Kiwanisfréttir - 01.08.1988, Blaðsíða 22
Fríður hópur við upphaf Keilisgöngu.
FRÉTTIR AF KEILI
Mér datt í hug, að stinga niður penna
eftir að heim var komið úr velheppnaðri
útilegu á Vigdísarvöllum, þar sem klúbb-
ar í Ægissvæði héldu fjölskylduhátíð og
segja ykkur lítillega frá starfi okkar fél-
aganna í Keili.
f*að má segja að þetta hafi verið í
fyrsta skipti sem við tókum virkan þátt í
Vigdísarvallarhátíð, en á okkar vegum
tóku þátt í hátíðinni um 70 manns. Voru
allir sammála um, að hátíðin hafi tekist
vel og þeim sem henni stjórnuðu til
sóma.
Af okkur Keilisfélögum er það annars
að frétta, að starfið í ár hefur gengið
mjög vel undir frábærri stjórn forsetans
okkar Árna Björgvinssonar og hans
stjórnarmanna.
í upphafi starfsárs var haldið ræðu-
námskeið sem Magnús Jónasson úr
Hraunborgu stjórnaði. Námskeiðið þótti
takast vel, en það var aðallega haldið fyr-
ir þá sem lítið höfðu haft sig í frammi á
fundum.
Fjáraflanir í styrktarsjóð voru með
hefðbundnum hætti, en jólatréssala hef-
ur verið aðalfjáröflun svo til frá stofnun
klúbbsins, en hann var stofnaður árið
1970. Að þessu sinni gekk salan mjög vel
og hefur sjaldan eða aldrei gengið betur.
Aðalstyrktarverkefni klúbbsins hefur
verið allt frá árinu 1976 Þroskahjálp á
Suðurnesjum. Hefur klúbburinn ásamt
öðrum Kiwanisklúbbum á Suuðurnesjum
átt stóran þátt í mikilli uppbyggingu
Þroskahjálpar, sem rekur nú sjúkraþjálf-
un, leikfangasafn og skammtímavistun í
eigin húsnæði. Á yfirstandandi starfsári
gaf klúbburinn þroskahjálp ýmisskonar
þjálfunartæki.
Á árinu létum við unglingamál til okk-
ar taka og gáfum félagsmiðstöðvum
Myllubakkaskóla í Keflavík og Grunn-
skólans í Njarðvík billiardborð og fleira.
Einnig gáfum við á árinu Fjölbrautar-
skóla Suðurnesja kr. 100.000,- til tölvu-
kaupa.
Fyrir nokkrum árum var samþykkt, að
25% af fjáröflun í styrktarsjóð, rynni í
sjóð, sem nota á í sérstakt verkefni á 20
ára afmæli klúbbsins.
Mætingar á fundi hafa verið mjög góð-
ar eða 75% enda hafa fundir verið eftir-
sóknarverðir, félagsmálafundir léttir og
22
KIWANISFRÉTTIR