Kiwanisfréttir - 01.08.1988, Blaðsíða 19
(þykkar pönnukökur með sýrópi, steikt-
um pylsum og eggjum) var því öllu gerð
góð skil. Þvínæst hófst skráning til leikja
og afhending á mótshúfum (þ.e. Kiwan-
isfélagar fengu húfu með Kiwanismerki
en aðrir húfu frá Sparisjóði Keflavíkur
og nágrennis en Sparisjóðurinn styrkti
samkomuna með þessum húfum og voru
þær vel þegnar).
Eftir hádegið var gengið til leikja af
ýmsum toga t.d. pokahlaup, reiptog,
naglahlaup, hornabolti, leit að földum
hlutum í fjallinu, og fótbolti, að lokum
þar sem klúbbarnir kepptu um farand-
bikar, en Setbergsfélagar úr Garðabæ
unnu hann að þessu sinni úr hendi
Hraunborgar í Hafnarfirði.
Meðan leikirnir stóðu sem hæst kom
flugvél eins félagans yfir svæðið og
dreifði sælgæti yfir hópinn við mikinn
fögnuð yngstu kynslóðarinnar.
Um sexleitið var grillið tilbúið og
mættu allir þar með sínar steikur og
steiktu í góðum félagsskap.
Eftir matinn kom fólk saman þar sem
úthlutað var þátttökuskilríkjum til þeirra
barna sem mættu á svæðinu og tóku þátt
í leikjum og starfi Vigdísarvallahátíðar
1988. Úthlutað var 156 skírteinum og
Bálkösturinn fyrir íkveikju.
Yngsta kynslóðin í pokahlaupi.
þótti ýmsum mikið til þeirra koma og
þurfti að skrifa mörg auka skírteini því
sumir höfðu gleymt að skrá sig. Pá fór
fram verðlaunaafhending til þeirra sem
unnu í sínum aldursflokkum, gull, silfur
og brons eins og vera ber. Þar stigu
margir stoltir niður af verðlaunapallinum
með verðskuldaða viðurkenningu, sumir
með fleiri en eina. Alls var úthlutað 63
peningum.
Um kl. 21:00 var kveikt í um 5 metra
háum bálkesti, í þröngu dalverpi inn af
völlunum. Þar sátu fjölskyldurnar uppi í
brekkunni og sungu gömul og góð ætt-
jarðarlög við harmonikuundirleik Kol-
brúnar Sveinbjörnsdóttur frá Grindavík.
Uppúr kl. 23:00 mætti discótekið „Dísa“
á svæðið og hélt uppi dansi við góðan
orðstír til kl. 04:00, spilaði lög við allra
hæfi eldri sem yngri.
Sunnudagurinn hófst á sama veg og
laugardagurinn með morgunverði „A la
Brú“.
Upp úr hádeginu tóku menn höndum
saman og hreinsuðu vel allt svæðið og
þrifu svo að ekki var hægt að merkja að
þarna höfðu 310 manns verið saman-
komnir um helgina, Kiwanismönnum til
sóma.
Veðurguðirnir reyndust okkur vel,
hlýtt var og logn, sólskin svona stundum
en smá rigningarúða gerði á laugardags-
kvöldið en það gerði engum mein og
hefði svo vel getað verið miklu verra og
ber að þakka það.
Ástvaldur Eiríksson,
formaður Vigdísarvallahátíðar 1988.
KIWANISFRÉTTIR
19