Morgunblaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 4. J A N Ú A R 2 0 1 7
Stofnað 1913 12. tölublað 105. árgangur
VALDASKIPTI
NÁLGAST Í BANDA-
RÍKJUNUM
LAUGARÁS-
LÆKNAR
AÐ HÆTTA
ÁRNESSÝSLA 19ERLENT 22
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins urðu formenn stjórnar-
flokkanna ásáttir um að Sjálfstæð-
isflokkur fengi formennsku í fimm
fastanefndum Alþingis, Viðreisn
fengi formennsku í einni nefnd og
stjórnarandstöðunni yrði boðin for-
mennska í tveimur. Björt framtíð
myndi þá ekki fara fyrir neinni af
fastanefndum þingsins. Loka-
ákvarðanir hafa ekki enn verið
teknar en Sjálfstæðisflokkur fær
líklega formennsku í fjárlaganefnd,
atvinnuveganefnd, umhverfis- og
samgöngunefnd, efnahags- og við-
skiptanefnd og allsherjar- og
menntamálanefnd. Formennska í
utanríkisnefnd muni hins vegar
falla í skaut Viðreisnar. Þá muni
stjórnarandstaðan fá formennsku í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og
velferðarnefnd. »14
Línur lagðar um for-
mennsku nefnda
Morgunblaðið/Ófeigur
Alþingi Búið er að leggja línur um hverjir
taka við formennsku í fastanefndum.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Fatasöfnun Rauða krossins flutti út 2.720 tonn af
notuðum fatnaði, textíl og fylgihlutum á síðasta
ári og hefur magnið aldrei verið meira. Aukn-
ingin er 500 tonn frá 2015 og þar á undan var
300 tonna aukning á milli ára. Rauði krossinn
selur fötin á kílóverði að mestu í Þýskalandi en
hluti fer til Hollands. Hagnaðurinn af fataverk-
efninu var 85 milljónir árið 2015 en mestur hefur
árshagnaðurinn orðið 115 milljónir. Hagnaður-
inn rennur til hjálparstarfs, að mestu leyti innan-
lands.
„Skýringarnar á þessari miklu aukningu milli
ára eru margslungnar en ég hugsa að það séu
þrír þættir sem skipta mestu máli: Það er bætt
efnahagsástand og fjölgun túrista, aukin kynn-
ingarstarfsemi okkar og síðan þessi vitund-
arvakning um að minnka sóun. Það er algjör só-
un að henda flík eða nokkrum textíl í ruslið. Það
er eins mikil sóun og hægt er að hugsa sér. Það
er miklu nær að reyna að koma þessu í einhvers
konar endurnotkun og endurnýtingu og við njót-
um góðs af í leiðinni,“ segir Örn Ragnarsson
verkefnisstjóri í viðtali við Sunnudagsblað Morg-
unblaðsins. Sunnudagsblaðið heimsótti fata-
flokkunarmiðstöð Rauða krossins í iðnaðarhús-
næði við Skútuvog og fræddist um starfsemina
eins og sjá má í úttekt í blaðinu.
Morgunblaðið/Eggert
Flokkun Fötin koma í pokum úr Sorpugámum og eru flokkuð á færibandi. Það sem nýtist í starf Rauða krossins hér á landi er tekið til hliðar en afgang-
urinn er fluttur út. Sjálfboðaliðar unnu 5.071 stund í fataflokkunarmiðstöðinni í fyrra en til viðbótar starfa sjö manns hjá Fatasöfnun Rauða krossins.
Magnið aldrei verið meira
Rauði krossinn flutti út 2.720 tonn af notuðum fötum í fyrra Hagnaðurinn
fer í hjálparstarf Bætt efnahagsástand og fjölgun ferðamanna hefur áhrif
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Verð á nýjum bílum lækkaði jafnt og
þétt sl. ár vegna hagstæðs gengis
krónu gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
Samkvæmt samtölum Morgunblaðs-
ins við talsmenn bílasalanna lækk-
uðu bílar í verði um 8-16%.
Páll Þorsteinsson, upplýsinga-
fulltrúi Toyota á Íslandi, segir að þar
hafi bílar lækkað um 10-16% á síð-
asta ári.
„Síðustu 18 mánuðir voru mjög
góðir hjá okkur. Einstaklingar og
fyrirtæki eru að endurnýja bílana
sína og eigum við von á að salan í ár
verði ívið meiri en í fyrra,“ segir Páll
ennfremur.
Markaðsstjóri BL, Loftur Ágústs-
son, hefur svipaða sögu að segja. Þar
hafi algengustu gerðir bíla lækkað
um 8-10%, en dæmi sé um tæplega
15% verðlækkun.
„Þetta er auðvitað nokkuð mis-
munandi eftir bílum, en í sumum til-
fellum hefur bæst við búnaður í bíl-
ana og þá hefur ekki verið hægt að
lækka þá alveg jafn mikið. Við höfum
hins vegar haft þá stefnu að reyna að
fylgja styrkingu krónu eins og kost-
ur er,“ segir Loftur í samtali við
Morgunblaðið og bætir við að geng-
issveiflur, hvort sem um ræðir styrk-
ingu eða veikingu krónu, séu ekki
ákjósanlegar. Auk þess sé mikil sam-
keppni á markaðnum.
MNýir bílar lækka talsvert »4
Bílar hafa lækkað um 8-16%
Nýir bílar lækkuðu jafnt og þétt í verði á síðasta ári Búist er við meiri sölu í ár
Einstaklingar og fyrirtæki endurnýja bílana Gengissveiflur ekki ákjósanlegar
Morgunblaðið/Ernir
Bílasala Upplýsingafulltrúi Toyota
segir sölu sl. 18 mánuði vera góða.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á
kröfu Lífeyrissjóðs bankamanna
(LB) um dómkvaðningu matsmanns
til að meta tiltekin atriði í tengslum
við greiðslur ábyrgðaraðila til Eft-
irlaunasjóða Landsbankans og
Seðlabankans. Árið 2015 neyddist
sjóðurinn til að skerða réttindi sjóðs-
félaga um 9,65% vegna trygginga-
fræðilegrar stöðu og þá var staðan
enn neikvæð um 2,6% í árslok 2015.
Telja forsvarsmenn LB að forsendur
samkomulags, sem gert var 1997 um
greiðslur aðildarfyrirtækja að sjóðn-
um hafi brostið og það hafi reynst
ósanngjarnt. »20
Heimilt að fá dóm-
kvaddan matsmann
Árið 2016 var
metár hvað varð-
ar fjárfestingar í
sprotafyr-
irtækjum á Ís-
landi, samkvæmt
samantekt
sprotavefsíð-
unnar North-
stack.is. Sprota-
fjárfestingarnar voru 19 og af þeim
voru átta þar sem erlendir fjár-
festar áttu í hlut. Heildarfjárfesting
var 6,2 milljarðar króna eða sem
nemur 54 milljónum dollara.
Kristinn Árni Lár Hróbjartsson
hjá Northstack segir að síðustu tvö
ár hafi verið virk í sprotafjárfest-
ingum, og nýir sjóðir hafi komið
fram sem horfi sérstaklega til
slíkra fjárfestinga. »20
Aldrei meira fjárfest
í sprotafyrirtækjum