Morgunblaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á næstunni verður ráðist í það verk
að fella og fjarlægja sitkagrenitré í
Öskjuhlíð sem standa upp fyrir að-
flugsflöt að braut 31 á Reykjavík-
urflugvelli, þ.e. austur/vestur braut-
inni. Samkvæmt greiningu þarf að
fella um 130 tré. Verkið hefur verið
boðið út og verða tilboð opnuð eftir
helgina.
Með þessu verki er verið að upp-
fylla samkomulag sem gert var milli
ríkisins og Reykjavíkurborgar hinn
19. apríl 2013. Samkomulagið und-
irrituðu Ögmundur Jónasson, þáver-
andi innanríkisráðherra, og Jón
Gnarr, þáverandi borgarstjóri.
Samkomulagið var í nokkrum lið-
um og þar stóð m.a. orðrétt: „Að
flugöryggi við notkun austur/vestur
flugbrautar verði bætt með því ann-
ars vegar að séð verði til þess að
gróður í Öskjuhlíðinni skagi ekki upp
í hindrunarfleti núverandi flug-
brautar og hins vegar að heimiluð
verði uppsetning aðflugsljósa fyrir
nákvæmnisblindaðflug vestan við
brautina.“
Aðflugsljósin í biðstöðu
Uppsetning aðflugsljósa er ekki
hafin ennþá. Að sögn Jóns Karls
Ólafssonar, framkvæmdastjóra flug-
vallasviðs Isavia, liggur ekki fyrir
fjárveiting til verksins. Kostnaðar-
áætlun vegna lendingarljósa vestan
flugvallar er á bilinu 90-100 milljónir
króna.
Í tilboðsgögnum kemur m.a. fram
að starfsmenn Reykjavíkurborgar
munu merkja trén sem á að fella og
hafa eftirlit með framkvæmd. Öskju-
hlíð sé vinsælt og fjölsótt útivist-
arsvæði og því sé nauðsynlegt að
halda raski sem fylgir fellingu í lág-
marki.
Verkefnið er að fella hæstu trén á
skilgreindu svæði. Á svæðinu eru
lægri tré og undirgróður en einnig
klappir og stórir steinar sem hafa
mikið gildi fyrir útivistarsvæðið. Það
sé því nauðsynlegt að ganga um með
varfærni þannig að á svæðinu sé sem
minnst rask þegar framkvæmdum er
lokið. Þetta þýðir að takmarka þurfi
umferð tækja um skóginn og sér-
staklega aðgengi stærri tækja sem
valda meira raski.
Framkvæmdum skal að fullu lokið
eigi síðar en 15. mars 2017.
Reykjavíkurborg hyggst móta
nýtt útivistarsvæði og göngustíga á
því svæði sem verður til þegar trén
fara. Aðgengi fólks að þessum hluta
Öskjuhlíðarinnar mun því verða mun
betra. Greinarnar verða kurlaðar og
notaðar í göngustíga á svæðinu og
nokkrir trjábolanna verða notaðir í
bekki og fleira á svæðinu .
Ásatrúarfélagið fær hins vegar
megnið af trjábolunum til notkunar í
nýtt hof sem er það er að byggja við
Menntasveig í Öskjuhlíðinni.
„Þeir hjá Isavia buðu okkur þessi
tré og við erum að leita lausna. Þetta
er mjög heillandi hugmynd og alger-
lega í anda þeirrar heimspeki sem
við höfum lagt upp með,“ segir Hilm-
ar Örn Hilmarsson allsherjargoði í
viðtali við Morgunblaðið í nóvember.
Felld verða 130 tré í Öskjuhlíð
til þess að auka flugöryggi
Greinarnar kurlaðar og notaðar í göngustíga Ásatrúarfélagið fær bolina
Mynd/Landupplýsingagátt
Trjáfellingar Myndin sýnir hvaða tré verða felld. Aðflug er yfir Fossvogskirkjugarð. Bygging HR neðst til vinstri.
Morgunblaðið/RAX
Trjágróður Hæstu trén hafa hindrað flugumferð að Reykjavíkurflugvelli.
Gylfi Ólafsson hef-
ur verið ráðinn að-
stoðarmaður Bene-
dikts Jóhannes-
sonar, fjármála- og
efnahagsráðherra.
Gylfi er 33 ára
heilsuhagfræð-
ingur. Frá árinu
2013 hefur hann
verið sjálfstætt
starfandi ráðgjafi í heilsuhagfræði á
Íslandi. Þá stofnaði hann og rak ný-
sköpunarfyrirtækið Vía í skor-
dýraeldi í Bolungarvík frá 2013-
2016. Gylfi var oddviti Viðreisnar í
Norðvesturkjördæmi í alþingiskosn-
ingum 2016. Hann er giftur Tinnu
Ólafsdóttur og saman eiga þau eina
dóttur.
Gylfi aðstoðar
fjármálaráðherra
Gylfi Ólafsson
Ánægju er lýst í yfirlýsingu samtakanna ViVe með það markmið sem fram
kemur í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar að notendastýrð persónuleg
aðstoð (NPA) verði lögfest sem eitt af þjónustuformum fólks með fötlun.
Skuli þetta gert í samráði við sveitarfélög en leiðarljósið verði að fólk með
fötlun geti sjálft stýrt þjónustunni sem það þiggur.
ViVe segir að 2009 hafi verið sett af stað þverpólitísk vinna við að leggja
grunn að þingsályktunartillögu um notendastýrða persónulega aðstoð.
Væri markmiðið þá að félagsleg þjónusta í þessari útfærslu yrði raunveru-
legur valkostur. Sumarið 2010 hafi þingsályktunartillaga um þetta verið
samþykkt á Alþingi og nú þurfi að halda starfinu áfram.
Fagna stefnu ríkisstjórnar um NPA
Opnið 8-17 virka daga.
Vetrartilboð á kuldagöllum
aðeins 14.500,-Litir: Gulur og blár – grár – dökkblár – rauður
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD
MÚRUM & SMÍÐUM
Múrvinna
Smíðavinna
Málningarvinna
Jarðvinna
Ekkert verk of
smátt né stórt!
Upplýsingar í síma 788 8870 eða
murumogsmidum@murumogsmidum.is TI
LBO
Ð Þ
ÉR
AÐ
KOS
TNA
ÐAR
LAU
SU!
Sigrún Gunnarsdóttir og Unnsteinn
Jóhannesson eru aðstoðarmenn-
irnir sem Óttarr Proppé heilbrigð-
isráðherra hefur ráðið sér til full-
tingis. Sigrún er fædd 1960, er
hjúkrunarfræðingur að mennt og
með doktorsgráðu á sviði lýðheilsu-
mála og stefnumótunar. Hún hefur
mikla reynslu á sviði heilbrigðis-
mála og stjórnsýslu auk þess að
hafa sinnt ýmsum félagsmálum,
kennslu og trúnaðarstörfum. Hefur
hún m.a. verið varaþingmaður
Bjartrar framtíðar og hefur tekið
sæti á Alþingi. Þá er hún formaður
stjórnar Krabbameinsfélags Ís-
lands.
Unnsteinn Jóhannsson er þrítug-
ur og hefur síðastliðin tvö ár verið
aðstoðarmaður formanns Bjartrar
framtíðar og sem slíkur meðal ann-
ars sinnt flokksstarfi og fjölmiðla-
tengslum. Bakgrunnur hans er
meðal annars úr skátahreyfingunni
og starfi Samtakanna 7́8.
Sigrún
Gunnarsdóttir
Unnsteinn
Jóhannsson
Aðstoða nýjan heil-
brigðisráðherra