólk
við bólur. Aspirín er leyst upp í smá
vatni, nokkrir dropar síðan settir út
í jógúrt með smá hunangi. Síðan er
jógúrtinu smurt á andlitið.
„Rangt,“ segir sérfræðingurinn.
„Mörg andlitskrem innihalda fitu-
sýrur af ýmsu tagi sem slípa húðina
og fjarlægja dauðar húðfrumur, má
þar nefna AHA sýrur og salisýlsýru.
Sennilega er það salisýlsýra sem
fólk lítur til þegar leysa á upp
aspirín í jógúrt en það er ekki sams
konar aspirín í salisýlsýru og í
verkjalyfinu.“
„Þetta hef ég heldur aldrei heyrt,“
segir Haukur.
Er hægt að nota gyllinæðarkrem
til að bjarga þreytulegu útliti? „Nei,“
segir sænski lyfjafræðingurinn.
Sumir segja að fyrirsætur beri gyll-
inæðarkrem í andlitið til að losna
við hrukkur og poka undir augum.
„Kremið inniheldur kortisón sem
getur verið skaðlegt fyrir augun.
Kremið má alls ekki setja í andlitið.
Ef kremið kemst í augun er hætta
á að viðkomandi fái gláku,“ segir
Annika. „Ráð sem kannski eru gefin
af góðum hug á bloggsíðum geta
verið mjög skaðleg,“ bætir hún við.
„Þetta kannast ég við. Gyllin-
æðarkrem var notað í eina tíð í
kringum augun. Það var krem sem
fékkst hér á landi og var æðaþrengj-
andi. Þetta krem fæst ekki lengur,
En það virkaði víst ágætlega,“ segir
Haukur. „Það voru ekki sterar í því
kremi. Nýju kremin eru með ann-
ars konar virkni,“ segir Haukur og
vonast til að fólk sé ekki að hlaupa
á eftir alls kyns svona vitleysu á
netinu.
Furðulegar mýtur á netinu
Margar sögusagnir geta verið lífseigar á netinu. Sérfræðingar hafa reynt
að eyða slíkum mýtum en oft án árangurs. Ekki er öll vitleysan eins.
Grænsápa er ekki
endilega hættuleg
fyrir húðina en það eru
ekki til neinar rann-
sóknir sem sýna að sápa
hjálpi fólki með vanda-
mál á fótum.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
0
-D
E
2
0
1
D
3
0
-D
C
E
4
1
D
3
0
-D
B
A
8
1
D
3
0
-D
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K