Kiwanisfréttir - 01.08.1988, Page 16
samræmis við okkar gildandi reglur og
stóðum við fyrir breytingartillögum þar
að lútandi. Féllust þingfulltrúar á okkar
sjónarmið í þessum efnum og var um-
dæmasambandsákvæðið síðan samþykkt
inn í alþjóðastofnskrána.
Hitt málið sem vakti áhuga okkar ekki
síður en flestra annarra þingfulltrúa var
tillaga frá heimsstjórninni um hækkun
INTERNA'nONAL
TUUOTEE
Sjöfn og Eyjólfur stóðu í ströngu
í kosningabaráttunni í Seattle.
það með ánægju og þótti sómi að.
Johnny Roberts frá Baton Rouge í
Louisianaríki, sem var heimsforseti í
Evrópuforsetatíð Eyjólfs, tók að sér að
styðja tilnefninguna. Held ég að okkur
hafi tekist bærilega - a.m.k. heyrðust
engar mótbárur og er Eyjólfur þegar tek-
inn við stjórnarstörfunum. Mun hann
verða ráðunautur heimsstjórnar (couns-
elor) eftir tvær vikur á tveimur umdæmis-
þingum vestan hafs, í Utah-Idaho-um-
dæminu og í Kansan-umdæminu.
Um val manna í æðstu embætti í
heimsstjórninni gilda fastar reglur og eru
menn valdir í þessi embætti með löngum
fyrirvara. Æðstu embættin á næsta starfs-
ári verða skipuð eftirtöldum mönnum:
Heimsforseti: Gene Overholt, Michigan
Kjörforseti: Noris Lusche, Colorado
Féhirðir: Wil Blechman, Florida
Gene Overholt var ráðunautur heims-
stjórnarinnar á heimsþingi okkar á síð-
asta starfsári. Venjan er að féhirðir gangi
upp í embætti kjörforseta og síðan upp í
forsetastólinn. Framangreindir þrír
menn verða því næstu þrír heimsforsetar
Kiwanis.
gjalda til Kiwanis International úr $15,-
sem þau eru í dag, í $18,-. All miklar um-
ræður urðu um þessa tillögu stórnarinn-
ar, flestar neikvæðar og fór svo að tillag-
an náði ekki % meirihluta sem hún þurfti
til að öðlast gildi. Verður því ekki um
hækkun gjalda til Kiwanis International
að ræða á næsta starfsári.
Eyjólfur Sigurðsson, sem kosinn var
fulltrúi Evrópu í heimsstjorn á Evrópu-
þinginu í Basel 1985, á nú loks að taka
við því embætti á næsta starfsári. Enda
þótt ákveðið væri fyrirfram hver skipa
ætti sæti þurfti að hafa öll formsatriðin í
lagi og var þess óskað að Eyjólfur yrði
tilnefndur formlega á kjörfundinum með
tveggja mínútna langri ræðu og að til-
nefningin yrði síðan studd af öðrum að-
ila, helst frá einhverju öðru umdæmi.
Eyjólfur fór þess á leit við mig, að ég
tæki að mér tilnefninguna og gerði ég
3 Eftirmáli
Fað er lærdómsríkt fyrir okkur að
sækja þing eins og heimsþingið. Öll fund-
arsköp eru þarna mjög í föstum skorðum
og gætum við að ósekju tekið upp ýmsa
siði sem þar vestra teljast sjálfsagðir á
samkomum sem þessum. Á ég þar bæði
við Evrópuþing og umdæmisþing, því að
óneitanlega er ýmislegt fremur laust í
reipunum í framkvæmd þeirra.
Við íslendingar getum verið ánægðir
með þátttöku okkar í þessu þingi þegar
gerður er samanburður við önnur um-
dæmi Evrópu. Telst mér til, að ekkert
umdæmi hafi sent jafnmarga fulltrúa og
okkar, enda þótt við séum frá fámenn-
asta umdæminu og varla ódýrara fyrir
okkur að fljúga vestur um haf en frá
meginlandi Evrópu. Enda höfðu sumir á
orði þegar okkur fimmmenningana bar
að garði, að svo virtist sem ísland væri að
yfirtaka Evrópu!
16
KIWANISFRÉTTIR